Morgunblaðið - 10.04.2012, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2012
H
a
u
ku
r
0
9
b
.1
1
Guðni Halldórsson
lögfræðingur,
gudni@kontakt.is
Haukur Halldórsson hdl.
haukur@kontakt.is
Brynhildur Bergþórsdóttir
rekstrarhagfræðingur,
lögg. verðbr.- og fasteignasali,
brynhildur@kontakt.is
Gunnar Svavarsson
viðskiptafræðingur,
gunnar@kontakt.is
Jens Ingólfsson
rekstrarhagfræðingur,
jens@kontakt.is
Sigurður A.
Þóroddsson hrl.
sigurdur@kontakt.is
Forgangslisti er nýjung fyrir kaupendur og fjárfesta.
Skráning á www.kontakt.is
• Skráðu þig á forgangslista og við sendum þér reglulega upplýsingar í
tölvupósti um tækifæri sem við getum ekki sett í auglýsingar.
Upplýsingar og skráning á www.kontakt.is.
• Heildverslun með vinsælar snyrtivörur fyrir fagfólk. Ársvelta 60 mkr. Góð
afkoma.
Rótgróið gólfefnafyrirtæki í mjög góðum rekstri. Ársvelta 200 mkr. EBITDA 20
mkr.
Innflutnings- og framleiðslufyrirtæki með matvörur. Ársvelta 330 mkr.
Stálsmiðja sem framleiðir staðlaðar vörur fyrir sjávarútveg. Stöðug velta og
vel tækjum búið. Hægt að flytja hvert á land sem er og hentar vel sem viðbót
við starfandi vélsmiðju.
Rótgróið bakarí með nokkrar verslanir.
Verslun í Kringlunni með vinsælar sérvörur. Góð afkoma.
Glæsilegur veitingastaður á besta stað í Reykjavík. Góð velta og afkoma.
Innflutningsfyrirtæki með vörur fyrir gróðurhús. Ársvelta 100 mkr. og mjög
vaxandi. Góð afkoma.
Heildverslun með vinsælar sérvörur. Ársvelta 70 mkr. EBITDA 15 mkr.
Stórt þjónustufyrirtæki í ræstingum. Traustir viðskiptavinir og góð afkoma.
Mjög spennandi innflutningsfyrirtæki með vörur fyrir kæliiðnaðinn.
Heildsala með þekkt merki í tískufatnaði. Selur vörur í 20 verslunum um land
allt, auk eigin verslunnar í Kringunni og outlets á besta stað. Ársvelta um
250 mkr.
•
•
•
•
•
•
•
•
•
•
•
Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
Allt sem hefur verið skrifað um
tónlistarhátíðina Aldrei fór ég
suður þau níu ár sem hún hefur
verið haldin er kórrétt. Það stað-
festir yðar auðmjúkur þjónn hér
með. Þessi andi samvinnu, gleði
og heilnæmrar útrásar er einfald-
lega tilfinnanlegur, þessi sérstaki
blær hátíðarinnar – tilkominn
vegna smæðar samfélagsins, stór-
fengleika náttúrunnar hér í kring
og hugmyndaauðgi þeirra sem að
henni standa – er raunverulegur.
Það er ástæða fyrir því að hátíðin
hefur vaxið og dafnað í gegnum
árin, vakið athygli utan landsteina
og tryggt sér fastagesti sem fjölg-
ar eftir því sem árin líða.
Ættarmót
Tónlistarhátíð já, eða ætti mað-
ur öllu heldur að tala um ætt-
armót þar sem ættin er við, jarð-
arbörnin? Stemningin líkt og í
risavöxnu ítölsku brúðkaupi þar
sem kynslóðabilið er ekki til, afar,
pabbar og synir; ömmur,
mömmur og dætur í einum gleði-
bing. Eitthvað svoleiðis frekar. Og
líkt og á Hróarskeldu fer sam-
félagið ljúflega á hliðina þegar
brestur á með hátíð, allir sem
vettlingi geta valdið leggja eitt-
hvað í púkkið, veitingahús opna
dyr sínar upp á gátt og heima-
menn gera hvað þeir geta til að
lóðsa forvitna gesti inn í alúðlega
stemninguna. Um allra handa já-
kvæð áhrif hátíðarinnar á menn-
ingarlífið hér á Vestfjörðum al-
mennt þarf þá ekki að fjölyrða.
Töfrar
Tónleikarnir sjálfir fóru fram í
KNH-skemmunni eins og undan-
farin ár og tróðu þar upp þekktir
sem minna þekktir listamenn, allt
frá Ham og Mugison til korn-
ungra bílskúrssveita af Vest-
fjarðasvæðinu. Allir fá tuttugu
mínútur til að spila, eitthvað sem
ég upplifði sem meiriháttar snið-
ugt fyrirkomulag, þó ekki sé
nema bara af þeirri ástæðu að ég
hef aldrei kynnst slíku háttalagi á
viðlíka tónlistarhátíðum. Svæðið í
kringum skemmuna studdi við
mjög þægilegan anda og straum-
arnir þarna í kring voru í senn
þægilegir og stuðvænir (og varð
það síðarnefnda meira ofan á eftir
því sem leið á kvöldið).
Vaskir aðstandendur hátíð-
arinnar bisuðu við að halda hlutum
í horfi með bros á vör og einn
brosmildan og góðan Íslandsvin
hitti ég á svæðinu, sjálfan Jan
Sneum, hin mikilsvirta danska tón-
listarblaðamann. Hann hefur kom-
ið á hátíðina sjö sinnum og fær
Goðsögn Páll Óskar fór mikinn á hátíðinni og hélt þrenna tónleika.
Ljósmyndir/Halldór Sveinbjörnsson
Mergð Eins og sjá má vantaði ekki fjöldann á Aldrei fór ég suður. Stemningin var líkt og í risavöxnu ítölsku brúðkaupi þar sem kynslóðabilið er ekki til.
Aftur fer ég vestur
Tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður fór fram á Ísafirði
um páskana Morgunblaðið var á staðnum
Minjar Varningur var á boðstólum.