Morgunblaðið - 10.04.2012, Page 17
FRÉTTIR 17Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2012
Ferskir og framandi fiskréttir
Hádegisverðartilboð
Veitingastaður / verslun
Nethylur 2 • 110 Reykjavík • Sími: 587 2882 • galleryfiskur.is
HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
SUMARDEKKIN
FYRIR BÍLINN ÞINN
FÁST HJÁ PITSTOP!
MUNDU AÐ TÍMI NAGLADEKKJA ER TIL 15. APRÍL
DUGGUVOGI RVK AUSTURVEGI SELFOSS PITSTOP.IS WWW
HELLUHRAUNI HFJRAUÐHELLU HFJ 568 2020 SÍMI
FÓLKSBÍLADEKK Frá Continental
gæðadekkjum til traustra sumar-
dekkja frá Wanli. Úrvalið er hjá okkur.
JEPPADEKK Mastercraft dekkin
eru þekkt fyrir gæði, endingu
og gott verð. Míkróskerum!
SENDIBÍLADEKK Fyrir allar
gerðir smærri og stærri sendibíla.
Greining sem unnin var á vegum
Wall Street Journal bendir til þess að
stærstu fyrirtæki Bandaríkjanna séu
að koma út úr yfirstandandi kreppu
með meiri hagnað, meiri framleiðni,
lægri skuldir og nóg af lausafé.
Kannaði blaðið stöðu fyrirtækja
sem mynda Standard & Poor’s 500-
vísitöluna og bar saman við tölur frá
árinu 2007 áður en fjármálakreppa
og niðursveifla reið yfir hagkerfi
heimsins.
Niðurstöðurnar benda til þess að
harkalegar sparnaðaraðgerðir og
varkár uppbygging hafi styrkt stoðir
fyrirtækjanna og hjálpað þeim bæði
að sýna betri árangur en hagkerfið
almennt og taka til sín stærri skerf af
þjóðartekjum.
Peningar og störf leita út
Þessi sterka staða, sem m.a. birt-
ist í því að Dow Jones-vísitalan hefur
ekki verið hærri í fjögur ár, nær
samt ekki að endurspeglast í batn-
andi atvinnutölum vestanhafs. Þó að
stærstu fyrirtæki Bandaríkjanna
hafi skapað um 1,1 milljón nýrra
starfa síðan 2007 var oft um að ræða
störf utan Bandaríkjanna og mikið af
lausafé fyrirtækjanna hefur verið
fært til erlendra dótturfyrirtækja.
Aukin verðmætasköpun birtist
m.a. í því að tekjur fyrirtækjanna í
S&P 500 vísitölunni á hvern starfs-
mann voru 378.000 dalir árið 2007 en
voru 420.000 dalir á síðasta ári.
ai@mbl.is
AP
Tekjur Miðlarar á Wall Street bregða á leik í tilefni páskanna. Stærstu fyrir-
tæki Bandaríkjanna, sem mynda S&P 500 vísitöluna, standa vel að vígi.
Þeir stóru koma
vel út úr kreppunni
Bandarísku risarnir hafa náð að
styrkja stoðirnar í rekstrinum síðustu ár