SunnudagsMogginn - 08.04.2012, Page 17

SunnudagsMogginn - 08.04.2012, Page 17
8. apríl 2012 17 Um það bil 90 gestir þáðu kræsingarnar sem boðið var upp á í veislunni. Hér eru Kristín Erla Johnson, Birna Dís og Erla Björg Björnsdætur, Helga Þóra og Walter Gunnlaugsson. Þær kalla sig Mósurnar; sex konur sem störfuðu saman á Stöð 2 um lengri eða skemmri tíma. „Nafnið varð til þegar við fórum að gera mósaík saman, en við erum löngu hættar því! Nú göngum við saman á fjöll, förum á skíði og veiðum. Og svo aðstoðum við hver aðra á stórum stundum,“ segir Helga Guðrún Johnson, ein sexmenninganna. Mósurnar eru, auk Helgu Guðrúnar; Hulda Gunnarsdóttir, Katrín Lovísa Ingvadóttir, Anna Katrín Guðmundsdóttir, Soffía Sóley Helgadóttir, Kristín Helga Gunnarsdóttir og Telma Tómasson. Það hefur verið metnaðarmál hjá þessum fé- lagsskap að skrýðast fallegum svuntum við emb- ættisstörf og keypti Kristín Helga forláta klæði af því tagi fyrir nokkrum árum og þóttu þær sérlega lekkerar. „Svo mjög að okkur hefur verið líkt við stúlkurnar á d’Angleterre hér á árum áður. En svo gerðust þær hörmungar að svunturnar hurfu! Ger- samlega eins og hótelstjórinn á d’Angleterre hefði numið þær á brott að lokinni síðustu veislu.“ Mikil leit hefur farið fram í línskápum Mósanna en án árangurs. Þær urðu því að klæðast nýjum svuntum – alls ekki eins virðulegum, að sögn Helgu Guðrúnar, á fermingardegi tvíburanna. Það mun ekki hafa komið að sök! „Annars kalla Mósur sig helst Múlasystur þeg- ar þær uppvarta; eða Holy Moses þegar um ferm- ingar er að ræða!“ segir Helga Guðrún. Mósurnar að störfum við undirbúning fermingarveislunnar. Frá vinstri: Katrín Lovísa Ingvadóttir, Anna Katrín Guðmundsdóttir, Helga Guðrún Johnson, Telma Tómasson og Hulda Gunnarsdóttir. Morgunblaðið/Árni Sæberg Mósurnar sjá um matinn veislusalir Tökum á móti litlum og stórum hópum í rómaðar veislur Suðræn stemming þingholtsstræti 1 · 101 rvk · sími 562 7335 caruso.is · caruso@caruso.is við Erum líka á facebook

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.