Morgunblaðið - 10.04.2012, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2012
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Alveg mátulegur
Heimilis
GRJÓNAGRAUTUR
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
SÍ
A
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Málið er í góðum farvegi. Reykja-
víkurborg, fjármálaráðuneytið og
Tollstjórinn eru að ræða næstu
skref. Nú eru uppi hugmyndir um
aðrar lausnir en fyrst voru lagðar
fram fyrir fimm mánuðum og fólu í
sér að rampur væri byggður sem
klyfi bygginguna í tvennt milli norð-
urs og suðurs,“ segir Gunnar Há-
konarson, framkvæmdastjóri Kola-
portsins, um þau umskipti sem hafa
orðið í málum markaðarins.
„Hugmyndin gekk út á ramp og
bílastæði á þakinu á Tollhúsinu. Sú
lausn hefði verið hræðileg fyrir
Kolaportið enda hefði þetta orðið
risaferlíki sem verslunin ætti erfitt
með að laga sig að.
Nú gæti hins vegar farið svo að
samið yrði um að fara frekar í breyt-
ingar á jarðhæðinni. Ef farið yrði í
slíkar breytingar myndi flatarmál
Kolaportsins ekki minnka heldur
yrði aðeins um að ræða breytingu á
fyrirkomulagi jarðhæðarinnar. Við
myndum eftirláta einhverja fer-
metra og fá aðra í staðinn.“
Spurður hvaða svæði Kolaportið
myndi þá leggja undir sig svarar
Gunnar því til að horft sé til norð-
austurhluta Tollhússins, nánar til-
tekið svæðis þar sem uppboð á veg-
um Tollstjórans fara fram.
Mæta hvarvetna hlýhug
Gunnar segir að þótt málin þokist
hægt sé hann vongóður um að málið
fái að lokum farsæla lausn.
„Þetta gerist allt mun hægar en ég
reiknaði með. Fyrir fimm mánuðum
tilkynnti leigusalinn, Fasteignir
ríkissjóðs, að rampurinn yrði byggð-
ur. Við leituðum þá til Reykjavíkur-
borgar, Tollstjórans og fjármála-
ráðuneytisins og höfum alls staðar
mætt hlýhug. Þess vegna hefur mál-
ið tekið nýja stefnu.“
Allt stefnir í
að Kolaportið
verði um kyrrt
Tillaga um ramp virðist úr sögunni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Úrval Finna má margvíslegan varning í Kolaportinu, þ.m.t. bækur.
23 ára
» Kolaportið var opnað árið
1989 og var upphaflega til
húsa í bílageymslum Seðla-
banka Íslands við Arnarhól.
» Fimm árum síðar flutti Kola-
portið sig um set í Tollhúsið við
Tryggvagötu.
» Leigðir eru út sex fermetra
básar á gólffletinum og kennir
þar jafnan ýmissa grasa.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Það er verið að kortleggja stöðuna
eins og hún var upp úr áramótum.
Það sem skiptir máli við alla ákvarð-
anatöku er að fá sem gleggsta mynd
af stöðunni í núinu. Þess vegna höf-
um við verið í samstarfi við Ríkis-
skattstjóra um að fá eins nýjar upp-
lýsingar um stöðuna og mögulegt er
og vonandi verður því starfi lokið á
næstu dögum,“ segir Steingrímur J.
Sigfússon, efnahags- og við-
skiptaráðherra, um næstu skref
vegna skuldavanda heimilanna.
„Þegar þessi gögn liggja fyrir
verður hægt að svara spurningum
um hvað verður gert í framhaldinu.
Síðan mun það skipta máli hvernig
fer með vaxtabætur og fleira í fram-
haldinu. Mér telst til að samtals hafi
ríkið bætt í vaxtabætur á þrem árum
sem nemur 20 milljörðum króna.“
Horft til barnabóta
Steingrímur segir svigrúm
stjórnvalda til aðgerða í þágu illa
skuldsettra heimila munu fara eftir
stöðu ríkissjóðs. „Hörð samkeppni“
sé um fjárveitingar frá ríkinu.
„Auðvitað er öllum ljóst að þús-
undir heimila eru enn með mjög
þunga skuldabyrði og hvaða stuðn-
ing verður hægt að veita þeim í
gegnum tæki eins og vaxtabætur og
mögulega endurskoðun á barnabót-
um og öðru slíku mun fara eftir að-
stæðum,“ segir hann og bendir á að
frá hruni hafi nærri 15.000 heimili
losnað úr yfirveðsetningu vegna af-
skrifta og aðgerða stjórnvalda. Þá
hjálpi hækkandi fasteignaverð til.
Undirbúa næstu skref
fyrir skuldug heimili
Morgunblaðið/Ómar
Vandi Mörg heimili eru skuldug.
Efnahagsráðherra
fer yfir stöðuna
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Gestir tónlistarhátíðarinnar Aldrei
fór ég suður, sem fram fór um
páskana á Ísafirði, urðu margir
hverjir veðurtepptir í gær þar sem
mikil snjókoma hamlaði flugi. Þó
tókst að fljúga þrjár ferðir til Ísa-
fjarðar í gær og flytja þaðan 150
farþega en áætlað var að flytja 300
farþega. Ingi Þór Guðmundsson,
sölu- og markaðsstjóri Flugfélags
Íslands, sagði í gærkvöldi að ætl-
unin væri að fljúga fimm sinnum til
Ísafjarðar í dag og því ættu allir að
komast til síns heima.
Snjóþekja eða krapi var víða á
vegum á Vestfjörðum í gær, skaf-
renningur og skyggni mjög lítið og
lentu ökumenn margir í vandræð-
um á Steingrímsfjarðarheiði þar
sem ástandið var einna verst, skv.
upplýsingum frá Vegagerðinni en
um fimm hundruð bílar fóru yfir
heiðina og Þröskulda yfir daginn
sem þykir mikill fjöldi. Þurftu fé-
lagar úr björgunarsveitinni Dag-
renningu á Hólmavík að aðstoða
fjölda ökumanna sem voru í vand-
ræðum á heiðinni og höfðu m.a. ek-
ið bílum sínum út af vegi. Um 100
bílar voru staddir milli Ögurs og
Þröskulda í þæfingsfærð rétt fyrir
kl. 18 í gær, skv. upplýsingum frá
lögreglu.
Um morguninn sóttu björg-
unarsveitarmenn Dagrenningar
tvær erlendar konur á Þröskulda
sem voru skelkaðar og réðu ekki við
aðstæður auk þess sem björg-
unarsveitin Brimrún á Eskifirði að-
stoðaði tvo erlenda ferðamenn sem
óku bíl sínum út af veginum
skammt frá skíðasvæðinu. Björg-
unarsveitarmenn aðstoðuðu á annan
tug ökumanna á Steingrímsfjarð-
arheiði yfir daginn auk þess að að-
stoða fólk á Þröskuldum. Lögreglan
á Vestfjörðum hafði í nógu að snú-
ast í vonskuveðrinu og beindi þeim
tilmælum til fólks sem ekki þyrfti
nauðsynlega að ferðast að halda
kyrru fyrir. Árekstur varð við Arn-
gerðareyri á fjórða tímanum og
varð að loka veginum en engin slys
urðu á fólki. Björgunarsveitarmenn
aðstoðuðu lögreglu þar við að flytja
fólk af staðnum. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Slysavarnafélaginu
Landsbjörg var páskahelgin þó
fremur róleg á heildina litið.
Víðar var þungfært á landinu en
á Vestfjörðum – þó ekki hafi mynd-
ast viðlíka ástand og þar – m.a. á
Möðrudalsöræfum og Vopnafjarð-
arheiði seinni part dags sem og á
Fjarðarheiði og Öxnadalsheiði. Um-
ferðin gekk hins vegar greiðlega á
Suðurlandi yfir daginn og að mestu
greiðlega milli Akureyrar og
Reykjavíkur, að Öxnadalsheiði und-
anskilinni. Bálhvasst var í Stykkis-
hólmi en verkefni lögreglu voru þó
ekki teljandi þar og umferð gekk
þar greiðlega.
Vandræðaástand á
Steingrímsfjarðarheiði
Veður hamlaði flugi og umferð á Vestfjörðum í gær
Ljósmynd/Óli Dóri
Óhapp Bíll sem endaði utan vegar í Skötufirði í gær.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Á gangi Aðkomumenn í Ísafjarðarbæ á gangi. Fjöldi gesta tónlistarhátíð-
arinnar Aldrei fór ég suður komst ekki suður með flugi í gær.