Morgunblaðið - 05.05.2012, Síða 1

Morgunblaðið - 05.05.2012, Síða 1
L A U G A R D A G U R 5. M A Í 2 0 1 2  Stofnað 1913  105. tölublað  100. árgangur  PÖRUPILTAR BÍÐA EFTIR GODOT MARGT BÝR Í SANDINUM POSTULÍN FYRIR SKILNINGARVITIN SUNNUDAGSMOGGINN KAHLA 10KVENFÉLAGIÐ GARPUR 48 Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Ómar Smári Ármannsson, sem þekkir afar vel til náttúru og minja á Reykja- nesskaga telur að borteigar vegna jarðvarmavirkjana séu hafðir óþarf- lega stórir, sé viljinn fyrir hendi muni minni teigar duga. Hann tekur fram að hann sé ekki andvígur því að auð- lindirnar séu nýttar. Vinnubrögðin við borholur við Trölladyngju og víðar séu á hinn bóginn þannig að þau hljóti að draga úr stuðningi við virkjanir. „Hér sjá menn bara eyðileggingu og hugsa: Verður þetta allt svona?“ Borteigarnir sem Morgunblaðið skoðaði með Ómari voru frá því að vera ríflega 3.000 fermetrar upp í ríf- lega 6.000. Fyrirhugað er að leggja fimm nýja borteiga við Eldvörp, gíga- röð við Grindavík, og verða þeir 3.500- 7.500 fermetrar að stærð. Ómar telur að með því að hafa vinnuskúra, pípur, varahluti, rafstöðv- ar og fleira fjarri borstæðinu sé hægt að komast af með mun minni borteiga. Ásbjörn Blöndal, forstöðumaður þróunarsviðs HS Orku, segir að við Eldvörp standi til að fara eins varlega og framast sé unnt. Allt kapp hafi ver- ið lagt á að hafa borteigana eins litla og hægt sé en það sé verktakinn, fyr- irtækið sem borar, sem ákvarði stærð þeirra. Til standi að beita skáborun og bora í um 1.000-1.200 metra frá teig- unum sem sé það mesta sem hægt sé að gera í jarðlögum sem þessum. »14-15 „Verður þetta allt svona?“  Borteigar vegna jarðvarmavirkjana verði minnkaðir  Fyrirhugað er að leggja fimm nýja borteiga við Eldvörp Morgunblaðið/Kristinn Hola Ómar Smári við borholu við Trölladyngju. Teigurinn er yfir 3.000 m². „Nota það í keppnisferðir,“ svaraði dansarinn Sara Lind þegar hún var spurð að því eftir sigur í Hæfileikakeppni Íslands hvað hún myndi gera við milljónina. „Annaðhvort keppnisferð eða heitan pott,“ sagði dansfélaginn, Elvar Kristinn. Þau eru tíu ára og sigruðu á úrslitakvöldinu sem fram fór í Gamla bíói í gærkvöldi, í beinni útsendingu á Skjá einum. Í keppninni var valið úr 600 myndböndum sem send voru á mbl.is. Verðlaunaféð fer í keppnisferðir eða heitan pott Morgunblaðið/Árni Sæberg Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Tilskipun Evrópusambandsins um jafnræði neytenda mun leiða til þess að ekki verður leyfilegt að veita meiri afslátt en 13% á veggjaldi á Íslandi. Að sögn fram- kvæmdastjóra Spalar ehf. sem sér um rekstur Hvalfjarðarganga mun fyrirtækið líklega hefja verðbreyt- ingar innan tíðar. Í lok þeirra munu afsláttarkjör sem hingað til hafa verið allt að 72% verða 13% að há- marki. Enn á eftir að hefja verð- breytingar í 1. verðflokki sem á við um bifreiðar undir 6 metrum sem í flestum tilfellum eru fólksbílar eða jeppar. 93,5% af allri umferð um göngin tilheyra 1. verðflokki. Þar af ferðast 55,7% á mesta afslætti. Í áætlunum Spalar ehf. er gert ráð fyrir verðlækkun á stakri ferð en verðhækkun á ferðum á afsláttar- kjörum. Skv. grófum útreikningum mun verð á ferðum með afsláttarkjörum hækka úr 283 krónum í 480 krónur sem er um 70% hækkun. Verðlækk- un á stakri ferð fer úr 1.000 krónum í um 550 k., sem er 45% lækkun. MMiklar verðbreytingar »24 Breytt gjöld í göngin  Spölur ehf. hugar að miklum verðbreytingum á akstri um Hvalfjarðargöng  Minnka afslátt vegna tilskipunar ESB  Í nýrri bók sem Helgi Ólafsson stórmeistari hef- ur sent frá sér um Bobby Fisc- her er fjallað um aðdraganda ein- vígisins 1971 og dvölina á Íslandi síðustu árin sem hann lifði. Rætt er við Helga um bókina í Sunnu- dagsmogganum. Anand, heimsmeistari í skák, skrifar formála og segir að áhrif einvígisins á Íslandi hafi verið mik- il. Það hversu margir byrjuðu að tefla á áttunda áratugnum megi rekja til Fischers. Hann rifjar upp fund þeirra á Íslandi, segir að hér hafi Fischer fundið frið, Íslend- ingar hafi kunnað að meta hann en um leið gefið honum næði til að njóta lífsins. pebl@mbl.is Margir byrjuðu að tefla út af Fischer Bobby Fischer  Þegar innan við ár er liðið frá því að tónlistarhúsið Harpa var opnað hafa um 980 þúsund manns heim- sótt húsið. Pétur J. Eiríksson, starf- andi stjórnarformaður Portusar sem á og rekur Hörpu, segir að fjöldi gesta fari yfir milljón í næstu viku að öllu óbreyttu. „Þetta er töluvert miklu meira en við bjuggumst við þegar við opn- uðum. Þetta eru gestir á viðburði, matargestir og fólk sem heimsækir húsið. Við erum með teljara í dyr- unum svo við vitum alltaf hvað koma margir í hverri viku,“ segir hann. Á bilinu 16-40 þúsund manns heimsækja Hörpu í hverri viku að sögn Péturs. »44 Milljón gestir í Hörpu í næstu viku Fjöldi Tónlistarhúsið Harpa hefur verið fjölsótt frá því opnað var fyrir tæpu ári. „Ef þetta verður niðurstaðan og þau góðu afsláttarkjör sem fólki bjóðast breytast er það mikið áhyggjuefni fyrir þá sem hér búa. Könnun sem gerð var fyrir bæinn staðfesti fyrir okkur að íbúar á Akranesi eru hluti af sama atvinnusvæði og þeir sem búa á höfuðborgarsvæðinu. Því mun þetta skerða samkeppnis- stöðu íbúanna á atvinnumark- aði,“ segir Árni Múli Jónasson, bæjarstjóri á Akranesi. Skerðir kjör BÆJARSTJÓRINN Á AKRA- NESI ÁHYGGJUFULLUR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.