Morgunblaðið - 10.04.2012, Page 25

Morgunblaðið - 10.04.2012, Page 25
MINNINGAR 25 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2012 ✝ Þökkum innilega auðsýnda samúð og vin- semd við andlát elsku pabba okkar, tengda- pabba, afa og langafa, SÆMUNDAR ÞORSTEINSSONAR, Hamraborg 36, Kópavogi. Guðrún Sæmundsdóttir, Sigurgeir Högnason, Þorsteinn Sæmundsson, María Jóna Hauksdóttir, Sigurður Sæmundsson, Svava Bjarnadóttir, Jakob Sæmundsson, Sunneva Jörundsdóttir, Guðlaugur Sæmundsson, Fríður Brandsdóttir, Baldur Sæmundsson, Ólöf Kr. Guðjónsdóttir, Sigurlín Sæmundsdóttir, Magnús P. Halldórsson, Kristján Nói Sæmundsson, Sigríður Sophusdóttir, Hallgrímur Sæmundsson, Þórhildur Þorbergsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BJÖRGVIN ÓLAFSSON tæknifræðingur, Kirkjulundi 6, Garðabæ, sem lést á Landspítalanum sunnudaginn 25. mars, verður jarðsunginn frá Hjallakirkju, Kópavogi miðvikudaginn 11. apríl kl. 15.00. Halldóra Sigurjónsdóttir, Edda G. Björgvinsdóttir, Birgir Björgvinsson, Ásta Edda Stefánsdóttir, Áslaug Högnadóttir, Páll Haraldsson, Andri Björn Birgisson, Brynja Dóra Birgisdóttir, Týr Fáfnir Stefánsson. ✝ María SigríðurFinsen fæddist í Reykjavík 25. október 1916. Hún lést 21. mars 2012.Foreldrar hennar voru hjónin Carl Finsen, vá- tryggingarforstjóri í Reykjavík, f. 10. júlí 1879, d. 9. nóv- ember 1955, og Guðrún Aðalsteins- dóttir Finsen húsfreyja, f. 8. júní 1885, d. 25. febrúar 1959. Systk- ini Maríu voru: i) Elín Herdís, f. 18. ágúst 1918, d. 3. nóvember 2005, og ii) Ólafur Hannes, f. 24. febrúar 1920, d. 16. maí 2010. Hinn 10. júní 1949 gekk María stýrimaður, f. 4. desember 1955. Dóttir Gunnars er Kristrún, f. 6. júlí 1975. 4) Anna Guðrún, skrif- stofumaður, f. 16. janúar 1963. Barnabarnabörnin eru fjögur. María stundaði nám við Verslunarskóla Íslands og lauk verslunarprófi frá the Gregg School í Lundúnum 1937. María dvaldi í Kaupmannahöfn vet- urinn 1937-1938 og vann þar skrifstofustörf hjá vátrygging- arfélaginu Baltica. Heimkomin hóf hún störf hjá fyrirtæki föður síns sem hún gegndi þar til hún gekk í hjónaband, en sinnti þar á eftir börnum og heimili. Hún starfaði í hlutastarfi hjá Fé- lagsstofnun Reykjavíkurborgar við heimilisaðstoð árin 1979- 1986. María var virk til margra ára í kvenfélagi Neskirkju; sat þar í stjórn og tók virkan þátt í safnaðarstarfi kirkjunnar. Útför hennar verður gerð frá Neskirkju í dag, 10. apríl, og hefst athöfnin kl. 15. að eiga Jóhann Steinason hæsta- réttarlögmann, f. 20. október 1912, d. 5. júlí 1999. Börn þeirra eru: 1) Karl Finsen lögfræð- ingur, f. 19. apríl 1950, kvæntur Bergljótu Aradótt- ur kennara, f. 3. janúar 1950. Þau eiga tvö börn, Ara, f. 24. september 1979, og Hönnu Maríu, f. 15. janúar 1986. Fóst- ursonur Karls og sonur Berg- ljótar er Davíð Ágúst Sveinsson, f. 12. október 1969. 2) Steini Björn vélfræðingur, f. 8. febrúar 1953, d. 13. maí 2005. 3) Gunnar Fallin er frá á 96. aldursári, móðir mín María Sigríður Fin- sen. Hún dvaldi síðustu mánuði ævi sinnar á hjúkrunarheimilinu Grund við alúð og umhyggju starfsfólks. Fram að því bjó hún í eigin íbúð fyrir aldraða á Afla- granda og voru síðustu ár búset- unnar henni erfið þar sem heilsu hennar hrakaði jafnt og þétt. Börn hennar og barnabörn að- stoðuðu hana við að búa áfram ein enda mátti hún ekki til þess hugsa að fara á dvalarheimili. Móðir mín fékk því reglulega heimsóknir þar sem borðaður var kvöldmatur með nánustu að- standendum. Ófáar voru stund- irnar sem við fórum á kaffi- eða matsöluhús en undir það allra síðasta treysti hún sér ekki leng- ur. Móðir mín var ákaflega jafn- lynd kona og lítið frek. Hún var þó ákveðin á sinn hátt og hafði sitt lag á að þoka hlutum áleiðis. Hún var mjög félagslynd og fór aldrei í manngreinarálit. Heim- ilinu sinnti hún af alúð og ljúfar eru minningar bernskunnar þeg- ar tekið var á móti, við heimkomu úr skóla, með ilminum af nýbök- uðum kökum. Mér virðist hún alltaf hafa séð eftir að hafa hætt störfum á vinnumarkaði þótt hún hafi átt endurkomu um nokkurra ára skeið, í hlutastarf, við að sinna yfirsetu hjá öldruðum ein- staklingum. Hún lagði enda ríka áherslu á við okkur systkinin að mennta okkur til að eiga betri möguleika á vinnumarkaði. Þess var vel gætt að gera ekki upp á milli barnanna þegar kom að því að biðja um aðstoð við heimilis- störfin. Með móður minni og föður ríkti jafnræði. Þau voru góðir vinir, hann kallaði hana frú Maríu og minnist ég þess ekki að hafa heyrt þau rífast. Þau komu hvort úr sinni áttinni, hann úr bænda- samfélagi og hún úr íhaldssömu borgarsamfélagi. Áhugamál þeirra voru ólík en það breytti því ekki að þau sátu löngum stundum og spjölluðu um allt og ekkert. Það var þeirra sameiginlega áhugamál að ógleymdu því að ferðast. Skipulögð hópferðalög innan- lands sem utanlands voru fastur punktur í tilveru þeirra til margra ára. Eftir að faðir minn lést árið 1999 ferðuðumst við móðir mín saman, síðast til Kaup- mannahafnar þegar hún var á 91. aldursári. Aldurinn var engin fyr- irstaða í síðustu ferðinni þar sem henni var bara ýtt áfram í hjóla- stól. Ákveðin tengsl við Dan- mörku voru ávallt til staðar enda var hún tvítyngd, nokkuð sem Danirnir kunnu greinilega að meta því alltaf fengum við af- bragðsþjónustu. Aðeins einu sinni stóð hjólastóllinn móður minni fyrir þrifum þegar óvíst var hvort hjólastólafært væri í skoðunarferð með Guðlaugi Ara- syni á Íslendingaslóðir. Hún var fremur vonsvikin enda skynjaði hún aldrei aldur sinn eða ástand sem fyrirstöðu. Hún stakk ein- faldlega upp á að hún færi gang- andi í staðinn. Heiðarleiki, samviskusemi og traust er það veganesti sem móð- ir mín bar áfram frá foreldrum sínum til afkomenda sinna. Um- hyggja fyrir náunganum, sér í lagi þegar hann rís hvað lægst, eru þau gildi sem borin voru áfram frá föður mínum til okkar afkomendanna. Fyrir það vega- nesti er ég þakklát. Mamma mín, nú ertu farin til hinstu hvíldar. Eftir stöndum við afkomendur þínir með söknuð í hjarta og minningu um um- hyggjusama, velviljaða og góða mömmu, ömmu og langömmu. Blessuð sé minning þín. Anna Guðrún Jóhannsdóttir. María Sigríður var hún heitin eftir föðurömmu sinni og fóstur- móður móður sinnar. Hún fædd- ist í miðju heimsstríði, elst þriggja systkina. Hún var alin upp á reykvísku borgaraheimili, svo sem þau voru fyrir miðbik síðustu aldar; vinnukonur og eldabuskur sinntu heimilisverk- um, matmálstímar voru á réttum tíma og snætt var hversdags við uppdúkað borð. Börn svöruðu ekki fullorðnum og ókunnugt sem og eldra fólk var þérað. „Takt og tone“ skyldi í hávegum haft og íhaldssemi var dyggð. Hún stundaði nám við Versl- unarskólann, frekara verslunar- nám í Lundúnum á tímum hák- reppunnar og bjó og starfaði í Kaupmannahöfn en kom heim skömmu fyrir síðari heimsstyrj- öld. Hún var heimskona og talaði ensku og dönsku reiprennandi. Sem ung kona stundaði hún skíði, badminton, var skáti og tók bílpróf sem fátítt var meðal kvenna. Heimkomin frá Kaup- mannahöfn tók hún upp störf við hlið föður síns sem ritari hans, sem hún gegndi þar til hún gekk í hjónaband og gerðist það sem nú á dögum er kallað heimavinnandi húsmóðir og sinnti þar á eftir börnunum fjórum og heimili. Að skapferli var hún afskap- lega jafnlynd og reiddist almennt ekki. Hún var félagslynd og áhugasöm um fólk og hafði afar gaman af hvers konar manna- mótum. Og hún tilheyrði þeirri kynslóð og gerð kvenna sem ekki fara út úr húsi nema vel tilhafðar. Hún var almennt afskiptalaus um hagi annarra, en hafði þó skoðanir um það hvernig hlutir skyldu vera. Lengst af í lífinu átti hún við góða heilsu og hamingju að búa. Hin síðari ár settu andlát þeirra sem nærri henni stóðu strik í reikninginn sem og að Elli kerling varð þung á fótinn. Eftir brot á mjöðm í ágúst sl. dró af henni hægt og bítandi, þótt hún stæði aftur á fætur og fagnaði 95 ára afmæli með nánustu fjöl- skyldu og vinum. Og í mars sl. hvarf hún einn morguninn inn í þá eilífu þögn sem okkur er búin, södd lífdaga. Frá fæðingu undirritaðs átti hann elsku hennar, stuðning og aðdáun vísa, sem eitt barna- barnanna. Oft reyndi strákur á þolrif ömmu sinnar, var stríðinn, hvatvís sem og á stundum ekki nógu alvarlegur í að huga að námi og framtíð sinni. Þrátt fyrir það var hún óþreytandi að reyna að þoka honum til þeirra betri siða sem hún lærði í æsku. Við andlát hennar eru tímamót enda kveður hún síðust þeirrar elstu kynslóðar sem var fastur miðpunktur æskunnar. Logn- kyrrir vetrarmorgnar í Vestur- bænum eru liðnir, sem og heitir sumardagar í garðinum á Greni- mel með samtöl ömmu, afa Jó- hanns, Steina frænda og Deddu frænku sem bakgrunn tilverunn- ar. Það sem eftir stendur eru minningar um þá veröld sem var. Þetta var mitt fólk og í mér og okkur sem eftir erum býr nú þeirra saga. Í sálmabók sem þau afi gáfu undirrituðum á fermingardaginn ritaði hún til mín ósk um blessun guðs og varðveislu hans um alla eilífð. Þeirri frómu ósk er nú á kveðjustundu að henni beint, með hjartans kveðju, og þökk fyrir allt það sem hún lagði til þess verkefnis að koma undirrituðum til manns. Ari Karlsson. „Mímí er í símanum, mamma!“ Við systkinin minnumst þess að hafa iðulega kallað eitthvað í þessa veru til móður okkar – Margrétar Thoroddsen – á upp- vaxtarárunum á æskuheimili okkar. Þær voru margar kærar vinkonur mömmu, sem voru á þennan hátt hluti af daglegu lífi okkar. Það voru Gauja, Laufey, Lauga, Issis, Badda, Ella og Mímí. Þetta var á þeim árum sem gælunöfn þóttu sjálfsögð og það var ekki alltaf auðvelt að átta sig á hver skírnarnöfnin voru. Við systkinin vorum áreiðanlega orð- in unglingar eða þaðan af eldri þegar við áttuðum okkur á að Mímí héti fullu nafni María Fin- sen. Mímí var hæglát kona en af henni stafaði mikil hlýja og góð- vild. Það fór aldrei á milli mála að hún og mamma voru tengdar miklum og djúpstæðum vina- böndum, vináttu sem átti upphaf í leikjum þeirra í æsku á fyrri hluta 20. aldar. Sem ungar konur tóku þær þátt í hinum ýmsu skemmtunum og dansleikjum með fleiri vinkonum og vinum. Þær fundu síðan sína lífsföru- nauta, giftu sig og eignuðust börn. Þá tók við nýr kafli í lífinu sem tengdi þær ekki síður sam- an, þær hittust með börnin og deildu bæði gleði- og sorgar- stundum. Í endurminningunni var gleðin þó ávallt ríkjandi, báð- ar voru glaðlyndar að eðlisfari, þær studdu hvor aðra og sköpuðu þannig umhverfi fallegrar og sannrar vináttu. Kær vinátta þeirra hélst allt til hinstu stundar en 23. apríl verða þrjú ár liðin frá andláti móður minnar. Móðir mín eignaðist yngstu systur mína þegar hún var 44 ára. Fréttin um væntanlegt barn þótti nokkrum tíðindum sæta í vin- kvennahópnum, það lá jafnvel í loftinu að sumum fyndist hún helst til gömul til að takast á við slíkt verkefni. Það gladdi mömmu því mikið, að skömmu eftir fæðingu systur minnar kom í ljós að Mímí, sem var tæpu ári eldri, átti líka von á barni. Er óhætt að segja að vinatengslin hafi gengið í endurnýjun lífdaga þar sem þær gátu nú fylgst að með umönnun litlu barnanna. Með tímanum hverfa smám saman þeir sem hafa átt þátt í að móta heimsmynd manns frá barnsaldri. Mímí er þannig hluti af þeirri heildarmynd. Mamma ritaði minningarorð um margar kærar æskuvinkonur sínar en ég ákvað að gera tilraun til, með þessum fátæklegu orðum, að hlaupa í skarðið fyrir hana og votta Mímí virðingu okkar barna Margrétar Thoroddsen. Ég vil fyrir hönd systkina minna, Egils, Tótu, Sigga og Möggudísar, þakka Mímí fyrir óbilandi vináttu hennar við móð- ur okkar og þakka henni liðnar stundir. Ættingjum hennar send- um við innilegar samúðarkveðj- ur. María Louisa Einarsdóttir. María Sigríður Finsen Hann kvaddi morguninn 28. mars, hljóðlega eins og hans var háttur. Vinur og mágur hefur kvatt og sannarlega er að honum eftirsjá. Samveru sem varað hef- ur á fimmta áratug, samveru sem engan skugga ber á, er lokið. Það var árið 1967 að ég hitti Valtý fyrst, er við Elín systir hans fór- um ásamt dætrum okkar í langa bílferð á Reyðarfjörð og Norð- fjörð að hitta fjölskylduna. Það var sannarlega vel tekið á móti okkur hjá Valtý og Gunnu. Við áttum góða daga með þeim og þeirra fjölskyldu á Reyðarfirði og hittum ættingja og það ríkir heiðríkja í huga yfir þessum fyrstu kynnum. Öll okkar sam- skipti og vinátta var á þann veg. Það getur verið erfitt að lýsa ein- staklingum sem maður hefur átt langa göngu með en það sem kemur fyrst í huga til að lýsa Valtý er hógværð og innileiki. Framkoman var falleg og virðu- leg og maður varð einhvern veg- inn strax var við góðmennsku sem hann sýndi öllum, jafnt Valtýr Sæmundsson ✝ Valtýr Sæ-mundsson fæddist á Kaganesi í Helgustaðahreppi í Reyðarfirði 24. febrúar 1928. Hann lést á hjúkr- unarheimilinu Garðvangi í Garði 28. mars 2012. Jarðarför Valtýs fór fram frá Ytri- Njarðvíkurkirkju 3. apríl 2012. börnum sem full- orðnum. Meðan þau Gunna bjuggu á Reyðarfirði hitt- umst við sjaldnar en eftir að þau fluttu á Suðurnesin voru heimatök hægari. Þá gafst okkur einn- ig tækifæri til að ferðast saman tvisv- ar til útlanda, fyrst til að hitta ættingja þeirra Elínar í Bandaríkjunum og seinna er þau fóru með okkur á Evrópuþing Kiwanis í Sviss. Þau nutu sín vel í þessum ferðum og voru góðir ferðafélagar. Valtýr var mikill Austfirðing- ur í sér og minnti mann gjarna á hversu gott væri að vera þar og hvergi væri veðrið betra. Hann tók alltaf málstað fjórðungsins þegar rætt var um landsmálin og þótt við værum ekki sammála í pólitík var alltaf gaman að ræða málin, hann lét ekkert undan og hélt sínum málum fram stíft. Eft- ir að þau komu suður varð hann góður talsmaður Suðurnesja og fannst gott að vera þar í nábýli við dæturnar og þeirra fjölskyld- ur og nú bar svo við að besta veðrið var alltaf í Reykjanesbæ og seinna í Garðinum eftir að þau hjón fluttu á Garðvang. Fyrir rúmu ári fylgdum við Gunnu til grafar og nú er komið að honum. Við Elín höfum átt margar góðar stundir með Valtý á Garðvangi og honum leið vel þar með því góða fólki sem þar býr og starfar. En nú verða samverustundirnar ekki fleiri, ekki fleiri rabbstundir um gamla daga, börnin og af- komendur og hvaðeina sem í hugann kom. Á kveðjustund þökkum við af alhug vináttu, elskusemi og væntumþykju sem hann sýndi okkur og börnum okkar og fjölskyldu. Öll sendum við börnum Valtýs, tengdabörn- um og afkomendum öllum okkar dýpstu samúðarkveðjur. Minn- ing hans og þeirra beggja mun lifa með okkur. Ástbjörn Egilsson. Þær eru margar myndirnar sem leita á hugann þegar ég lít til baka og minnist kennarans míns og samstarfsmanns til margra ára, Valtýs Sæmundssonar. Æf- ingarnar fyrir litlu jólin þegar við krakkarnir vissum að nú kæmi að því að Valtýr færi að teikna fallegu marglitu jólamyndina á töfluna. Stemningin á litlu jólun- um þar sem við sátum þröngt við logandi kertaljósin, nutum myndarinnar og skemmtum okk- ur við leikrit skólafélaganna. Frjálsu tímarnir á föstudögum og nostrið við vinnubækurnar í landafræðitímunum. Burður á bílvélum niður í litlu vélfræði- stofuna sem Valtýr var búinn að umbreyta í verkstæði þar sem vélar voru rifnar í sundur, settar saman og gangsettar. Flutningur á þvottavél upp á efstu hæð í blokkinni þegar liðsinna þurfti nýjum kennara við að flytja og þéttingsfast handtakið þegar hann ræddi við mig um ákveðin úrlausnarefni og gætti þess um leið að ég gæfi mér tíma til að ljúka umræðunni áður en ég hlypi í önnur verkefni. Létt lundin og einlægur viljinn að leysa öll mál á sem farsæl- astan hátt var aðalsmerki Valtýs og sú minning sem lýsir skærust er ég minnist okkar góða sam- starfs í Grunnskóla Reyðarfjarð- ar. Valtýr átti mörg áhugamál og um leið og vinnu sleppti var hann ýmist kominn út á sjó á bátnum sínum, í aðgerð í skúrnum eða sestur við trönurnar og tekinn til við að mála. Eftir að Valtýr og Gunna fluttu suður höfðum við Hildur ætíð samband bæði í síma og með gagnkvæmum heimsókn- um og alltaf var áhuginn jafn- mikill á að vita hvernig gengi í skólanum hjá okkur á Reyðar- firði og í bæjarlífinu. Nú þegar góður vinur hefur kvatt þökkum við fyrir allt um leið og við send- um aðstandendum bestu samúð- arkveðjur. Þóroddur og Hildur. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is má finna upplýsingar um innsendingarmáta og skilafrest. Einnig má smella á Morgunblaðslógóið efst í hægra horninu og velja viðeigandi lið. Skilafrestur | Sé óskað eftir birtingu á útfarardegi þarf greinin að hafa borist á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, jafnvel þótt grein hafi borist innan skilafrests. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.