Morgunblaðið - 10.04.2012, Side 32

Morgunblaðið - 10.04.2012, Side 32
32 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2012 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú ert bæði skrýtnari og skemmti- legri en flestir álíta þig vera við fyrstu kynni. Finndu þér eitthvað sem vekur ást- ríður þínar. Þér vegnar vel ef þú vinnur undirbúningsvinnuna þína. 20. apríl - 20. maí  Naut Þér finnst vera togast á um þig og þú átt í efiðleikum með að gera upp hug þinn. Búðu þig undir að taka á móti þeim tækifærum sem þér bjóðast. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú þarft að hafa það á hreinu að enginn misskilji skilaboð þín því þá gætu afleiðingarnar orðið skelfilegar. Stutt ferðalag gæti gert kraftaverk. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Það skiptir öllu máli að þú farir vel af stað og náir forskoti á keppinauta þína. Vertu opin/n fyrir því sem viðkomandi hef- ur að segja. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Haltu fast utan um pyngjuna því ein- hver nákominn þér er farinn að gerast helst til þurftarfrekur. Hagnýt og góð at- hugasemd frá þér væri góð. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Nú er rétti tíminn til þess að söðla um, leggja af gamla siði og taka aðra og heilsusamlegri upp í staðinn. Gefðu þér góðan tíma til að sinna öllum verkum. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú þarft á allri þinni árvekni að halda, þegar þú gengur til samninga í dag. Erfitt er að rækta þessa eiginleika í dag svo reyndu að segja sem minnst. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Það mætti halda að þú værir sérstakur verndari erfiðs fólks, og það sækir í þig. Reyndu ekki að stytta þér leið, því þá verður árangur annar og minni. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Það er líklegt að þú fáir góða hugmynd varðandi fjárhaginn. Hættu að gera lítið úr sjálfum þér; þú ert ekki verri en hver annar. 22. des. - 19. janúar Steingeit Einhverjar deilur koma upp á vinnustað og þér finnst þú rangindum beittur. Samræður við maka ganga ein- staklega vel um þessar mundir. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú finnur eflaust eitthvað til þess að gefa fyrir góðan málstað í dag. Ekki láta kúga þig til þess sem þú vilt ekki. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú ert næmur á líðan annarra og veist hvað er viðeigandi að segja og hvað ekki. Hvernig væri að halda boð fyrir vini sem þú hefur ekki hitt nýlega? Ég hafði ekki séð karlinn áLaugaveginum í nokkra daga. Svo hringdi hann eftir hádegið í gær og sagðist vera frammi í Eyja- firði í Staðarbyggð; hann ætti ættir sínar þangað að rekja og væri kom- inn af Jóni Arasyni. „Það er mikil fjallasýnin,“ sagði hann, „og skrítið að mér skuli hugsað til kotsins á holtinu hingað kominn“: Gellur finnst mér gott að fá og grjónavelling. Hún er þrifleg þessi kerling! Gaman er á góðum degi að ganga á Strýtu. Minnast heilags manns á Grýtu. Gullnu sjali sveipar um sig Súlnatindur. Það er sólskin og sunnanvindur. Þessar afhendingar karlsins kalla fram í hugann gamlar vísur. Kerling er hæsta fjall á Norður- landi en Blámannshatt ber hæst austan Eyjafjarðar. Ég orti á vísna- kvöldi í Eyjafirði: Kerling reisir höfuð hátt mót sól, hattinn tekur blámaðurinn ofan. Í sumar brá hún sér í nýjan kjól og sópar stássleg gamla fjallakofann. Talið er að Jón Arason sé fæddur á Grýtu, sem þótti kot eitt, rýrt og nytjalítið, en er þó ekki lítil jörð. Jón getur þessa kots í gamanvísu sem hann orti ungur og lætur sem svo að Munkaþverárábóti léti það ekki falt þó í boði væru helstu höf- uðból í Eyjafirði: Ýtar buðu Grund við Grýtu, Gnúpufell og Möðruvelli, en ábótinn vil ekki láta aðlaból nema fylgi Hólar. Upp í hugann kemur einnig, að einhverju sinni hittust þeir á götu séra Matthías Jochumsson og Bald- vin skáldi Jónatansson. Baldvin var fyrri til og sagði: Áðan duttu átján mýs ofan af Súlnatindi. Og séra Matthías svaraði að bragði: Pukraðu mér í Paradís. Pétur minn, í skyndi. Óli, bróðir Baldvins skálda, var um skeið aldraður hjá Karli Krist- jánssyni alþingismanni, meðan hann bjó í Eyvík. Óli átti grænan hatt með gati á. Hann þrábað Karl að yrkja um sig vísu og gerði hann það að lokum: Hattinn græna hef ég minn, hann er væna fatið. En Loftur sprænir einatt inn ofan um mænis-gatið. Halldór Blöndal halldorblondal@mbl.is Vísnahorn Pukraðu með mér í Paradís G re tt ir S m áf ól k H ró lfu r hr æ ði le g i G æ sa m am m a og G rí m u r F er di n an d SKRÍTIÐ VARIÐ YKKUR Á „VARIÐ YKKUR Á HUNDINUM” SKILTINU VARIÐ YKKUR Á HUNDINUM EN SLÆM TÍMA- SETNING! EINHVERN DAGINN VERÐA ÞESSI KVIKINDI ÚTDAUÐ!! AÐ VERA EKKI AÐ VERA LITLA RAUÐHÆRÐA STELPAN ER SVO SÆT ÉG MYNDI GEFA HVAÐ SEM ER TIL AÐ BORÐA NESTIÐ MITT MEÐ HENNI OJ BARA! ÓENDURGOLDIN ÁSTFER ALVEG MEÐ BRAGÐLAUKANA Víkverji hefur afskaplega gamanaf Andralandi, þætti Andra Freys Viðarssonar á fimmtudags- kvöldum á RÚV. Andri er svo skemmtilega afslappaður og fundvís á áhugavert efni. Að kvöldi skírdags fylgdist Víkverji því spenntur með þegar Andri brá sér í heimsókn í hegningarhúsið á Skólavörðustíg. Ekki spillti fyrir að Víkverji hefur sjálfur komið í hegningarhúsið (sem blaðamaður en ekki fangi) og kann- ast því við aðstæður. Andri leið um húsið í hægðum sínum og skemmti Víkverja og öðr- um sjónvarpsáhorfendum. Há- punktur heimsóknarinnar var þó þegar hann brá sér út í fangelsis- garðinn ásamt einum fangavarð- anna. Eftir að hafa flandrað um stund í garðinum kom Andri auga á ramp við tröppurnar út úr húsinu og spurði hvort hann væri ætlaður föngum í hjólastól. Hvort þeir væru bara látnir gossa þar niður. Þá hló Víkverji upphátt. Fangavörðurinn klóraði sér í höfðinu og svaraði því til að ramp- urinn hefði ekki þann tilgang. x x x Táningssonur Víkverja var meðslæma hálsbólgu um páskana og snemma vaknaði sá grunur að hann væri kominn með streptó- kokkasýkingu. Drengurinn var með fótaferð og skellti sér því eitt kvöld- ið sjálfur á læknavaktina til að fá álit fagmanns. Það stóð heima, streptókokkar voru það, heillin. Þegar kom að því að borga lækn- inum áttaði sonurinn sig á því sér til skelfingar að hann hafði gleymt veskinu heima. Hringdi í ofboði í Víkverja sem gat lítið annað gert, fyrst drengurinn var kortlaus, en að leggja til að hann bæði lækninn að senda sér bara reikning. Það reynd- ist í góðu lagi. Ekki var björninn þó unninn, son- urinn átti eftir að sækja sýklalyfið til að vinna á sýkingunni. Það gerði hann í apóteki í sama húsi. Þegar hann var kominn með lyfið í hendur sagði hann fjallbrattur við af- greiðslukonuna: „Þið sendið mér svo bara reikninginn!“ Afgreiðslukonan starði hins vegar bara opinmynnt á hann. „Við send- um ekki reikninga!“ vikverji@mbl.is Víkverji Orð dagsins: Hann stendur mér við hlið til þess að veita mér lið og vernd. (Daníel 11, 1.) Umhverfisvænna verður það ekki Stangarhyl 4, 110 Reykjavík, Sími: 520 7700 raestivorur.is Hreinlætispappír framleiddur úr endurunnum mjólkurfernum (Tetra pack). 74% af drykkjarfernu er pappír – 22% plast – 4% ál. Pappírinn er notaður í hreinlætispappír, álið og plastið í t.d. penna ofl. Græ nn a príl

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.