Morgunblaðið - 30.03.2012, Qupperneq 20
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MARS 2012
Verkalýðssamtök efndu í gær til allsherjarverk-
falls á Spáni til að mótmæla breytingum sem rík-
isstjórnin ætlar að gera á vinnulöggjöfinni.
Ríkisstjórnin segir að markmiðið með breyting-
unum sé að draga úr atvinnuleysi í landinu.
Mikil röskun var á samgöngum þar sem flutn-
ingabílstjórar, starfsmenn flugfélaga og lesta
tóku þátt í verkfallinu. Verkalýðssamtökin
sögðu að margir starfsmenn fyrirtækja á borð
við bílaverksmiðjur hefðu lagt niður vinnu.
Spænska ríkisstjórnin sagði hins vegar að þátt-
takan í verkfallinu hefði ekki verið mikil.
Gríðarlegur efnahagsvandi blasir við hægri-
stjórn Mariano Rajoy forsætisráðherra sem
hyggst í dag kynna áform sín um stórfelldan
sparnað. Mikill halli er á ríkissjóði og nærri
fjórðungur vinnuaflsins er án atvinnu. Hvergi í
Evrópusambandinu er atvinnuleysi eins mikið og
á Spáni.
Á myndinni eru verkfallsmenn sem tóku þátt í
mótmælum í borginni Burgos.
AFP
Röskun vegna verkfalls á Spáni
Fjöldamorðing-
inn Mohamed
Merah var í gær
borinn til grafar
í heimborg sinni,
Toulouse í
Frakklandi. Áð-
ur hafði borgar-
stjórinn í Tou-
louse lagst gegn
því að fjöldamorðinginn yrði jarð-
aður innan borgarmarkanna. Nicol-
as Sarkozy, forseti Frakklands,
kvaðst hins vegar vilja að fjölda-
morðinginn yrði jarðaður í Frakk-
landi eftir að alsírsk stjórnvöld
höfðu neitað að taka við líki Merah
af öryggisástæðum. Merah varð
þremur börnum, kennara og þrem-
ur hermönnum að bana fyrr í mán-
uðinum.
FRAKKLAND
Fjöldamorðinginn
borinn til grafar
Sten Tolgfors,
varnarmálaráð-
herra Svíþjóðar,
sagði af sér í
gær eftir að
skýrt var frá því
sænsk stofnun
hefði ætlað að
hjálpa einræðis-
stjórninni í
Sádi-Arabíu að byggja vopna-
verksmiðju. Tolgfors hyggst
halda þingsæti sínu og Catharina
Elmsäter-Svärd, ráðherra innviða
í sænsku stjórninni, verður
varnarmálaráðherra til bráða-
birgða.
SVÍÞJÓÐ
Varnarmálaráðherra
varð að segja af sér
Átján ára stúlka í Úkraínu, Oksana
Makar, sem þrír menn nauðguðu 8.
mars, lést á sjúkrahúsi í gær. Þrír
ungir menn nauðguðu stúlkunni og
reyndu síðan að kyrkja hana. Þeir
vöfðu nakinn líkama stúlkunnar inn
í teppi og skildu hana eftir á yfir-
gefinni byggingarlóð þar sem þeir
kveiktu í henni. Stúlkan komst lífs
af. Lögreglan sleppti tveimur pilt-
anna úr haldi en foreldrar þeirra
höfðu tengsl við stjórnvöld í land-
inu. Þeir voru handteknir að nýju
eftir að málið vakti þjóðarathygli.
Tveir menn hafa verið ákærðir fyr-
ir nauðgun og einn fyrir nauðgun
og tilraun til manndráps.
ÚKRAÍNA
Stúlka lést eftir
grófa hópnauðgun
Fjórar konur hafa verið ákærðar
fyrir að hafa ráðist að amish-fólki í
Ohio-ríki og skorið skegg þess og
hár. Konurnar eru í amish-
söfnuðinum og nátengdar leiðtoga
hans. Áður höfðu tólf manns, bæði
karlar og konur, verið handtekin
vegna samskonar árása. Meðal
þeirra er Samuel Mullet, leiðtogi
amish-safnaðarins í Ohio.
Konurnar réðust að fólkinu og
skáru skegg karlanna og höfuðhár
kvennanna með valdi. Karlmönnum
sem eru amish-trúar er skylt að
vera með alskegg.
BANDARÍKIN
Konur ákærðar fyrir
að skera skegg karla
Bagdad. AFP. | Fulltrúar arabaríkja
komu saman í Bagdad í gær og
deildu um hvort sjá ætti sýrlenskum
uppreisnarmönnum fyrir vopnum.
Forsætisráðherra Íraks, Nuri al-
Maliki, lagðist gegn slíkri aðstoð við
uppreisnarmennina og sagði að hún
myndi leiða til langvinns stríðs með
óbeinni þátttöku erlendra ríkja.
Stjórnvöld í Katar og Sádi-Arabíu
eru hins vegar hlynnt því að upp-
reisnarmönnunum verði send vopn
til að þeir geti steypt sýrlensku
stjórninni af stóli. Fulltrúar annarra
ríkja á fundinum hvöttu til þess að
reynt yrði til þrautar að leiða blóðs-
úthellingarnar í Sýrlandi til lykta
með friðsamlegum hætti.
Fyrsti leiðtogafundurinn
í Bagdad í rúm 20 ár
Þetta er í fyrsta skipti í rúm tutt-
ugu ár sem Arababandalagið heldur
leiðtogafund í Bagdad og um 100.000
her- og lögreglumenn tóku þátt í ör-
yggisgæslunni. Katar og Sádi-Ar-
abía eru á meðal Persaflóaríkja sem
sniðgengu leiðtogafundinn að mestu.
Löndin tvö sendu aðeins stjórnarer-
indreka og stjórn Katar sagði að það
hefði verið ákveðið til að senda
stjórnvöldum í Írak „skilaboð“.
Kúveit var eina Persaflóaríkið
sem sendi þjóðhöfðingja sinn á fund-
inn. Þetta er í fyrsta skipti sem leið-
togi Kúveits heimsækir Írak frá því
að Saddam Hussein sendi her sinn
inn í Kúveit árið 1990.
Aðeins níu aðildarlanda Araba-
bandalagsins sendu leiðtoga sinn á
fundinn.
Maliki sagði að reynslan í Írak
sýndi að ef uppreisnarmönnunum í
Sýrlandi yrði séð fyrir vopnum
myndi það leiða til stríðs með óbeinni
þátttöku erlendra ríkja. „Þessi kost-
ur leiðir til erlendrar hernaðaríhlut-
unar í Sýrlandi og brýtur þannig í
bága við fullveldi bræðra okkar í
arabalandinu.“
Deilan um hvort vopna eigi upp-
reisnarmennina endurspeglar tog-
streitu milli súnníta og sjíta. Súnn-
ítar eru mikill meirihluti múslíma í
heiminum, en sjítar eru í meirihluta í
Írak og Íran.
Sýrlenska stjórnin nýtur stuðn-
ings stjórnvalda í Íran og Írak.
Hreyfingar sjíta í Líbanon, þeirra á
meðal Hizbollah, hafa einnig stutt
stjórn Sýrlands. Talið er að það yrði
mikið áfall fyrir Hizbollah og Írana
og myndi veikja samstarf þeirra ef
sýrlenska stjórnin félli.
Varað við langvinnu stríði
Leiðtogafundur í Bagdad endurspeglaði klofning í Arababandalaginu í afstöð-
unni til Sýrlands Deilt um hvort vopna eigi sýrlensku uppreisnarmennina
Fallegt
fermingaskart
Laugavegi 13 | 101 Reykjavík | Sími 561 6660 | gullkunst.is