Morgunblaðið - 05.05.2012, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 05.05.2012, Qupperneq 11
Morgunblaðið/Ómar Skapandi Sheila Rietscher, yfirmarkaðsstjóri Kahla, er ánægð með árangurinn af samstarfinu. sólarorku. Einnig skiptir samfélagið í grennd við fyrirtækið eigendur þess miklu máli. Því hefur verið lögð áhersla á að Kahli framleiði vörur sín- ar í Þýskalandi. Það skapar störf á svæðinu og auðveldar yfirsýn með framleiðslunni. Gott samstarf Samstarf Kahla og Myndlistar- skólans í Reykjavík hófst með því að óskað var eftir að hópur nemenda úr einum hluta Mótunardeildar skólans fengi að heimsækja verksmiðjuna. Líkaði nemendum vel og úr varð að þeir hlutu aðstoð frá starfsfólki Kahla við að hanna og framleiða vörulínu sem kallaðist; A trip to the factory. Afraksturinn sýndu nemendurnir á DMY-hönnunarsýningunni í Berlín og voru þrjú þeirra valin til að starfa tímabundið hjá fyrirtækinu. Í vetur hafa nemendur unnið að vörulínu er kallast Flow og er hægt að skoða af- raksturinn á sýningu á verkum nem- enda Myndlistarskólans í Reykjavík í nýbyggingu Lækningaminjasafnsins á Seltjarnarnesi. „Hjá okkur fá nemendur tæki- færi á að búa til nýjar vörur og þróa hugmyndir sínar enn frekar. Við vilj- um skapa raunverulegar aðstæður fyrir nemendur sem eru í líkingu við starfsumhverfi þeirra í framtíðinni. Það er athyglisvert fyrir okkur að sjá hvernig ungt fólk vinnur og hvaðan hugmyndir þeirra koma. Úr þessu verða ekki endilega til nýjar vörur en það er áhugavert fyrir okkur að vita af skapandi fólki enda erum við alltaf að leita að nýju fólki og hug- myndum,“ segir Sheila. Finna eigin leiðir „Ég vil nota tækifærið til að hrósa kennurum skólans fyrir gæða- kennslu. Hér höfum við séð einstakar hugmyndir og vil ég þakka fyrir sam- starfið. Ég held að Ísland sé svona „gerðu það sjálfur land“. Hönnuðir reyna að finna leiðir til að framleiða hönnun sína og við viljum styðja við þetta. Hér er engin postulínsfram- leiðsla og með því að bjóða fólki að koma til okkar viljum við leggja hönd á plóg. Fólk er opið hér, ferðast mikið og fær innblástur víða að en sér- staklega úr náttúrunni og íslenskum hefðum eins og við höfum séð í þess- um tveimur verkefnum, “ segir Sheila. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2012 Juice Presso er öflug og vönduð pressa sem er jafnvíg á ávexti, grænmeti, hnetur og fræ. Hæg pressun skilar ferskum og fullkomnum safa - sætum mangó-morgundrykk, kjarngóðu hveitagrasskoti eða jafnvel ilmandi möndlumjólk. J Ó N S S O N & L E ’M A C K S • jl .i s • S ÍA Mjólk úr möndlum Að þessu sinni voru fjórir nem- endur valdir til starfa hjá Kahla. Þau Sigríður Þóra Óðinsdóttir með Apparatus-sápugerðarsett, Sunna Shabnam Halldórudóttir með Morgundögg til að rækta eigin jurtir, Sigrún Jóna Norð- dahl með UM, samband íláts og verkfæris sem flæðir saman í eitt, og María Worms Hjartardóttir með Una, frá brjósti til pela. Hönnunin verður kynnt á vefsíðunni www.ka- hlakreativ.com en þar má einnig finna upplýsingar um stuttmyndakeppn- ina; Table tales, the way to the heart is through the stomach. Hvetur Sheila íslenskt hæfileikafólk til að taka þátt í keppninni. Fjórir nemendur valdir STARFSREYNSLA UM Hönnun, Sigrún Jóna Norðdahl. Sirkus Íslands fagnar eins árs afmæli fullorðinssýningar- innar Skinnsemi í Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld, laugar- dagskvöld 5. maí kl. 22. Sirkus Íslands hefur lengi sett upp vinsælar fjölskyldusýningar en vorið 2011 ákvað sirk- usinn að prófa að gera sýningu sem væri eingöngu fyrir fullorðna. Tókst það vel til og eru nú haldin regluleg full- orðinssirkuskvöld sem kallast Skinnsemi, en nafnið kem- ur til af því að þar er oft sýnt svo mikið skinn. Sýningin er kabarettsýning með sirkusívafi – þar sem lagt er upp úr fullorðinshúmor. Innblástur er sóttur í burlesque- og vaudeville-sýningar þriðja og fjórða áratugarins, en formið var endurvakið á tíunda áratugnum í Bandaríkjunum. Á afmælissýningunni verður boðið upp á fullt af nýjum atriðum auk uppáhalds- atriðanna okkar frá liðnu ári. Sirkus Íslands hefur verið starfræktur frá haustinu 2007 og síðan þá hefur hann vaxið og dafnað. Upphafsmaður og drifkraftur Sirkuss Ís- lands er Lee Nelson sem gjarnan er betur þekktur sem trúðurinn Wally en hann hefur starfað út um allan heim sem götulistamaður síðastliðin 15 ár. Sirkus Íslands samanstendur af fjölbreyttum hópi hæfileikaríks fólks sem allt hefur einstaka hæfileika á sviði sirkuslista og leggur metnað sinn í að bjóða upp á samkrull sirkusatriða þar sem fífldirfska og fjör eru í fyrirrúmi. Sirkus Íslands fagnar eins árs afmæli Fyndið og fullorðins Áts Þetta sirkusbragð lítur ekki sérlega þægilega út. Léttklæddur Mikið af skinni er til sýnis á kvöldunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.