SunnudagsMogginn - 08.04.2012, Side 18

SunnudagsMogginn - 08.04.2012, Side 18
18 8. apríl 2012 Íslensku safnaverðlaunin eru veitt annað hvert ár safni sem með starfsemi sinni þykir skara fram úr. ÓSKAÐ ER EFTIR ÁBENDINGUM frá almenningi, stofnunum og félagasamtökum um safn eða einstök verkefni á sviði safna sem þykja til eftirbreytni og íslensku safnastarfi til framdráttar. Bent er á að tilnefna má sýningar, útgáfur og annað er snýr að þjónustu við safngesti jafnt sem verkefni er lúta að faglegu innra starfi. Ábendingum skal skilað til Safnaráðs, Þjóðminjasafninu við Suðurgötu, 101 Reykjavík eða á netfangið safnarad@safnarad.is merkt Safnaverðlaun fyrir 1. maí 2012. Valnefnd velur þrjú söfn eða verkefni sem tilnefnd verða til verðlaunanna á alþjóðadegi safna þann 18. maí en afhend- ing þeirra fer fram á íslenska safnadaginn 8. júlí 2012. Íslandsdeild ICOM - Alþjóðaráðs safna og FÍSOS - Félag íslenskra safna og safnmanna standa saman að verðlaununum. ÍSLENSKU SAFNAVERÐLAUNIN 2012 Við þurfum að taka höndum saman um að skapa frið og sátt um störf hennar. Það er gert með samstarfi okkar allra er vinnum að málum hennar. Kirkjan stendur á traustum grunni. Á þeim grunni er starfið byggt. Halda ber því sem vel hefur reynst en bæta það sem miður hefur farið. Sem biskup mun ég standa vörð um hags- muni kirkjunnar og leiða hana, þannig að hennar lífgefandi boðskapur setji mark sitt á ein- staklinga sem samfélag. Grunnur trúarinnar – Hvaða gildi hefur Biblían fyrir kirkju og kristni nú- tímans? Er hún heilög ritning? Eiga orð hennar að ráða því hvað er leyft eða bannað og hvernig kirkjan kennir í dag? Kirkjan byggir á þeim trausta grunni sem trúin á Jesú Krist er. Grunnur trúarinnar er kynntur í Biblíunni, sem nefnd hefur verið hið lifandi orð Guðs. Hún er lifandi vegna þess að í henni er að finna boðskap sem Séra Agnes M. Sigurðardóttir: – Hvers vegna býður þú þig fram til biskupsþjónustu? Margir hvöttu mig til þess að gefa kost á mér. Eftir umhugs- un, samtal og bæn ákvað ég að láta af verða. Ég tel að reynsla mín af starfi innan þjóðkirkj- unnar til 30 ára, sem sérþjón- ustuprestur, prestur í borg, sveit og sjávarplássi, sem pró- fastur auk fjölmargra trún- aðarstarfa sem ég hef gegnt innan kirkjunnar nýtist vel í biskupsþjónustu. Þannig hef ég kynnst innviðum þjóðkirkj- unnar sem og starfinu á akr- inum. Ég treysti mér til bisk- upsþjónustunnar og treysti Guði til að leiða mig, styrkja og senda mér traust samstarfsfólk. – Rætt er um biskupsþjón- ustu en hverjum eða hverju á biskup að þjóna fyrst og fremst? Sem prestur prestanna er biskup andlegur leiðtogi kirkj- unnar og þjóðarinnar. Biskup á að telja kjark og von í þjóðina á grundvelli trúarinnar á Jesú Krist. Biskup leiðir kirkjuna og verður að hafa góða yfirsýn yfir öll mál hennar, innri sem ytri. gagnast fólki á öllum tímum og í öllum aðstæðum lífsins. Sögur Biblíunnar kenna okkur að tak- ast á við lífið með hjálp Guðs og góðra manna. Biblían er heilög, sem þýðir að í henni talar Guð inn í aðstæður mannanna og mótar þannig hugmyndir okkar um mann og heim. Orð hennar hafa áhrif á nútímann og þegar við lesum hana er Jesús Kristur aðalatriðið. Út frá honum lesum við og sjáum allt sem í Biblíunni stendur. Við eigum að taka mark á þeim boðskap og leyfa honum að verka í daglegu lífi okkar. Að því leyti ræður hún því hvað er leyft og hvað bann- að. Til þess að vera betur í stakk búin til að meta þann boðskap þarf að fara fram stöðug rann- sókn á textum hennar til að þeir tali með sínum hætti inn í nýjar aðstæður og nýtt samfélags- form. Kirkjan flytur þennan boðskap inn í samtímann eins og hann er hverju sinni þannig að hann mótist af kristinni trúarhugsun og kristnum gild- um. – Hvernig ætlar þú að beita þér fyrir því að endurreisa orðspor kirkjunnar? Traust til þjóðkirkjunnar er með minnsta móti eins og kannanir sýna. Hins vegar er traust til kirkjunnar í nærsam- félaginu mikið. Verkefni okkar næstu misserin er að byggja upp traust til kirkjunnar sem stofn- unar – traust til yfirstjórnar kirkjunnar. Traust verður ekki byggt upp nema með markviss- um aðgerðum sem taka tíma. Til að byggja það upp þarf að gera fólk jákvætt gagnvart kirkjunni og því góða sem hún hefur fram að færa. Það er meðal annars hægt með eftirfarandi hætti. Með því að kirkjan sýni gott fordæmi og fari eftir lögum og reglum og takist á við mál er upp koma í samræmi við það. Með því að hlusta og ræða við fólk. Taka mark á því sem það segir og læra af því hvernig hægt er að láta rödd kirkjunnar hljóma í samtímanum. Með því að fela fleirum ábyrgð á hendur í hennar fjölbreytta starfi. Þar á Ljúka þarf upp leyndarmál- inu um starf kirkjunnar Nýr biskup yfir Íslandi verður senn kjörinn. Tveir prestar eru í kjöri í síð- ari umferð, séra Agnes M. Sigurð- ardóttir sóknarprestur í Bolungarvík og séra Sigurður Árni Þórðarson prestur í Neskirkju. Sunnudagsmogg- inn lagði fyrir þau nokkrar spurningar af þessu tilefni. „Ég treysti mér til biskupsþjónustunnar og treysti Guði til að leiða mig, styrkja og senda mér traust samstarfsfólk,“ segir séra Agnes M. Sigurðardóttir.

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.