Morgunblaðið - 05.05.2012, Síða 14
Plan Borteigurinn er yfir 3.000 m² en toppurinn á borholunni, sem er við Trölladyngju, er 2,5x3 metrar. Holan er
ónothæf og verður ekki virkjuð. Ómar Smári Ármannsson telur að hún hafi mátt vera mun minni.
FRÉTTASKÝRING
Texti: Rúnar Pálmason
Ljósmyndir: Kristinn Ingvarsson
„Þetta snýst ekki um hvort það eigi
að virkja eða ekki heldur að það verði
gert þannig að menn geti verið sáttir
við framkvæmdirnar,“ segir Ómar
Smári Ármannsson um fyrirhugaðar
jarðhitaboranir á Reykjanesskag-
anum. Hann segir augljóst að við ný-
legar og eldri virkjunarframkvæmdir
á Suðurnesjum og víðar hafi ekki ver-
ið vandað nægilega vel til verka,
hægt hefði verið að hafa borstæðin
eða borteigana undir jarðborana mun
minni, leggja vegi og pípur og reisa
virkjanamannvirki þannig að minna
beri á þeim í landslaginu.
Ómar Smári er vel þekktur fyrir
áhuga sinn á náttúru og minjum
Reykjanesskagans, einkum í
tengslum við ferðahópinn Ferli en
einnig vegna þess að hann er aðstoð-
aryfirlögregluþjónn á höfuðborg-
arsvæðinu. Morgunblaðið fór í vik-
unni með Ómari um þrjú svæði á
Suðurnesjum; að Trölladyngju og
Sogum, Eldvörpum og Krýsuvík. Á
öllum þessum svæðum, og raunar
víðar á Suðurnesjum, stendur til að
virkja jarðhita og svæðin raðast öll í
nýtingarflokk samkvæmt ramma-
áætlun um vernd og nýtingu nátt-
úrusvæða.
Við Trölladyngju eru tvær nýlegar
tilraunaborholur HS orku. Önnur
þeirra og sú nýrri (frá 2006) er uppi í
hlíð, við gönguleiðina að Sogunum
sem er vinsælt útivistarsvæði og
rómað fyrir náttúrufegurð. Þar var
gert borplan sem Ómar og blaðamað-
ur mældu að væri 45x70 metrar að
stærð eða rúmlega 3.000 fermetrar.
Það sem upp úr stendur af borhol-
unni sjálfri – en hún reyndist reyndar
ónothæf – er ekki nema 2,5x5 metrar.
Ómar Smári fylgdist með fram-
kvæmdunum á sínum tíma og hann
segir ljóst að planið hefði mátt vera
mun minna, í það minnsta helmingi
minna, ef viljinn hefði verið fyrir
hendi. Hægt hefði verið að leggja
plan undir borinn en síðan flytja að-
föng að honum eftir því sem þurfti.
Rafstöðina hefði mátt hafa annars
staðar og leggja raflínu meðfram
veginum. Pípur hefði mátt hafa á
neðra borplaninu og flytja þær upp
eftir og varahlutir og vinnuskúra
hefði sömuleiðis mátt hafa þar. Þess
í stað hefði jarðýta gert ljótt sár í
hlíðina og síðan hefði hundruðum
tonna af möl verið ekið á staðinn til
að útbúa óþarflega stórt borplan.
Hafa yrði í huga að jafnvel þótt bor-
holan hefði virkað væri endingartími
jarðhitavirkjana ekki nema 50-60 ár.
Illgerlegt eða ómögulegt væri að
fjarlægja ummerki um holuna að
þeim tíma liðnum. Þá minnir hann á
að rökin með virkjunum séu gjarnan
þau að þær skapi atvinnu. „En það
fá ekki færri vinnu við að virkja þótt
borstæðið sé lítið,“ segir hann.
Sést yfir fornminjar
Ómar Smári tekur fram að hann
sé ekki andvígur því að auðlindirnar
séu nýttar. Vinnubrögðin við borhol-
urnar við Trölladyngju og víðar séu
á hinn bóginn þannig að þau hljóti að
draga úr stuðningi við virkjanir.
„Hér sjá menn bara eyðileggingu og
hugsa: Verður þetta allt svona?“
Hann bendir einnig á að tilviljun
ein hafi ráðið því að vegurinn sem
liggur upp að borstæðinu hafi ekki
farið yfir gamalt sel en tóftir þess
kúra í hlíðinni. Raunar hafi vegurinn
verið lagður án gilds fram-
kvæmdaleyfis þá og þegar hann var
lagður. Leyfið fékkst eftir á og þá
hjá viðeigandi sveitarfélagi.
Sjaldan eru allar tóftir skráðar.
Það gildir t.d. um tóftir í Krýsuvík
sem að óbreyttu muni fara undir
borplan, þar séu auðsjáanlega forn-
minjar sem hvergi hafi verið skráðar
eða rannsakaðar. Aðspurður segir
Ómar Smári að með tillögu HS orku
vegna borunar í Krýsuvík hafi fylgt
fornleifaskráning. „Í skýrslunni eru
þessar tóftir ekki tilgreindar og það
eru ekki nógu góð vinnubrögð.“
Þriðja svæðið sem farið var um
var Eldvörp en þar vill HS Orka
bæta við fimm borteigum, þar af
tveimur sem eru á skilgreindu iðn-
aðarsvæði. Einn borteigur er þar
fyrir, ríflega 3.100 fermetrar auk um
1.200 fermetra svæðis meðfram veg-
inum sem var raskað. Ómar Smári
segir að í Eldvörpunum verði að fara
sérstaklega varlega enda sé svæðið
ríkt af fegurð og sögu en um leið af-
ar viðkvæmt. Ástundi menn sömu
vinnubrögð og hingað til lítist hon-
um hins vegar ekki á blikuna.
Ætla að fara varlega
Ásbjörn Blöndal, forstöðumaður
þróunarsviðs HS Orku, segir að við
Eldvörp standi til að fara eins var-
lega og framast sé unnt. Til standi
að beita skáborun og bora í um
1.000-1.200 metra frá teigunum,
miðað við lóðlínu, sem sé það mesta
sem hægt sé að gera í jarðlögum
sem þessum.
Það vekur nokkra athygli að einn
af nýju teigunum í Eldvörpum er
nánast við hliðina á þeim eina sem
fyrir er. Ásbjörn segir að ekki sé
hægt að nota þann gamla þar sem
staðsetningin hans sé með þeim
hætti að erfitt sé að stækka hann. Ef
hann yrði stækkaður yrði farið yfir
svæði sem menn vilji vernda.
En hvað þá með stærð borteig-
anna? Ásbjörn segir að undanfarin
ár og áratugi hafi menn reynt að
taka sem minnst svæði undir bor-
teiga. „Það er fyrst og fremst verk-
takinn sem ákvarðar hvað hann þarf
til að hann geti unnið verkið sóma-
Minnka mætti rask
með minni borteigum
„Hér sjá menn bara eyðileggingu og hugsa: Verður þetta
allt svona?“ HS Orka segir þá ekki of stóra Þurfa pláss
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2012
www.eimskip.is
Eimskipafélag Íslands og Kiwanishreyfingin
færa öllum grunnskólabörnum í 1. bekk
reiðhjólahjálm að gjöf undir yfirskriftinni
Óskabörn þjóðarinnar. Átakið er unnið
í góðu samstarfi við grunnskóla landsins.
ÓSKABÖRN
ÞJÓÐARINNAR
ÞURFA HJÁLM
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA