Morgunblaðið - 05.05.2012, Side 23
FRÉTTIR 23Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2012
Í tilefni af Evrópudeginum 9. maí stendur Evrópustofa –
upplýsingamiðstöð ESB á Íslandi – fyrir Evrópuviku dagana 7.-13. maí
Hápunktar vikunnar eru Evrópuhátíð í Hörpu og djasstónleikar
í Eldborg með European Jazz Orchestra og Stórsveit
Reykjavíkur, opnun Evrópustofu á Akureyri og
borgarafundur í Iðnó með sendiherra ESB á Íslandi
Dagskrá Evrópuvikunnar:
Mánudagur 7. maí
» Akureyri: Opnun Evrópustofu í Norrænu
upplýsingaskrifstofunni að Kaupvangsstræti 23
kl. 12:30-13:15
» ESB í máli og myndum
- sýning á Glerártorgi 7.-12. maí
Þriðjudagur 8. maí
» Borgarafundur í Iðnó með sendiherra ESB
á Íslandi kl. 17:00-18:00
Evrópudagurinn 9. maí
» ESB í máli og myndum
- sýning í Kringlunni 9.-12. maí
» Tækifæri fyrir ungt fólk í Evrópu
– fundur í Evrópustofu kl. 16:30-18:00
Fimmtudagur 10. maí
» Opinn fundur í Iðnó um öryggis- og
varnarmálastefnu ESB og Ísland. Haldið á vegum
Nexus, rannsóknarvettvangs á sviði öryggis- og
varnarmála, Alþjóðamálastofnunar HÍ og
Evrópustofu
Föstudagur 11. maí
» Menningarvor í Evrópustofu
– tónleikar með Snorra Helgasyni kl. 12:00-13:00
Laugardagur 12. maí
» Upphitun fyrir Evrópuhátíð
– tónlist og kynningar í Kringlunni
Sunnudagur 13. maí
» Evrópuhátíð í Hörpu kl. 13:00-17:00
- ESB í máli og myndum – sýning
- Kynning á áhugaverðum Evrópu-
samstarfsverkefnum og styrkjum
- Rjómi ungra íslenskra uppistandara og Blár
Ópall skemmta gestum
» Tónleikar í Eldborgarsal Hörpu kl. 20:00-22:00
Aðgangur ókeypis – miðar hjá miðasölu Hörpu!
- Stórsveit Reykjavíkur
- European Jazz Orchestra
Kynnir: Ari Eldjárn
Evrópusambandið fjármagnar
starfsemi Evrópustofu.
Nánari upplýsingar á www.evropustofa.is
Allir velkomnir
Meirihluti stjórnar Samtaka sveitar-
félaga á Norðurlandi vestra lýsir
miklum áhyggjum af áhrifum fram-
kominna frumvarpa um stjórn fisk-
veiða og veiðigjald. Í ályktun er
minnt á að undanfarin ár hafi svæðið
mátt búa við samdrátt á ýmsum svið-
um. „Það að boða stórfellda gjald-
töku á fyrirtækjum í sjávarútvegi er
því bein aðför að stöðu Norðurlands
vestra. Stjórnin áréttar þá sann-
gjörnu kröfu að sjávarbyggðir njóti
réttlátrar hlutdeildar í hverri þeirri
gjaldtöku sem lögð verður á grein-
ina,“ segir í ályktuninni.
Með fyrirliggjandi frumvörpum
um stjórn fiskveiða sé vegið að af-
komuöryggi sjávarbyggða, þeirra
sem starfa í greininni og fyrirtækja í
sjávarútvegi, jafnt stórra og ekki
síst smærri útgerða.
„Samkvæmt útreikningum endur-
skoðunarfyrirtækisins KPMG mun
veiðigjald útgerða á Norðurlandi
vestra nema 933 milljónum króna
auk þess sem varanlegar aflaheim-
ildir á svæðinu dragast saman um
567 þorskígildistonn (3,4%) frá því
fyrir gildistöku laga nr. 70/2011 og
348 þorskígildistonn (2,1%) frá yfir-
standandi fiskveiðiári, segir í álykt-
uninni.
Vegið að af-
komuöryggi
sjávarbyggða
Afli Lýst er miklum áhyggjum af
áhrifum kvótafrumvarpanna.
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, sagði í um-
ræðum á Alþingi í gær að kvóta-
frumvörp ríkisstjórnarinnar hefðu
verið lögð fram á kolröngum for-
sendum, m.a. með tilliti til útreikn-
inga á auðlindarentu. „Mér finnst að
ráðherrann eigi að lýsa yfir því að
hann hafi gert mistök með því að
leggja málið svona fram,“ sagði
Bjarni sem beindi þessum orðum
sínum að Steingrími J. Sigfússyni,
sjávarútvegs- og landbúnaðarráð-
herra. Þá lýsti Bjarni einnig furðu
sinni á því að Steingrímur hefði lagt
fram frumvörp sem þýddu að stór
hluti sjávarútvegsfyrirtækja myndi
hreinlega ekki lifa af.
Steingrímur vísaði því hins vegar
á bug að hann hefði gert mistök með
því að leggja frumvörpin fram, hann
sagðist telja að aðferðafræðin við út-
reikninga á veiðileyfagjaldinu væri
rétt. „Greiningin hins vegar á þoli
hennar í dag til að greiða segir okkur
hryllilega sögu um hvernig ástandið
var orðið í efnahag íslensks sjávar-
útvegs í lok vitleysistímans því að
þrátt fyrir þennan mikla bata sem
orðinn er, óvenjugóðar aðstæður þar
sem saman fer lágt raungengi krón-
unnar, hátt afurðaverð og góð afla-
brögð, og framlegð upp á 75 millj-
arða króna eða svo, þá eru sum
fyrirtækin enn jafnilla sett og raun
ber vitni,“ sagði Steingrímur.
Deildu um kvótafrumvörp
Morgunblaðið/Golli
Alþingi Steingrímur og Bjarni deildu um kvótafrumvörpin á Alþingi í gær.
Vill að ráðherra viðurkenni að það hafi verið mistök að
leggja kvótafrumvörpin fram Ráðherra vísar því á bug
Þóra Arnórs-
dóttir mælist með
mest fylgi fram-
bjóðenda til for-
setakjörs sam-
kvæmt könnun
Capacent Gallup
sem greint var
frá í fréttum Rík-
isútvarpsins í
gærkvöldi. Tæp-
lega 1.400 manns voru í úrtakinu og
svarhlutfallið var um 60 prósent, þar
af tóku 82 prósent afstöðu til fram-
bjóðenda en 13 prósent hafa ekki
gert upp hug sinn.
Af þeim sem afstöðu tóku styðja
46,4% Þóru og 37,2% styðja Ólaf
Ragnar Grímsson. Tæp 11% styðja
Ara Trausta Guðmundsson. Aðrir
frambjóðendur njóta umtalsvert
minna fylgis. 3,1% styður Herdísi
Þorgeirsdóttur, 1,3 prósent styðja
Ástþór Magnússon, 0,8% Jón Lár-
usson og 0,3% Hannes Bjarnason.
Þóra mælist
með mest fylgi
frambjóðenda
Þóra Arnórsdóttir