Morgunblaðið - 05.05.2012, Page 5

Morgunblaðið - 05.05.2012, Page 5
FRÉTTIR 5Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2012 Skúli Hansen skulih@mbl.is Sú hugmynd að sveitarfélög á Norður- og Aust- urlandi kaupi jörðina Grímsstaði á Fjöllum og leigi hana til félags í eigu Huangs Nubos til 40 ára var rædd á ríkisstjórnarfundi í gærmorgun. „Ég var að kynna, sem iðnaðarráðherra, niðurstöðu nefndar sem metur hvort viðskipta- hugmyndin fellur undir ívilnunarlögin,“ sagði Oddný G. Harðardóttir iðnaðarráðherra að lokn- um ríkisstjórnarfundi í morgun. Með ummælum sínum vísar ráðherrann til skilyrða 5. gr. laga nr. 99/2010 um ívilnanir vegna nýfjárfestinga á Ís- landi. Oddný segir að nefndin hafi komist að þeirri niðurstöðu að þessi hugmynd uppfylli ofangreind skilyrði ívilnunarlaganna. Spurð hvort hún muni persónulega styðja það að þessi leið verði farin ef sveitarfélögin gera slíkan samning við Huang Nubo segir Oddný: „Mér líst ágætlega á það að jörðin á Gríms- stöðum á Fjöllum verði í opinberri eigu, þ.e. í eigu sveitarfélaganna, en síðan leigi þau jörðina áfram. Mér líst ekkert illa á það.“ Hún segir einnig að samráðherrar hennar hafi tekið ágæt- lega í niðurstöður nefndarinnar á fundinum. Málið á forræði iðnaðarráðherra „Málið var ekki til lykta leitt á þessum rík- isstjórnarfundi, það var fyrst og fremst verið að kynna stöðu málsins,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra. Hann segir ýmsar spurn- ingar hafa vaknað sem þurfi að fá svör við. „Ég lít svo á að það sé meira en að segja það að af- sala eignarrétti, eða afnotarétti til mjög langs tíma, á landi út fyrir landsteinana og ég tala nú ekki um þegar um er að ræða land sem liggur að óbyggðum Íslands, þá vakna ýmsar spurningar sem þarf að fá svör við,“ segir Ögmundur og bætir við: „Hvað er það sem vakir fyrir þessum fjárfestum? Hvaða áhrif mun það hafa á um- hverfið? Hvað er það sem að baki býr?“ Hann segist vilja fá að sjá þetta allt áður en frá málinu verði gengið. Að sögn Ögmundar er málið, í þeim farvegi sem það hefur verið sett í nú, á forræði iðnaðarráðherra. Oddnýju líst ágætlega á 40 ára leigu  Hugmynd um að leigja Huang Nubo jörðina til 40 ára var rædd á ríkisstjórnarfundi  Innan- ríkisráðherra segir málið ekki hafa verið leitt til lykta og vill sjá nánari upplýsingar um það Ljósmynd/Birkir Fanndal Langtímaleiga Iðnaðarráðherra líst vel hugmyndir um að leigja Huang Nubo Grímsstaði á Fjöllum til 40 ára. Föstudagur » Eva Laugardagur Miðvikudagur Það er auðvelt að safna. Þú færð Aukakrónur fyrir: » alla innlenda veltu af kreditkorti » viðskipti við samstarfsaðila » þjónustuþætti hjá Landsbankanum landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn J Ó N S S O N & L E ’M A C K S • jl .i s • S ÍA Kínverski kaupsýslumaðurinn Huang Nubo segir í viðtali við dagblaðið China Daily að hann sé nálægt því að ná samningum um umfangsmikla fjárfestingu í ferðaþjónustu á Íslandi. Þar segist hann vonast eftir því að leigusamningurinn um Gríms- staði á Fjöllum verði til 99 ára í stað 40 ára eins og rætt var á ríkisstjórnarfundi . „Líkurnar á að þessu verði hafnað eru ekki miklar því þetta mál kemur ekk- ert inn á verksvið innanríkis- ráðuneytisins,“ segir Nubo. „Samningarnir eru við það að klárast. Ég á von á því að niður- staðan verði ekki fjarri því sem ég vonaðist eftir.“ Vill samning til 99 ára HUANG NUBO Í VIÐTALI VIÐ CHINA DAILY Í GÆR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.