Morgunblaðið - 10.04.2012, Side 10
10 DAGLEGT LÍFÚtivist og hreyfing
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2012
Listræn tilþrif sáust á skauta-
svellinu í frönsku borginni Nice
fyrir skömmu, en þar keppti
fjöldi listskautahlaupara í hinu
svokallaða ISU 2012 World Fig-
ure Skating-mótinu, eða al-
þjóðlegu móti listskautahlaup-
ara. Það er sannarlega ekkert
grín að missa fótanna á ísnum.
Líkt og sést hér til hliðar á einum
hlauparanum sem hefur hruflað
hnéð illa. Því er eins gott að vera
búinn að æfa sig vel og í þessu
sem annarri samvinnu skiptir
miklu máli að geta treyst þeim
sem á móti manni er.
Alþjóðlegt listskautahlaupamót
Pörin svifu glæsileg um svellið
AFP
Liðug Það krefst æfingar að geta vafið sig svona utan um dansherrann.
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
FÍFL eða Félag íslenskrafjallalækna kallast hæfi-lega formlegur fé-lagsskapur lækna, fjöl-
skyldna þeirra og vina sem þykir
gaman að útivist og fjallgöngum í
góðra vina hópi. Inngönguskilyrðin
eru ekki ýkja ströng en í félagið
eru skráðir um 120 meðlimir og
reynt að hafa ferðirnar við allra
hæfi. Tómas Guðbjartsson, hjarta-
skurðlæknir og prófessor, er einn
af forkólfum félagsins.
Íslensk náttúra heillaði
„Ég gekk til liðs við FÍFL
þegar ég kom heim úr sérnámi
fyrir sex árum, en Gunnar Guð-
mundsson lungnalæknir var í for-
svari og átti hugmyndina að nafn-
inu. Ég hafði sjálfur verið 12 ár
erlendis, en hafði á námsárum
mínum hér heima unnið sem fjalla-
leiðsögumaður. Þá voru aðallega
erlendir fjallgöngumenn á ferðinni
á hálendinu en þegar ég flutti
heim hafði þetta breyst og virtist
sem hálfgert fjallgönguæði hefði
runnið á landann. Við félagarnir
hrifumst með og hefur félagið síð-
an vaxið með hverju árinu. Aðal-
lega höfum við einbeitt okkur að
göngum hér heima en einnig geng-
ið á Kilimanjaro og Monte Rosa
þar sem við stunduðum rannsóknir
á háfjallaveiki,“ segir Tómas.
Gengið á ýmsa tinda
Nokkrir í félaginu eru tölu-
vert á gönguskíðum og flestir for-
kólfar félagsins komnir með fjalla-
skíði líka sem Tómas segir vera
nýjasta æðið í hópnum. Þá eru sett
skinn undir skíðin, gengið upp og
síðan brunað niður. Starfsemi
FÍFL er mest á vorin en aðal-
fundur félagsins verður, eins og
oft áður, haldinn á sumardaginn
fyrsta á tindi Eyjafjallajökuls.
Hingað til hefur veðrið oftast leik-
ið við félagsmenn ef frá er skilið
eldgos og segist Tómas ekki búast
við öðru en fundurinn geti orðið á
tindinum að vanda. Í apríl og maí
er síðan haldið af stað í jöklagöng-
ur. Hefur hópurinn m.a. farið á
Hvannadalshnjúk, Hrútfellstinda,
FÍFL klífur fjöll og
tinda á hálendinu
FÍFL eða Félag íslenskra fjallalækna kallast félagsskapur lækna, fjölskyldna
þeirra og vina sem þykir gaman að útivist og gengið hafa saman á hæstu tinda
landsins. Talist getur nokkuð öryggt að ferðast í þessum hópi en innan hans er
bæði að finna ýmiss konar lækna og hjúkrunarfræðinga.
Ganga Á leið á Miðfellstind í glimrandi góðu veðri.
Nú er liðin páskatíð og ekki verður
horft fram hjá því að þú borðaðir
aðeins of mikið um liðna helgi.
Mannslíkaminn er búinn til fyrir
hreyfingu og mannskepnan er, öðru
fremur, byggð til langhlaupa sé tek-
ið mið af öðrum dýrategundum. Fyr-
ir vikið er tilvalið að reima á sig
hlaupaskóna og byggja upp þolið.
Helstu mistök margra eru að fara út
án þess að hafa markmið með því
sem þeir eru að gera. Með því að
koma sér upp búnaði sem auðveldar
þér að ná þessu markmiði ertu um
leið mun líklegri til þess að ná því.
Á runkeeper.com má nálgast
hlaupaforrit sem tengt er við gervi-
hnött. Það skráir niður allar ferðir
þínar á hlaupum og segir þér hversu
mikið og hversu hratt þú hleypur.
Þessi eiginleiki gerir hlaup mun
skemmtilegri og gefur þér heildar-
yfirsýn yfir þann árangur sem þú
nærð. Hægt er að nálgast þetta for-
rit og önnur lík í gegnum farsíma.
Vefsíðan www.runkeeper.com
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Á ferð Útihlaup veitir vellíðan og getur verið góð skemmtun.
Farðu út að hlaupa
Á laugardaginn næstkomandi,
14. apríl, hefst 34. Flóahlaup
UMF Samhygðar við Félagslund,
Gaulverjabæjarhreppi. Að þessu
sinni er hlaupið tileinkað minn-
ingu Unnar Stefánsdóttur, frjáls-
íþróttakonu úr UMF Samhygð.
Vegalengdir eru 3 km með tíma-
töku, 5 km með tímatöku og 10
km með tímatöku. Skráning-
argjald er 1.000 kr fyrir 14 ára
og yngri og 2.000 kr fyrir 15 ára
og eldri. Athugið að posi verður
ekki á staðnun en innifalið í
skráningargjaldinu er hið víð-
fræga og glæsilega hlaðborð
þeirra Flóamanna. Nánari upp-
lýsingar má finna á hlaup.is.
Endilega …
… sprettið úr spori í Flóahlaupi
Sprettur Hvutti vill stundum með.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Svarið við spurningu dagsins
HVAÐ ER Í MATINN?
Suðurlandsbraut 10, 108 Rvk - Sími 533 1300 - fylgifiskar@fylgifiskar.is - fylgifiskar.is
Tilbúnir fiskréttir · Ferskur fiskur
Heitur matur í hádeginu · Veisluþjónusta