Morgunblaðið - 10.04.2012, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 10.04.2012, Qupperneq 22
22 UMRÆÐAN Bréf til blaðsins MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2012 S HELGASON steinsmíði síðan 1953 SKEMMUVEGI 48 ▪ 200 KÓPAVOGUR ▪ SÍMI: 557 6677 ▪ WWW.SHELGASON.IS SAGAN SEGIR SITT Gylfaflöt 16-18 · 112 Reykjavik · Sími 553 5200 · solo.is Ásgeir Einarsson hönnuður Sindrastólsins (1927 – 2001) Í tilefni 50 ára afmælis Sindrastólsins verða framleidd 50 stk. af stólnum í sérstakri afmælisútgáfu þar sem hver og einn stóll verður sérmerktur og númeraður. Viðskiptavinir geta valið þá gæru og litaafbrigði sem þeir vilja á sinn stól sem gerir hvern stól einstakan. Stóllinn er alfarið framleiddur á Íslandi. Söluaðilar: Sólóhúsgögn og G.Á. Húsgögn Stóll 162.000 kr. Skemill 48.000 kr. Sindrastóllinn 50 ára afmælisútgáfa (1962 – 2012) Daglegt líf flestra okkar fer að einhverju leyti fram á netinu, á fé- lagsmiðlum og sam- skiptavefjum. Þótt þessi samskipti séu oft- ast við vinahópa og fjöl- skyldu hefur aðild okk- ar Íslendinga að alþjóðlegu samfélagi netsins stóraukist á síð- ustu misserum. Ef netið er aðaltorg heimsins þá gefst okkur nú kostur á að stíga inn á það og skoða okkur um. En netheimarnir eiga líka minni vist- arverur og segja má að netheimur Ís- lendinga sé á hliðargötu við sjálft að- altorgið, enn sem komið er, enda þótt það sé óaðskiljanlegur hluti þess. Þar er töluð íslenska. Tungumálið mynd- ar veggi hliðargötunnar. Aðrar leikreglur Við þekkjum leikreglur íslenska samfélagsins. Við komum úr sveit eða úr sjávarplássi þar sem allir vita allt um alla. „Ég hef ekkert að fela“ segj- um við og „ég geri ekki kröfu um að leynd hvíli um líf mitt“. En á sjálfu aðaltorginu gilda aðrar reglur. Sjálf sameiginlega lífs- reynslan þar er önnur en hjá okkur. Í hringiðu mannlífsins á torginu er að sönnu fegurð, mannkostir, tryggð og þroski. En þar eru líka allir gagn- stæðir lestir. Þar er misjafn sauður í mörgu fé. Og íbúar heimsins láta eins og þeir hafi eitthvað að fela. Í varn- arskyni. Meðal annars koma þeir ófúsir fram undir eigin nafni á netinu. Þótt útlendingarnir séu miklu var- kárari en við ræða þeir stöðugt um nýja per- sónuverndaráhættu. Opið einkalíf Það opnast smám saman frá hliðargötunni inn á aðaltorgið – eftir því sem múrar tungu- málsins falla með auk- inni tungumálakunn- áttu unga fólksins og þýðingarvélum. Þá kemur í ljós að við eigum ekki mikið einka- líf samanborið við aðra netverja. Við höfum myndir af börnunum okkar og okkur sjálfum og af helgustu stund- unum í lífi okkar á alþjóðlegum vef- svæðum, þjóðskrána hálfopna, Ís- lendingabók sömuleiðis, símaskrána alveg opna, ættrakningar á netinu að vild, vefi íþróttafélaganna sem taka til tuga þúsunda fólks og vefi fé- lagasamtaka. Og þá er eftir að nefna sjálfa félagsmiðlana – og hættuna af ólöglegu athæfi. Hættur aðaltorgsins Af hverju er okkur hættara að vera á aðaltorgi netsins en öðrum? Svarið er margþætt. Meðal annars skapar menningarmunurinn hættu. Bara leyndin yfir staðreyndum um ein- staklinga og auðkenni þeirra (nafn, kennitölu, heimili og aldur) þýðir að hjá stórþjóðum hafa óvandabundnir sjaldnast slíkar upplýsingar, enda hafa þeir sjaldan eða ekki aðgang að þjóðskrá, ættartölum og símaskrám. Þannig að þegar óvandaður stórborg- arbúi kemur í banka eða greiðslu- kortafyrirtæki í erlendri stórborg og leggur fram allar upplýsingar um Jón Jónsson, Hliðargötu 5, 640 Húsavík og segist vera hann, þá geta slíkar upplýsingar talist í sjálfu sér nægj- anlegt auðkenni. Minnihlutahópar Sérstaklega verður að gæta að stöðu þeirra sem minna mega sín. Til að verja börn kann að vera eðlilegt að í þjóðskrá séu aðeins þeir sem eru 18 ára og eldri. Það á einnig við um símaskrá, Íslendingabók og banna mætti aðra kerfisbundna upplýs- ingasöfnun og – dreifingu um börn. Þá þurfa foreldrar að gæta þess að dreifa myndum fremur innan fjöl- skyldna sinna á pappírsformi en á netinu og sérstaklega að birta ekki myndir af fjölskyldunni léttklæddri – ekki síst börnum. Þá er konum mun meiri hætta búin á netinu en körlum. Lokaorð Við Íslendingar þurfum að skilja menningu stórþjóða og leikreglur á netinu. Opinberir aðilar, vinnustaðir, gagnaveitur og félagasamtök þurfa að taka á sig aukna persónuvernd- arábyrgð og draga úr upplýsingagjöf um einstaklinga. Stjórnmálamenn þurfa að móta almenna leiðbeinandi persónuverndarstefnu. Af því að við erum óhjákvæmilega á leið út í heim- inn. Og almenningur þarf að ræða þessi mál og ganga hægt um gleðinnar dyr. Það er engin ástæða til þess að birta á netinu ljósmyndir eða kvikmyndir af öllum helstu atburðum einkalífsins. Á aðaltorginu Eftir Hauk Arnþórsson »Nútímalegt einkalíf okkar Íslendinga gæti verið aðgengilegra á netinu en annarra þjóða. Haukur Arnþórsson Höfundur er stjórnsýslufræðingur Evrópusambandsumræðan virðist komin til að vera á Íslandi næstu áratugina. Líklegast virð- ist nú, að líkt og Norðmenn mun- um við kjósa að ganga ekki inn í það að fullu í nú- verandi mynd, heldur bíða átekta eftir því að eðli þess og okkar verði samrým- anlegra í framtíð- inni. Því virðist nú tímabært að finna nýjan flöt á Evrópuumræðunni, sem geti brúað þær mannskemmandi deilur sem ESB-sinnar og ESB- andstæðingar virðast vera fastir í. Hér má vera að lausnina sé að finna í nýju landsvinafélagi. Fyrir höfum við haft landsvinafélög milli Íslands og stakra Evrópulanda, sem megnuðu jafnvel að brúa þá sátt sem þó var grundvöllur fyrir, í kalda stríðinu forðum. En þau félög duga þó ekki ein og sér til að taka á Evr- ópusambandsmálinu í heild sinni er snýr að Íslendingum. Mín hugmynd er því að stofna til Vináttufélags Íslands og Evrópu, sem nefnd í Vináttufélagi Íslands og Kanada, sem ég hef verið formaður fyrir í sextán ár. Það gæti virkað þannig, að við skiptumst á að bjóða fulltrúum frá landsvinafélögum Ís- lands við stök Evrópuríki; svo og fulltrúum íslenskra Evrópusam- bandssinna og -andstæðinga; til að ræða hinar þjóðlegu útfærslur á lýð- ræði í viðkomandi löndum; og um leið að spyrja hvort þau lönd hafi lært eitthvað af því að verða meðal innflytjendaþjóðanna til Kanada. Við í VÍK höfum áður gert eitt- hvað svipað, er við höfum í tvígang haldið mót landsvinafélaga. Annað sem þyrfti að ræða, er eðli alþjóðavæðingar nútímans, þar sem hin þjóðlega menning í formi ljóðlist- arinnar er að rýrna, á meðan margs konar minna þjóðleg menning og listir eru að vaxa. Því leiða má rök að því að Ísland og fleiri Evrópulönd séu að veikja tengslin við fortíð sína, með því að styrkja, á kostnað ljóð- listarinnar, t.d. myndlist, tónlist, skáldsögur, blogg, verslun, ferða- mennsku, sem og hvers kyns há- skólamenntun; þótt tengslin við Evr- ópu séu um leið að aukast við það. Viðvíkjandi þessu höfum við í VÍK einnig, næstum frá upphafi, haft Hellas-hópinn sem nefnd hjá okkur, en það er árleg upplestrarsamkoma íslenskra ljóðskálda. Þessi hugmynd um Vináttufélag Íslands og Evrópu hefur áður strandað hjá okkur á því, að okkur þótti harðvítug pólitík ekki passa inn í andrúmsloft menningarsinnaðs landsvinafélags. En nú, þegar ró virðist aftur vera að færast yfir Evr- ópuumræðuna, virðist vera lag. Því hvet ég nú áhugafólk til að hafa sam- band. Ég vil enda með því að birta hér niðurlagið á ljóði úr einni af mínum þrettán ljóðabókum, en það ljóð heit- ir Harðstjóraljóð og fjallar einkum um sögu harðstjóra Evrópu. En ég felli það hér inn í venjulegt blaðadálkaform: „Mig minnir að þar hafi verið, eitt- hvað talað um blóm, sem aldrei visna“ Sagði fangavörðurinn um, bréfsnepilinn sem, fyrrum harðstjóri Júgóslavíu, eftirlét konunni sinni. TRYGGVI V. LÍNDAL, skáld og mannfræðingur. Vináttufélag Íslands og Evrópu? Frá Tryggva V. Líndal Tryggvi V. Líndal - nýr auglýsingamiðill 569-1100 finnur@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.