Morgunblaðið - 30.03.2012, Page 22

Morgunblaðið - 30.03.2012, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MARS 2012 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Árás JóhönnuSigurð-ardóttur forsætisráðherra á fyrrverandi ráð- herra í ríkisstjórn sinni úr ræðustóli Alþingis í gær er án efa einsdæmi í þingsögunni. Fyrirlitningin í orðum for- sætisráðherra var slík að með ólíkindum verður að teljast. Um ræðu Jóns Bjarnasonar, sem varð tilefni umræðunnar í gær, sagði Jóhanna: „… sem ég hlífði sjálfri mér við að hlusta á“. Nú er það raunar svo að Jó- hanna er að þessu leyti afar sérhlífin, því að hún hlífir sér við svo að segja öllum um- ræðum á Alþingi og skiptir þar engu hvort um er að ræða stór mál eða smá. Eftir að hafa sýnt fyrrver- andi ráðherra ríkisstjórnar sinnar þennan dæmalausa dónaskap hélt hún því fram að ástæða þess að ríkisstjórnin væri nú undir lok kjörtímabils- ins með fiskveiðistjórn- unarfrumvarp fyrir þinginu væri sú að Jón Bjarnason hefði dregið málið og verið seinn í allri vinnu með það, eins og hún orðaði það. Hún hafi þurft að „setja á sérstakar ráðherra- nefndir til að reyna að flýta þessu máli til að það hefði eðli- legan gang. Það stendur ekki steinn yfir steini í þessu hjá þingmanninum,“ sagði hún um Jón Bjarnason. Og árásirnar héldu áfram, því að næst fór hún að lýsa því yfir að Jón hefði farið með ósannindi úr ræðustól þingsins og lauk sér svo af með því að ítreka að tafirnar væru Jóni að kenna: „Var hann ekki að dunda við þetta mál í tvö ár með þeirri nið- urstöðu sem við sáum á síðasta þingi?“ Ekki er að undra að margir þingmenn hafi hrokkið við að hlusta á þennan reiðilestur Jóhönnu út í fyrr- verandi ráðherra í hennar eigin ríkisstjórn. Og ekki þarf heldur að koma á óvart að Jón Bjarna- son skyldi kveðja sér hljóðs og benda á að ummæli forsætis- ráðherra hafi í senn verið full- komlega óboðleg og röng. Sjáv- arútvegsfrumvarpið og vinnan við það hafi verið sett í nefnd undir forsæti Guðbjarts Hann- essonar og verið þar í hálft annað ár, nærri ári lengur en ætlað hafi verið. Jón sagði að lokum að hann hefði „sjaldan heyrt aumari málflutning hjá nokkrum for- sætisráðherra“ og er það ekki ofmælt. Óþarft er að deila um hvort Jóhanna Sigurðardóttir hafi með árásum sínum farið yfir strikið og orðið sér til skamm- ar. Um það efast enginn, en hinu geta menn velt fyrir sér hvað fær forsætisráðherra til að missa svo algerlega stjórn á sér, ausa úr skálum reiði sinnar og reyna að koma eigin vand- ræðagangi yfir á fyrrverandi ráðherra ríkisstjórnar sinnar. Og þá hljóta menn að leiða hug- ann að veikri stöðu ríkisstjórn- arinnar, bæði málefnalega og hvað þingstyrk varðar. Getur eitthvað annað en veik staða ríkisstjórnarinnar skýrt svo ofsafengna og vanstillta árás? Munu þingmenn VG leyfa forsætisráð- herra slíka fram- komu við flokks- bróður sinn?} Fullkomin fyrirlitning Þingnefnd hefurmánuðum saman haft plagg frá hópi úr ógiltum kosningum til með- ferðar. Þó hefur þingnefndin ekki tekið efn- islega á neinu atriði úr þessu einkennilega plaggi. Hver viðmælandi nefnd- arinnar af öðrum, og þá ekki síst sérfræðingar í stjórnlaga- rétti, hafa sagt nefndarmönn- um að plaggið væri með öllu ótækt sem grundvöllur að stjórnarskrá. Þingnefndin hef- ur þó ekki gert tilraun til að breyta plagginu, enda orðið ljóst að endursemja verður það frá upphafi til enda. Slíkt tæki í það minnsta eitt ár, að sögn eins helsta stjórnlagafræðings- ins sem fyrir nefndina kom. Stjórnarsinnum er fyrir löngu orðið ljóst að þeir eru með ónýtt plagg í höndunum sem aldrei verður grundvöllur að stjórnarskrá lands- ins. En verkurinn er að einn af ör- flokkum þingsins hefur tekið ástfóstri við vitleys- una og setur afgreiðslu hennar sem skilyrði fyrir stuðningi við að dauðastríð ríkisstjórn- arinnar verði dregið á langinn. Lausnin var því sú að búa til uppkast að spurningalista, lík- um þeim sem skoðana- kannanafyrirtæki vinna úr og láta almenning kjósa um spurn- ingarnar og kalla það þjóð- aratkvæðagreiðslu. Þó hefði sú atkvæðagreiðsla enga þýðingu fyrir örlög stjórnarskrárinnar. Þetta gæti hins vegar dugað Hreyfingunni þar til hún næði áttum eftir einhverja mánuði. Þegar þingheimur vill ekki allur taka þátt í vitleysunni, þá er það kallað málþóf! Spurningaleikur um lokleysu „stjórn- lagaráðs“ er háðung} Gustuk að þæfa lokleysu T annheilsu íslenskra barna er ábóta- vant. Hún er í sjötta neðsta sæti af öllum OECD-ríkjunum, sem eru 34 talsins. Rúmlega helmingur sex ára barna á Íslandi er með all- ar tennur heilar, miðað við 75% jafnaldra þeirra í Danmörku. En þetta er ekkert nýtt og er ekki fylgi- fiskur kreppunnar, eins og sumir vilja halda fram. Árið 2007, á hinu mikla ári góðæris, var tannheilsa íslenskra barna og unglinga verst á öll- um Norðurlöndunum. Hver heilbrigðisráðherrann á fætur öðrum hefur undanfarin ár heitið að- gerðum, án nokkurra efnda. Þetta er auðvit- að ekki í lagi. Ástæðan er meðal annars sögð vera tak- mörkuð niðurgreiðsla á þjónustunni, að það valdi því að foreldrar hafi hreinlega ekki efni á því að fara með börn sín til tannlæknis. Aldrei hafa feng- ist viðunandi svör á því hvers vegna þjónusta tannlækna er ekki niðurgreidd til jafns við aðra heilbrigðisþjónustu. En hvernig á að leysa þetta? Jú, lagt er til að leik- skólakennarar bursti tennur barnanna. Það virðist vera ákaflega sterk tilhneiging til að varpa allri ábyrgð, öllum verkefnum yfir á skóla og leikskóla þegar einhverjar sláandi staðreyndir verða landslýð kunnar. Fari eitthvað úrskeiðis, þá sé það vegna þess að því hafi ekki verið nógu vel sinnt í skólanum eða leikskól- anum. Karlrembu og kvenfyrirlitningu má samkvæmt þessari hugmyndafræði stroka út með því að kenna kynjafræði í skólum, til að koma í veg fyrir þunganir unglingsstúlkna á að efla kyn- fræðslu í skólum og svo bjarga megi tönnum íslenskra barna frá eyðingu eiga leikskóla- kennararnir að bursta þær. Það segir sig sjálft að skólastarf, á hvaða skólastigi sem er getur ekki tekið mið af öll- um þeim þörfum sem hugsanlega eru van- ræktar af þeim sem standa barninu næst af ýmsum ástæðum, hvort sem um er að ræða uppeldislegar eða heilsufarslegar þarfir. Skól- ar eru engar allsherjarþjónustumiðstöðvar, þeir eru mennta- og uppeldisstofnanir, þar sem áherslan verður að vera á hið fyrrnefnda. Það er svo ótal margt sem felst í uppeldi og umönnun barna. Almennt hreinlæti hlýtur að vera einn af þeim þáttum og að ætlast til þess að störfum hlaðnir leikskólakennarar sinni tannburstun barna er í besta falli hláleg hugmynd og reyndar fremur ólíklegt að meirihluti foreldra myndi fallast á það. Eigi að gera gangskör að því að bæta tannheilsu ís- lenskra barna þýðir lítið að leikskólakennarar bursti tennur þeirra, þegar þau eru methafar í neyslu gos- drykkja og viðbætts sykurs, sem þau neyta væntanlega heima hjá sér en ekki í leikskólanum. Þegar einar óheilbrigðustu neysluvenjur sem þekkjast í heiminum fara saman við takmarkaða niðurgreiðslu og hugmyndir um að skólar og leikskólar eigi að bera alla ábyrgð, þá er ekki von á góðu. annalilja@mbl.is Anna Lilja Þórisdóttir Pistill Leikskóli burstar tennur STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Karl Blöndal kbl@mbl.is Fyrir hæstarétti Bandaríkj-anna fór fram í vikunniorrusta, sem getur skiptsköpum bæði fyrir repú- blikana og demókrata. Löggjöf stjórnar Baracks Obama Banda- ríkjaforseta um heilbrigðismál er í húfi. Eitt af markmiðum laganna er að tryggja sem flestum Bandaríkja- mönnum heilsugæslu. Það á að gera með því að skylda ríki Bandaríkjanna til að bjóða þeim, sem minnst hafa milli handanna, aðild að heilsugæslu- kerfinu Medicaid. Lögin taka gildi 2014 og mun alríkið í fyrstu greiða allan kostnað, en síðan verður hann stigminnkaður niður í 90% hlutdeild. Ríki, sem ekki virða lögin, eiga yfir höfði sér að öll fjárframlög alríkisins til þeirra í heilbrigðismálum verði stöðvuð. 26 ríki hafa stefnt og segja að hér sé um að ræða þvingandi aðgerðir al- ríkisins og þær standist ekki stjórn- arskrá. Vísað hefur verið til þess að í úr- skurði frá 1987 þar sem hæstiréttur staðfesti lög um að það væri skilyrði fyrir því að ríki fengju alríkisframlög til þjóðvegagerðar að þau hækkuðu lágmarksaldur til áfengiskaupa í 21 ár sagði þáverandi forseti réttarins, Wiliam H. Rehnquist, að í sumum til- fellum gæti fjárhagsleg pressa þings- ins verið svo afgerandi að hún færi „yfir strikið þar sem þrýstingur yrði að þvingun“. Reynt að ráða í mál dómaranna Niðurstaða hæstaréttar mun ekki liggja fyrir fyrr en í júní, en menn hafa reynt að ráða af málflutningnum á mánudag, þriðjudag og miðvikudag hvernig muni fara. Eins og Jeffrey Toobin, blaðamað- ur tímaritsins The New Yorker, sem skrifað hefur bók um hæstarétt Bandaríkjanna, bendir á má vænta þess að dómararnir fjórir, sem demó- kratar skipuðu í dómstólinn, Ruth Bader Ginsburg, Stephen Breyer, Sonia Sotomayor og Elena Kagan, muni úrskurða að lögin skuli standa. Repúblikanar skipuðu fimm dómara við réttinn. Toobin telur engan vafa leika á að Clarence Thomas muni greiða atkvæði gegn lögunum. Mest- ar líkur séu á að Anthony Kennedy muni styðja lögin, en ekki sé heldur víst með afstöðu Johns Roberts, for- seta hæstaréttar, Antonins Scalia og Samuels Alitos. Sérfræðingar ráða í spurningar dómaranna eins og spákonur í kaffi- korg. Athygli vakti þegar Scalia spurði Donald Verilli, verjanda stjórnarinnar, hvort það að hægt væri að skylda fólk til að vera með heilsutryggingu þýddi að „þvinga mætti fólk til að kaupa brokkolí“. Þá vakti athygli að Roberts spurði hvers vegna ríkið gæti þá ekki skyldað fólk til að kaupa farsíma til að geta hringt í neyðarþjónustu. Scalia tók á hinum pólitíska þætti málsins þegar hann spurði Paul D. Clement, sem fer með málið fyrir rík- in, hvort það væri „tilviljun að repú- blikanar væru ríkisstjórar í öllum ríkjunum 26, sem eru á móti, og demókratar ríkisstjórar í ríkjunum, sem styðja [lögin]“. „Það er sam- hengi þar á milli,“ svaraði Clement. Stuðningsmenn laganna velta því fyrir sér hvers vegna deilt sé um þetta mál þar sem alríkið muni borga nánast allan kostnaðinn af víðtækari heilsutryggingu. Andstæðingar segja að málið snúist um hótunina um að ríkin gætu tapað þeim fram- lögum, sem þau fá þegar. Tvennt til viðbótar í lögunum gæti talist af svipuðum toga. Annars veg- ar er tryggingafyrirtækjum bannað að vísa umsækjendum frá og hins vegar mega þau ekki taka tillit til fyr- irliggjandi krankleika. Þá er stór spurning í málinu hvort úrskurður um að ekki standist stjórnarskrá að skylda fólk til að vera með heilsutryggingu þýði að lögin í heild sinni falli um sjálf sig. Tekist á um stjórnar- skrá og heilsugæslu Reuters Engar myndavélar Dómarar í hæstarétti Bandaríkjanna hlýða á mál Pauls Clements, lögmanns ríkjanna sem vilja hnekkja heilbrigðislögunum. Á gervihnattaöld er allt í beinni útsendingu nema Landsdómur og hæstiréttur Bandaríkjanna. Meðan á málflutningi stóð um það hvort heilbrigðislöggjöf Baracks Obama Bandaríkja- forseta stæðist stjórnarskrá Bandaríkjanna var lagt bann við öllu bloggi, tísti, myndatökum og beinum útsendingum. Sennilega hefur ekki ríkt jafn mikil spenna um málflutning fyrir hæstarétti Bandaríkjanna síðan hann fjallaði um talningu atkvæða í Flórída í forsetakosn- ingunum árið 2000. Til að koma til móts við kröf- ur um beinar útsendingar var upptaka af málflutningi birt að honum loknum. Ekkert tíst í dómsalnum EKKI Í BEINNI Heilbrigðislöggjöfinni mótmælt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.