Morgunblaðið - 10.04.2012, Page 30

Morgunblaðið - 10.04.2012, Page 30
30 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2012 „Maður verður með smá-kaffiboð fyrir fjölskylduna í dag, eftir að hafa haft það náðugt um páskana,“ segir Þórður Þórðarson, þjálfari karlaliðs ÍA í knattspyrnu, sem er fertugur í dag. Hann tók forskot á sæluna kvöldið fyrir skírdag og bauð þá sínum nánustu vinum og kunningjum til veislu. Þórður segir lítinn annan tíma gefast til veisluhalda, knattspyrnuvertíðin sé að skella á og æfingaferð fram- undan til Spánar um næstu helgi. Fyrsti leikur Íslandsmótsins er 6. maí gegn Breiðabliki á útivelli. „Ætli fjölskyldan sjái ekki lítið af manni þar til tímabilinu lýkur í haust,“ segir Þórður sem kvæntur er Írisi Björgu Þorvarðardóttur. Eiga þau þrjú börn: Katrínu Þóru, Stefán Teit og Þórð Þorstein. Þórður lék um árabil í markinu hjá Skagamönnum, auk fleiri fé- laga, en varð að hætta árið 2005. Hann tók við þjálfun ÍA um mitt sumar 2009 en þá hafði liðið fallið úr efstu deild árið áður. Hefur lið- ið leikið í næstefstu deild síðan eða þar til síðasta haust að langþráð sæti í efstu deild vannst á ný. Þórður segist vissulega hafa fundið fyrir miklum þrýstingi heimamanna um að spila meðal þeirra bestu aftur. „Það var, er og verður erfitt að vera þjálfari á Akranesi en þetta er skemmtileg vinna. Annars væri maður ekki í þessu,“ segir Þórður, sem bindur að sjálfsögðu vonir við að Skagamenn haldi sér uppi í sumar. Strákarnir komi vel undan vetri. bjb@mbl.is Þórður Þórðarson, þjálfari ÍA, 40 ára Morgunblaðið/Eggert Þjálfari Þórður Þórðarson hefur þjálfað Skagamenn frá miðju sumri 2009 og kominn með liðið í efstu deild, eftir þriggja ára fjarveru. Erfitt en gaman að þjálfa á Skaganum M agnús fæddist á Eyrarbakka og ólst þar upp. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1972, stundaði nám við HÍ 1972-73 og lauk kenn- araprófi frá KHÍ 1983. Eyrarbakkaoddviti Magnús var kennari við Barna- skólann á Eyrarbakka 1973-75 og 1976, kennari við grunnskólann í Hraungerðishreppi, Þingborg, og sérdeild Suðurlands 1976-80, mæl- ingamaður hjá Vegagerð ríkisins 1980-83, oddviti í fullu starfi hjá Eyr- arbakkahreppi 1982-98, ráðgjafi í op- inberri stjórnsýslu hjá KPMG End- urskoðun hf. 1998-2001 og er sviðsstjóri hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga frá 2001. Magnús sat í hreppsnefnd Eyr- arbakkahrepps 1978-98, sat í sýslu- nefnd Árnessýslu 1982-88, í Héraðs- nefnd Árnesinga 1988-98, var varaoddviti nefndarinnar 1988-94, sat í stjórn Héraðsskjalasafns Ár- nesinga 1994-98, í stjórn Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga 1989-90, sat í skólanefnd Fjölbrautaskóla Magnús Karel Hannesson 60 ára Ljósmynd/Inga Lára Baldvinsdóttir Hagleiksmenn Magnús með tengdaföður sínum, Baldvin Halldórssyni leikara, við endurgerð Laugabúðar. Málsvari sögu og sér- kenna á Eyrarbakka Ljósmynd/Sigurður Steindórsson. Göngugarpar Magnús og Inga Lára á göngu við Ölfusá með Sigurlínu Eiríksdóttur. Áð við Ölhól vestan byggðar á Selfossi. Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang. Selfoss Berglind Emilía Ben fæddist 31. desember. Hún vó 3.525 g og var 52 cm löng. Foreldrar hennar eru Sigríður Tinna Ben Einarsdóttir og Skúli Gíslason. Nýir borgarar Reykjanesbær Júlía Dís fæddist 29. september kl. 11.41. Hún vó 18 merkur og var 55 cm löng. Foreldrar hennar eru Maren Helga Guðmundsdóttir og Halldór Örn Halldórsson. „Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið göngu sína í Morgunblaðinu. Þar verður einnig sagt frá öðrum merkum við- burðum í lífi fólks, svo sem hjónaböndum, barnsfæðingum eða öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta á netfangið islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón Lyftarar og staflarar í yfir 600 útgáfum Fáanlegir sérútbúnir fyrir íslenskan fiskiðnað ▪ Handlyftarar með eða án palls. Allt að 5.350 mm lyftihæð og 3.000 kg lyftigetu. ▪ Tínslu- og þrönggangalyftarar með allt að 14.250 mm lyftihæð. ▪ Rafmagns- og dísellyftarar með allt að 9.000 kg lyftigetu. ▪ Hillulyftarar með allt að 12.020 mm lyftihæð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.