Morgunblaðið - 30.03.2012, Side 16

Morgunblaðið - 30.03.2012, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MARS 2012 Páskabasar Kattavinafélagsins verður haldinn í Kattholti, Stang- arhyl 2, Reykjavík, laugardaginn 31. mars kl. 11 – 16. Á boðstólum verður að venju margt góðra muna, s.s. kisudót, páskaskraut og margt fleira. Auk þess kökur og brauð sem kattavinir baka af mikilli list og gefa til styrktar kisunum. Köku- basarinn nýtur sívaxandi vinsælda og selst yfirleitt allt upp á mettíma, segir í frétt frá félaginu. „Síðast en ekki síst verða sýndar nokkrar yndislegar kisur sem allar eiga það sameiginlegt að þrá nýtt og gott heimili,“ segir í tilkynning- unni frá Kattavinafélaginu. Allir dýravinir eru hjartanlega velkomn- ir á basarinn. Páskakisa Nokkrar kisur, sem bíða eftir nýju heimili, verða til sýnis á morgun. Kisudót og fleiri munir í boði á páskabasar Alþjóðleg myrkvun verður á morgun, laugardaginn 31. mars, og tekur Reykjavíkurborg þátt í átakinu. Í frétt frá borginni eru borgarbúar, fyrirtæki og stofnanir hvött til að taka þátt klukkan 20.30 til 21.30 með því að kveikja ekki rafmagnsljósin og slökkva þau sem kveikt voru. Reykjavíkurborg vinnur að því að ljós verði slökkt í Kvosinni í Reykjavík þessa klukkustund. Borgir í 135 löndum taka þátt í þessum viðburði og um það bil 18 billjón einstaklingar munu slökkva ljósin þennan klukkutíma, segir í frétt frá borginni. „Hér er um magnaða stund að ræða þar sem byggðir heims sýna einstaka samstöðu í verki. Kjörið er að kveikja á kertum á heimilum og ræða við börnin um að margar hendur geti unnið létt verk í umhverf- ismálum,“ segir í fréttinni. Stefnt að myrkvun um allan heim Julie Herschend Christoffersen, fyrrverandi fræðimaður við Al- þjóðastofnun Danmerkur, heldur erindi í dag kl. 12 í Lögbergi Há- skóla Íslands á vegum Alþjóða- málastofnunar HÍ. Í erindinu, sem heitir „Stækkunarmál ESB: Balk- anskaginn,“ mun hún fjalla um samskipti ríkja á vesturhluta Balk- anskaga við Evrópusambandið. Um er að ræða Króatíu, Serbíu, Svartfjallaland, Bosníu/Hersegó- vínu, Albaníu og Kósóvó. Fjallað verður um stöðuna og málefni sem valda mestum erfiðleikum í sam- skiptum. ESB og Balkanskagi Heimili og skóli hafa gefið út kynningarbæklingana Virkir for- eldrar – betri leikskóli, Virkir for- eldrar – betri grunnskóli og Virk- ir foreldrar – betri framhaldsskóli á pólsku. Fjallað er um hlutverk foreldraráða, skólaráða og for- eldrafélaga í bæklingunum. Síðastliðin fimm ár hefur er- lendum nemendum fjölgað mjög og eru nú 3,2% allra grunnskóla- nemenda og eru flestir þeirra pólskir. Næstu daga verða bæklingarnir sendir á rafrænu formi til allra skóla landsins og einnig verður hægt að nálgast þá á heimasíðunni heimiliogskoli.is. Bæklingar á pólsku STUTT Bónus var með lægsta verðið á 16 tegundum páskaeggja af 28, næst oftast voru Fjarðarkaup með lægsta verðið eða á níu páskaeggjum og Krónan á þremur. Þetta er niðurstaða verðkönnunar sem Verðlagseftirlit ASÍ gerði á páskaeggjum í sjö matvöruversl- unum víðsvegar um landið mánudag- inn 26. mars síðastliðinn. Kannað var verð á 28 algengum páskaeggjum. Kostur og Víðir neituðu þátttöku í könnuninni, að því er fram kemur í tilkynningu frá ASÍ. Samkaup-Úrval með hæsta verð á 21 páskaeggi af 28 Samkvæmt könnuninni voru Sam- kaup-Úrval með hæsta verðið á 21 páskaeggjum af 28, en Hagkaup var næstoftast með hæsta verðið eða á sjö páskaeggjum. Flestar tegundir páskaeggja í könnuninni voru fáan- legar í Fjarðarkaupum sem hafði á boðstólum öll páskaeggin sem voru skoðuð. Krónan átti til 27 af 28 og Nettó og Hagkaup 26. Fæst eggjanna voru fáanleg í Nóatúni eða 18 talsins og Bónus bauð upp á 21 tegund af páskaeggjum. Mestur verðmunur í könnuninni reyndist vera á páskaeggi frá Freyju númer 9, bæði draumaeggi og rís- eggi, sem var dýrast á 2.569 kr. hjá Samkaupum-Úrvali en ódýrast á 1.598 kr. í Fjarðarkaupum. Verð- munurinn var 971 kr. eða 61%. Minnstur verðmunur í könnuninni var á lakkríspáskaeggi frá Nóa Sí- ríus. Það var dýrast á 1.379 kr. hjá Nettó en ódýrast á 1.259 kr. hjá Bón- us. Verðmunurinn var 120 kr. eða 10%. Verð á páskaeggjum hefur hækk- að í flestum tilfellum, hjá öllum versl- unum, nema á Nóa Síríus gulleggi – 6 stk. í pakka, sem hefur lækkað á milli ára. Mesta lækkunin var hjá Fjarð- arkaupum, Samkaupum-Úrvali og Hagkaupum um 55%, hjá Nettó um 54% og hjá Bónus um 53%. Mesta hækkunin á milli ára er hjá Samkaupum-Úrvali en þar hækkaði verð á Síríus konsum páskaeggi um 27%, í Nettó um 21%, Krónunni og Bónus um 4%, Fjarðarkaupum um 1% en verðið stóð í stað hjá Hag- kaupum. Ekki var gerður samanburður milli ára á þeim páskaeggjum sem ekki voru jafnþung. Verðkönnunin tók til algengra páskaeggja frá ís- lenskum framleiðendum. Könnunin var gerð í eftirfarandi verslunum: Bónus á Akureyri, Krón- unni í Lindum, Nettó á Egilsstöðum, Hagkaupum í Kringlunni, Fjarð- arkaupum í Hafnarfirði, Nóatúni í Hamraborg og Samkaupum Úrvali í Hafnarfirði. Kostur og Víðir neituðu að taka þátt í verðkönnuninni, þar sem þeir telja það ekki þjóna hags- munum sínum að verðlagseftirlit ASÍ upplýsi neytendur um verð í versl- unum þeirra. Hér er aðeins um beinan verðsam- anburð að ræða, en ekki er lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila, segir í tilkynningunni frá verðlagseftirliti ASÍ. Verðmunurinn var allt að 61%  Bónus var með lægsta verðið á 16 tegundum páska- eggja af 28 Verð Verð Verð Verð Verð Verð Verð Verð Verð Verð Verð Verð Verð Verð 2012 2011 Br.* 2012 2011 Br.* 2012 2011 Br.* 2012 2011 Br.* 2012 2011 Br.* 2012 2011 Br.* 2012 2011 Br.* Nói Síríus Gullegg nr. 1 - 6 stk/pk 329 698 -53% e e 359 775 -54% 378 849 -55% 399 895 -55% e 799 348 772 -55% Páskaegg nr. 4 1.098 1.079 2% 1.199 1.080 11% 1.199 1.098 9% 1.369 1.249 10% e 1.339 1.368 1.248 10% 998 1.157 -14% Páskaegg nr. 5 1.798 1.659 8% 1.899 1.670 14% 1.998 1.689 18% 2.199 1.799 22% 2.369 1.889 25% 2.198 1.798 22% 1.898 1.736 9% KonsumPáskaegg nr. 4 1.179 1.139 4% 1.190 1.140 4% 1.398 1.159 21% 1.499 1.499 0% 1.569 1.239 27% em 1.248 1.198 1.188 1% lakkrís Páskaegg 1.259 1.198 5% 1.299 1.199 8% 1.379 1.199 15% em 1.299 e 1.389 e 1.298 1.298 1.227 6% Karmellu kurl páskaegg 1.259 e 1.299 1.190 9% 1.389 1.189 17% 1.499 1.299 15% 1.569 1.297 21% e 1.298 1.298 1.227 6% Freyju Páskaegg nr. 2 459 398 15% 460 399 15% 549 459 20% 519 479 8% 599 489 22% e 478 460 444 4% Rísegg nr. 4 1.098 998 10% 1.199 999 20% 1.298 1.058 23% 1.397 e 1.499 e e 1.148 1.198 1.098 9% Rísegg nr. 9 1.798 1.898 -5% 1.996 1.899 5% 1.998 1.998 0% 2.349 2.099 12% 2.569 2.189 17% 2.348 1.998 18% 1.598 1.985 -19% Draumaegg nr. 9 1.798 1.898 -5% 1.870 1.899 -2% 1.998 1.998 0% 2.199 2.099 5% 2.569 2.189 17% 2.198 1.998 10% 1.598 1.985 -19% Góa Fígúru Páskaegg nr. 4 939 939 0% 937 960 -2% 1.159 959 21% 1.238 1.094 13% e 1.198 1.239 e 1.048 1.045 0% Páskaegg nr. 4 e e 1.040 899 16% 1.059 998 6% 999 999 0% 1.098 1.089 1% 998 e 937 940 0% Páskaegg lakkrís nr. 4 989 989 0% 1.099 998 10% 1.198 998 20% 1.299 1.299 0% 1.349 1.298 4% 1.298 e 1.198 1.135 6% Verðkönnun á páskaeggjum - samanburður milli ára Heimild: ASÍ Bónus Krónan Nettó Hagkaup Samkaup Úrval Nóatún Fjarðarkaup *Breyting milli ára e = ekki til em = ekki verðmerkt Hæstiréttur hefur staðfest tveggja og hálfs árs fangelsisdóm Héraðs- dóms Reykjavíkur yfir 54 ára karl- manni, Kristmundi Sigurðssyni, sem sakfelldur var fyrir frelsis- sviptingu, rán, þjófnað, fíkniefna- lagabrot, brot gegn umferðarlögum og fyrir að valda líkamstjóni af gá- leysi. Í málinu var Kristmundur ákærður ásamt fleirum fyrir frels- issviptingu og rán með því að hafa, aðfaranótt sunnudagsins 20. desem- ber í sameiningu svipt karlmann frelsi á heimili sínu í Reykjavík og beitt hann ofbeldi í því skyni að ná frá honum verðmætum. Mennirnir slógu fórnarlamb sitt í andlit, tóku hann hálstaki, fjötruðu hendur hans og tróðu tusku upp í munn hans og kefluðu hann. Þá neyddu þeir manninn til að millifæra af reikningi sínum 110.000 krónur yfir á reikning eins þeirra auk þess sem þeir söfnuðu verð- mætum í íbúð mannsins, m.a. 80.000 krónum í peningaseðlum, og flutti Kristmundur hluta verðmæt- anna af vettvangi. Við atlöguna hlaut maðurinn roða og mar á úlnliðum og fram- handleggjum, roðarákir í munn- vikum, mar undir og aftan við eyru, bólgu á vinstri kinn og áfallastreituröskun. Sakaferill Kristmunds nær allt aftur til ársins 1976. Hann var m.a. árið 1978 dæmdur í 12 ára fangelsi fyrir manndráp. Fangelsi fyrir fjölda brota Sími 5685170 Innigallar fyrir konur á öllum aldri Stærðir s-xxxl Nýkomnir fallegir bómullarbolir í mörgum litum Hlýrabolir Stuttermabolir og kvartermabolir Velúrgallar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.