Morgunblaðið - 30.03.2012, Page 17

Morgunblaðið - 30.03.2012, Page 17
FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MARS 2012 Sindri Sigurgeirsson, formaður Landssamtaka sauðfjárbænda, sagði þegar hann setti aðalfund samtak- anna í gær, að margskonar rök mætti færa fyrir því að styrkja inn- lenda framleiðslu á matvælum með opinberu fé. Með- al annars sparað- ist með því dýr- mætur gjald- eyrir. „Allar okkar neysluvörur sem við framleiðum ekki sjálf þarf að flytja inn og afla til þess erlends gjaldeyris eða taka hann að láni. Ef við hættum eða drögum stórlega úr innlendri matvælaframleiðslu þarf að afla erlends gjaldeyris til að flytja það magn inn sem framleitt er hér nú. Ekki liggur fyrir hvaðan sá gjaldeyrir ætti að koma og miðað við skuldastöðuna væri óskynsamlegt, eða jafnvel erfitt, að taka hann að láni. Sú fjárhæð hefur verið áætluð allt að 100 milljónum á dag, enda hafa stjórnvöld sett sér það markmið að hlutfall innlendrar matvöru í neyslu landsmanna aukist um 10% fyrir árið 2020,“ sagði Sindri. Hann sagði einnig, að eftirspurn væri eftir innlendum matvælum og íslenskir bændur seldu alla sína framleiðslu innanlands eða á erlend- um mörkuðum. „Offramleiðslu- tímarnir eru liðnir og flest bendir til þess að eftirspurn eftir matvælum muni halda áfram að aukast og verð- lag fari hækkandi á heimsmarkaði,“ sagði Sindri. Hann sagði, að þrátt fyrir gagn- rýni sem hefði komið fram á land- búnaðarkerfið hér á landi væri það staðreynd, að íslenskur landbúnaður nyti víðtæks stuðnings meðal þjóð- arinnar. Það væri þó umhugsunarefni hvort ekki þurfi að skýra rök bænda betur og kynna fyrir almenningi. Tveir í framboði Sindri gefur ekki kost á sér áfram í embætti formanns samtakanna og verður því nýr formaður kjörinn á aðalfundinum í dag. Tveir hafa boðið sig fram en þeim gæti þó fjölgað fyrir kosninguna. Þeir eru Þórarinn Ingi Pétursson, bóndi á Grýtubakka í Grýtubakka- hreppi, og Einar Ófeigur Björnsson, bóndi í Lóni í Kelduhverfi. Margvísleg rök fyrir styrkjum  Sauðfjárbændur kjósa nýjan formann Sindri Sigurgeirsson ,,Ég styð hana til góðra verka. En svo er annað mál hvort ég sé sammála þeirri vegferð sem ríkisstjórnin er á. Sérstaklega í ESB-málinu sem er nú stærsta málið,“ segir Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna, spurður um stuðning sinn við ríkisstjórnina í kjölfar harðra orða í garð Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra á Alþingi í gær. Þar gerði hann orð forsætisráð- herra um fyrri fiskveiðistjórnar- frumvörp sem hann vann að í ráð- herratíð sinni að umfjöllunarefni. „Ég hef sjaldan heyrt aumari mál- flutning hjá nokkrum forsætisráð- herra en hjá Jóhönnu Sigurðardóttur og þykir það leitt fyrir hennar hönd,“ segir Jón. Ásakanir um ósannindi á báða bóga Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, bar málið fyrst upp í umræðum um störf þingsins. Hann sagði að Jón Bjarna- son, sem er fyrrverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefði haldið magnaða ræðu í fyrrakvöld sem gefið hefði innsýn í vinnubrögð ríkis- stjórnarinnar. Sigmundur sagði Jón hafa lýst því að forsætisráðherra hefði viljað fela að verið væri að vinna að fiskveiðistjórnunarfrumvarpinu þar til búið væri að semja um kjarasamninga. Einnig að Jóhanna hefði ekki viljað sjá frumvarpið þegar Jón hefði komið með það inn í ríkisstjórn. Jóhanna sagði þetta alrangt og í raun hrein ósannindi. Jón Bjarnason hefði haft litla samvinnu við ríkis- stjórnina við vinnu að frumvarpinu og dregið málið. Til þess að reyna að flýta frumvarpsgerðinni þurfti að setja á fót sérstaka ráðherranefnd. Og þegar Jón kom loksins með frumvarpið í ríkis- stjórn vildi hann setja það á vefinn hjá sér áður en ríkisstjórnin ræddi það. Þá sagði Jóhanna að alfarið væri hægt að setja það á reikning Jóns Bjarnasonar hversu seint ríkis- stjórnin komi með sjávarútvegs- frumvarpið inn í þing. Jón hefði verið að dunda við þetta í tvö ár. „Þau höfðu málið á sinni könnu frá því í febrúar fram í maí. Því eru þetta fullkomin ósannindi af hálfu forsætis- ráðherra,“ segir Jón. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokks, velti því svo fyrir sér hvort meirihlutinn stæðist á Al- þingi í ljósi orðaskaks þingmannsins og forsætisráðherra. En jafnframt væri aðkallandi að vita hvort Hreyf- ingin hefði heitið ríkisstjórninni stuðningi. Jón í andstöðu við forystu ríkisstjórnar Stefanía Óskarsdóttir stjórnmála- fræðingur segir að túlka megi gagn- rýni Jóns sem svo að hann sé hluti af andstöðu við forystu ríkisstjórnar. „Gagnrýni Jón Bjarnasonar á störf meirihluta stjórnskipunar- og eftir- litsnefndar Alþingis og á sjávar- útvegsfrumvarpið sýnir að hvorugt þessara mikilvægu mála ríkisstjórn- arinnar nýtur ótvíræðs stuðnings innan stjórnarmeirihlutans. Í ljósi þess má ætla að þessi mál muni taka einhverjum breytingum í meðförum þingsins,“ segir Stefanía. Hún segir að þrátt fyrir að þing- meirihluti sé formlega einungis einn maður hafi ríkisstjórnin enn bakland hjá Hreyfingunni og hjá nokkrum þingmönnum Framsóknar í ein- stökum málum. Ljóst sé að sökum þessa veika meirihluta sé staða Jóns afar sterk og því geti afstaða hans haft mikil áhrif á næstunni. „Ég styð hana til góðra verka“ Morgunblaðið/Golli Í ráðherrastólum Jón Bjarnason, Össur Skarphéðinsson og Jóhanna Sigurðardóttir á þingfundi á liðnu ári.  Harkalegar deilur Jóhönnu Sigurðar- dóttur forsætisráðherra og Jóns Bjarna- sonar fyrrverandi sjávarútvegsráðherra Starfsmenn Reykjavíkurborgar sjást hér hlaða svokallaða unga- gildru. Tilgangur hennar er að beina öndum í gegnum rör sem liggur undir Hringbraut og að Reykjavíkurtjörn. Nokkuð hefur verið um að ökumenn hafi orðið varir við endur á vappi yfir Hring- braut en vonast er til þess að fram- kvæmdirnar í Vatnsmýrinni leiði til þess að svo verði ekki áfram. „Nú er fuglafært undir Hring- brautina. Í stað þess að gera girð- ingu þá settum við upp þennan vegg í staðinn. Það er fugla- vænna,“ segir Þórólfur Jónsson, garðyrkjustjóri Reykjavík- urborgar. Endur geta því andað léttar. Endur í ungagildru Morgunblaðið/Golli Fjórtán einstaklingar, sem starfa við markaðssetningu á íslenskum laxveiðiám erlendis, hafa sent for- sætisráðherra bréf þar sem hvatt er til varúðar og að búsvæði lax og sjóbirtings í Þjórsá verði ítarlega könnuð áður en teknar verði ákvarðanir um frekari virkjanir í ánni. Segja einstaklingarnir í bréfinu að Íslendingar hafi leitt alþjóðlega baráttu fyrir verndun villta laxins í Norður-Atlantshafi. Miklir mögu- leikar séu enn á að auka enn laxa- göngur í ár á Íslandi, m.a. með því að nýta ársvæði þar sem stangveiði hafi ekki verið stunduð, eins og í Þjórsá, með því að auðga búsvæði í ám. M.a. sé hægt með litlum til- kostnaði að greiða götu göngufiska með fiskvegum. Hvatt til varúðar varðandi Þjórsá Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 & Strandgata 25 • Akureyri • sími 456 1185 •www.tonastodin.is Tónastöðin býður upp á mikið úrval hljóðfæra og nótnabóka fyrir allar tegundir tónlistar og leggur áherslu á góða og persónulega þjónustu. Hjá okkur færðu faglega þjónustu, byggða á þekkingu og áratuga reynslu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.