Morgunblaðið - 05.05.2012, Side 8

Morgunblaðið - 05.05.2012, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2012 Sigurður Ingi Jóhannsson, þing-maður Framsóknarflokksins, vék nokkrum orðum að einum af eft- irlætisprófessorum Samfylkingar- innar, Þórólfi Matthíassyni, á þingi í gær.    Sigurður Ingi benti á að prófess-orinn hefði tekið að sér tiltekið hlutverk eftirlits með bönkum fyrir ríkisstjórnina og velti því upp hvort opin- ber umræða prófess- orsins um tiltekin mál væri heppileg í þessu ljósi. Allt var þetta mjög prúð- mannlega fram sett.    Prúðmennska Sig-urðar Inga breytti þó engu um það að þingmenn Samfylkingarinnar hlupu upp til handa og fóta í umræðum um fundarstjórn forseta og máttu vart mæla af vand- lætingu.    Aldrei fyrr hefur pólitísk staðaprófessorsins verið staðfest með jafnafgerandi hætti.    Að nokkru leyti sambærilegur at-burður varð fyrr í vikunni þeg- ar Guðlaugur Þór Þórðarson, þing- maður Sjálfstæðisflokksins, benti á að hægt væri að lesa aðra hluti út úr gögnum um jöfnuð en það sem annar eftirlætisprófessor Samfylkingar- innar, Stefán Ólafsson, gerði. Líkt og Þórólfur er Stefán gjarna fulltrúi Samfylkingarinnar í nefnd- um og ráðum og samfylkingarmenn telja sér jafnan skylt að grípa til varna þegar um hann er rætt til ann- ars en eintóms hróss.    Og auðvitað hneykslast samfylking-arþingmenn mjög þegar á það er bent að þessir menn eru ef til vill eitt- hvað annað en bara fræðimenn. Samfylkja sér um sína fræðimenn STAKSTEINAR Stefán Ólafsson Þórólfur Matthíasson Veður víða um heim 4.5., kl. 18.00 Reykjavík 8 léttskýjað Bolungarvík 6 skýjað Akureyri 6 léttskýjað Kirkjubæjarkl. 9 léttskýjað Vestmannaeyjar 9 léttskýjað Nuuk 3 léttskýjað Þórshöfn 1 skúrir Ósló 5 skýjað Kaupmannahöfn 12 skýjað Stokkhólmur 8 léttskýjað Helsinki 8 heiðskírt Lúxemborg 18 skýjað Brussel 13 léttskýjað Dublin 7 skýjað Glasgow 10 heiðskírt London 8 skýjað París 17 skýjað Amsterdam 10 skýjað Hamborg 12 skúrir Berlín 18 heiðskírt Vín 16 skýjað Moskva 15 heiðskírt Algarve 17 léttskýjað Madríd 16 léttskýjað Barcelona 18 léttskýjað Mallorca 18 léttskýjað Róm 18 heiðskírt Aþena 22 heiðskírt Winnipeg 7 skýjað Montreal 13 alskýjað New York 16 alskýjað Chicago 18 skýjað Orlando 27 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 5. maí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 4:44 22:06 ÍSAFJÖRÐUR 4:31 22:29 SIGLUFJÖRÐUR 4:13 22:13 DJÚPIVOGUR 4:09 21:40 „Þarna eru óskaplega merkilegar og fjölbreyttar jarðminjar m.a. tvö mestu hraungos á jörðinni á sögu- legum tíma. Lífríki er ekki auðugt en það er mjög sérstakt. Í ánum má finna sjóbirting, bleikju, lax og ál. Gróðurfar er sérstætt, stórbrotið og fagurt landslag og víðáttumikil, lítt snortin víðerni,“ segir Þóra Ellen Þórhallsdóttir prófessor. Hún fór fyrir faghópi I í rammaáætlun um áhrif virkjana í Skaftárhreppi á nátt- úrufar, landslag og menningarminj- ar. Í dag fer fram málþing um áhrif virkjana í Skaftárhreppi milli kl. 12 og 15 í Norræna húsinu. Þar mun Þóra fjalla um niðurstöður faghóps- ins, auk þess sem fleiri fjalla um möguleg áhrif Búlandsvirkjunar og Atleyjarvirkjunar á svæðið. Of einstakt svæði Þóra segir áhrifasvæði Búlands- virkjunar vera stórt og sjónræn áhrif af framkvæmdinni mikil. „Virkjunin tekur Skaftá úr farvegi sínum um 14 km leið. Þegar hleypur úr Skaftárkötlum, yfirleitt árlega, má flóðvatnið, sem ber með sér mik- inn aur, ekki fara inn í virkjunina. Það sem stendur til að gera þegar aurflóðin koma er að hleypa vatninu framhjá virkjuninni og niður sinn venjulega farveg. Við teljum að það sé mikil óvissa um hvað verður um aurinn og hversu mikið fok verður úr farveginum þegar vatninu verður aftur hleypt í lónið. Við setjum líka spurningu við það hvort og hversu mikil áhrif þessi virkjun hefur á grunnvatn í byggð, m.a. lindasvæði við Botna og Grenlæk og Tungu- læk,“ segir Þóra. Hún bendir á að í lokaskýrslu rammaáætlunar hafi faghópur I sérstaklega bent á vernd- argildi suðurhluta miðhálendisins, þar með talin vatnasvið Hólmsár og Skaftár. „Við teljum að tíu verðmæt- ustu svæðin sem við mátum séu það verðmæt að það ætti ekki að ráðstafa þeim til nota sem samræmast illa eða ekki hinu ríku verndarhagsmunum.“ Ásamt Þóru tala á málþinginu í dag; Haukur Jóhannesson jarðfræð- ingur, Snorri Baldursson þjóðgarðs- vörður, Vigfús Gunnar Gíslason framkvæmdastjóri, Heiða Guðný Ásgeirsdóttir bóndi og Guðbjörg Jó- hannesdóttir doktorsnemi. ingveldur@mbl.is Áhrifasvæði Búlandsvirkjunar stórt  Málþing um áhrif virkjana í Skaftárhreppi fer fram í Norræna húsinu í dag Frambjóðendur til vígslubiskups- embættisins á Hólum verða þrír en í gær var tekið á móti framboðs- tilkynningu sr. Gunnlaugs Garð- arssonar, sóknar- prests í Glerár- prestakalli á Akureyri. Gerir kjörstjórn ráð fyrir að allur póstur stimplað- ur á lokadegi framboðsfrests, 30. apríl, hafi borist og því muni frambjóðendum ekki fjölga frekar. Þá eru í framboði sr. Kristján Björnsson, sóknarprestur í Vest- mannaeyjaprestakalli, og sr. Sol- veig Lára Guðmundsdóttir, sóknar- prestur á Möðruvöllum í Hörgárdal. Stefnt er að því að senda kjörgögn út um miðjan maí en frá útsendingardegi skal kosn- ingu og talningu atkvæða lokið inn- an tveggja vikna. Þrír verða í framboði  Séra Gunnlaug- ur býður sig fram til vígslubiskups Sr. Gunnlaugur Garðarsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.