SunnudagsMogginn - 08.04.2012, Blaðsíða 27

SunnudagsMogginn - 08.04.2012, Blaðsíða 27
8. apríl 2012 27 Í Thule, sem er nyrsta byggð í heimi, fer frostiðniður í 58 gráður yfir háveturinn. Nú er voriðhins vegar í nánd en frá miðjum maí og fram ímiðjan ágúst fer sólin aldrei undir sjóndeild- arhring. Þá hýrnar yfir veiðimönnunum Tóbíasi Ala- taq og Mamarut Kristiansen sem beita hundum sínum fyrir sleðana og leggja út á ísinn til að veiða rostunga, seli og náhvali (sjá mynd á opnunni hér að framan). Fara þarf að öllu með gát enda þynnist ísinn með hverju árinu sem líður vegna hlýnunar jarðar. Sú staðreynd ógnar veiðimannasamfélaginu í þessari 600 manna byggð eins og í öðrum byggðum inúíta. Heim- ildir eru fyrir því að fyrstu inúítarnir hafi komið til Grænlands fyrir 4.500 árum. 98% ef flatarmálinu þakin jökulís Suðurskautslandið er um það bil 14 milljón ferkíló- metrar og er því fimmta stærsta heimsálfan að flat- armáli á eftir Asíu, Afríku, Norður-Ameríku og Suð- ur-Ameríku. 98% ef flatarmáli Suðurskautslandsins eru þakin jökulís, sem er að meðaltali 1,6 kílómetra þykkur. Að meðaltali er Suðurskautslandið kaldasta, þurr- asta og vindasamasta heimsálfan og hefur hæstu hæð að meðaltali yfir sjávarmáli af öllum heimsálfum. Þar sem lítil úrkoma er nema við strendurnar er miðbik álfunnar tæknilega séð stærsta eyðimörk í heimi. Á Suðurskautslandinu eiga engir menn varanleg heimili og þar eru engin ummerki um núverandi eða for- sögulegar byggðir innfæddra manna. Aðeins plöntur og dýr sem þola kulda vel lifa þar, til dæmis mörgæs- ir, nokkrar tegundir hreifadýra, mosar, fléttur og margar tegundir af þörungum. Á suðurskautinu eru allar skepnur friðaðar. Það breytir þó ekki því að lífsbarátta dýranna er hörð enda gerir verstu veður sem um getur þar um slóðir, frost getur farið allt niður í 88 gráður. Þá reynir á samstöðu mörgæsanna en auk kuldans sitja hlébarða- selir gjarnan um þær en þeim þykir mörgæsir ljúfar undir tönn. Á myndinni hér til hliðar getur að líta Adélie- mörgæsir slá á létta strengi með Weddell-sel á ströndinni en sú tegund sela er ekki sólgin í mörgæs- ir. Um fimm milljónir Adélie-mörgæsa eru á suð- urskautinu og skipta þær sér niður á 38 svæði. Á myndinni hér að ofan má síðan sjá ísjaka sem brotnað hafa frá suðurskautshellunni og fljóta um í hafinu. Þeir minna um margt á borgir sökum stærðar sinnar. Það eru engar skýjaborgir! orri@mbl.is Svalaskjól -sælureitur innan seilingar Hentar mjög vel íslenskri veðráttu Við höfum framleitt viðhaldsfría glugga og hurðir í 28 ár Nánari upplýsingar á www.solskalar.is Frábært skjól gegn vindi og regni Yfir 40 litir í boði! Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími: 554 4300 • Fax: 564 1187

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.