Morgunblaðið - 05.05.2012, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 05.05.2012, Qupperneq 25
FRÉTTIR 25Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2012 efnisnotkun og persónulegt mynd- mál. Kristinn Már úskrifaðist frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1994 og lauk framhaldsnámi við Slade School of Fine Art í Lond- on árið 1998. Hann á að baki fjölda einkasýninga auk þátttöku í sam- sýningum og samvinnuverkefnum. Kristinn Már Pálmason opnar í dag málverkasýningu í Reykjavík Art Gallery, Skúlagötu 30, og ber hún yfirskriftina Dark Lucidity. Í til- kynningu segir að Kristinn hafi fengist sérstaklega við að rannsaka mörk og samhengi málverksins og gert tilraunir með óhefðbundna Dark Lucidity Kristins Más Málverk Kristinn Már við upphengingu verka sinna í Reykjavík Art Gallery. Morgunblaðið/Golli Bókasafn Garðabæjar í samstarfi við menn- ingar- og safnanefnd Garðabæjar býður í sögugöngur um Garðabæ og Vífilsstaði þar sem fjallað er um bækur sem gerast í Garða- bæ og nágrenni. Í dag kl. 11 verður gengið með Kristínu Helgu Gunnarsdóttur um sögu- svið bókanna um Binnu og Móa hrekkjusvín, en þær gerast í Garðabæ, nánar tiltekið í Silf- urtúni. Kristín Helga segir frá tilurð bókanna og skoðar Garðahreppinn sem breyttist í bæ. Einnig verður spjallað um barnið í úthverfinu út frá veröld Fíusólar. Á þriðjudaginn kemur kl. 16:30 verður far- ið í göngu með Einari Má Guðmundssyni rit- höfundi um Vífilsstaði. Hann mun fjalla um tilurð og sögusvið bókar sinnar Draumar á jörðu sem gerist að miklu leyti á Vífilsstöðum, en sagan segir frá Sæunni sem liggur fyrir dauðanum á berklahælinu á Vífilsstöðum. Lagt verður af stað í báðar göngur frá Bókasafni Garðabæjar á Garða- torgi og eru allir velkomnir. Allar nánari upplýsingar um göngurnar má sjá á www.gardabaer.is. Sögugöngur í Garðabæ undir leiðsögn Kristínar Helgu og Einars Más Kristín Helga Gunnarsdóttir MENNING Sýning á verkum myndlistarmanns- ins Hreins Friðfinnssonar verður opnuð í húsakynnum Arion banka að Borgartúni 19 í dag kl. 13:30. Sýnd verða verk úr einkasafni Pét- urs Arasonar og Rögnu Róberts- dóttur, auk tveggja verka í eigu bankans sjálfs. Við opnunina kl. 13:30 flytur Gunnar J. Árnason, listheimspekingur, erindi um Hrein og listsköpun hans. „Það er mikill fengur að fá að líta verk Hreins Friðfinnssonar á sýn- ingu sem þessari. Hreinn er einn af þekktustu myndlistarmönnum okk- ar Íslendinga. Hann hefur hlotið margskonar verðlaun og við- urkenningar fyrir verk sín víða um heim enda er hann talinn með fremstu listamönnum samtímans af alþjóðlegum listfræðingum,“ segir m.a. í tilkynningu frá bankanum. Sýning með verkum Hreins Friðfinns- sonar opnuð í Arion banka Uppspretta eftir Hrein Friðfinnsson. Um þessar mundir stendur yfir sýning á verkum Ant- oni Tàpies á Kjarvals- stöðum. Á morgun kl. 15 mun Klara Þórhalls- dóttir, verk- efnastjóri fræðslu hjá Listasafni Reykjavíkur, leiða gesti um sýninguna. Þessi katalónski listamaður er af mörg- um talinn einn af helstu áhrifavöld- um á þróun málverksins á seinni hluta tuttugustu aldarinnar. Flest verka hans eru úr hversdagslegum hlutum, fundnu efni, mold, sandi, jarðvegi, þurrkuðu blóði og stein- ryki. Sýningunni lýkur 20. maí og ber yfirskriftina Antoni Tàpies – Mynd, líkami og tregi. Sýningar- stjóri er dr. Eva Schmidt. Leiðsögn um sýningu Tàpies Verkið Cap i vernis eftir Antoni Tàpies. Bergsveinn Þórs- son sagnfræð- ingur fjallar um grænlenska myndlistarmann- inn Aron frá Kaneq í fyr- irlestri í Lista- safni Íslands í dag kl. 13. Aron fæddist árið 1822 og ólst upp sem veiðimað- ur en sneri sér að myndlist í kjölfar veikinda. „Verk hans gegna mik- ilvægu hlutverki í grænlenskri menningarsögu, en í þeim má finna sjónarhorn heimamanns á samfélag sitt á nítjándu öld. Í verkunum má m.a. finna einstaka sjónræna skrá- setningu á kynnum inúíta og skand- inava,“ segir í tilkynningu frá Listasafninu. Bergsveinn fjallar um Aron, arfleifð hans og stöðu innan grænlenska þjóðararfsins, m.a. með hliðsjón af tengslum þekkingar og valds, listar og pólitíkur. Aron frá Kaneq ræddur Eitt verka Arons. Fiskveiðistjórnun og framtíð sjávarútvegs Tímarit um viðskipti og efnahagsmál stendur fyrir ráðstefnu um áhrif fiskveiðistjórnunar á sjávarútveg og tengdar greinar. Lagaleg umgjörð fiskveiða við Ísland, einkum fiskveiði- stjórnunarkerfið, er í deiglunni. Á ráðstefnunni verður fjallað um fiskveiðistjórnun á breiðum grunni og áhrif hennar á framtíð sjávarútvegs, með áherslu á áður ókönnuð áhrif á tengda atvinnustarfsemi og samfélagið í víðara samhengi. 08:30 Setning 08:40 Helgi Áss Grétarsson, Kvótakerfi sem lagaleg og efnahagsleg stofnun Kristín Haraldsdóttir, Frumvarp til laga um stjórn fiskveiða í ljósi jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar Lúðvík Elíasson, Um hvað snúast lög um stjórn fiskveiða? 10:10 Kaffihlé 10:30 Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegsráðherra, Auðlind í sameign þjóðar Þóroddur Bjarnason, Fiskveiðistjórnun og framtíð sjávarbyggða Þór Sigfússon, Íslenski sjávarklasinn: Það fiskast best á markmiðum! Þórir Sigurðsson, Afleiðingar stjórnlausra fiskveiða og fjármála 12:30 Hádegishlé 13:10 Ragnar Árnason, Alþjóðleg samkeppnisstaða íslensks sjávarútvegs Þórólfur Matthíasson, Áhrif veiðigjalds á fjárhagsskipan sjávarútvegsfyrirtækja Birgir Þór Runólfsson, Skipulag fiskveiða og arðsköpun; hver eru tengslin? 14:40 Kaffihlé 15:00 Níels Einarsson, Fiskveiðiréttindi, fjármálaafurðir og félagslegt réttlæti í sjávarútvegi Einar Svansson og Stefán Kalmansson, Greining á íslenskum sjávarútvegi út frá tveimur leiðandi kenningum Ögmundur Knútsson og Daði Már Kristófersson, Áhrif fiskveiðistjórnunar á virðiskeðju íslensks bolfisks 16:30 Ráðstefnuslit Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Hvenær: Miðvikudaginn 9. maí 2012 kl: 8:30–16:30 Hvar: Háskóli Íslands, Askja N132 efnahagsmal. is Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Húsafriðunarnefnd hefur sent mennta- og menningarmálaráðherra tillögu að friðun Skálholtskirkju, Skálholtsskóla og nánasta umhverf- is, að undanskilinni yfirbyggingu yf- ir friðlýstar forleifar Þorláksbúðar. Nikulás Úlfar Másson, forstöðumað- ur Húsafriðunarnefndar, segir að til- lagan sé ítrekun á þeim sjónarmið- um að umhverfi Skálholts sé viðkvæmt og beri að varðveita og þá segir hann framtíð yfirbyggingar- innar óljósa. „Við beittum skyndifriðun á sínum tíma en ráðherra þótti umþóttunar- tími hagsmunaaðila ekki nógu lang- ur og lagði til að við gerðum þetta í samræmi við lög um almenna friðun húsa. Og við urðum við því,“ segir Nikulás. Í tillögunni er gert ráð fyrir að friðunin taki til innra og ytra byrðis Skálholtskirkju og ytra byrðis Skál- holtsskóla. Eini hagsmunaðilinn að málinu er kirkjuráð, sem vísaði í um- sögn sinni til svarsins sem ráðið sendi ráðherra í nóvember 2011, þar sem tillögu Húsafriðunarnefndar að skyndifriðun var mótmælt. Framtíð búðarinnar óljós Nikulás segir óljóst hvaða áhrif friðun hefði á framtíð Þorláksbúðar, eða yfirbyggingarinnar, eins og hún er nefnd í tillögu nefndarinnar, en segir upphaf málsins alls vissulega mega rekja til óánægju með stað- setningu hennar. „Í raun og veru er Húsafriðunar- nefnd með þessu að segja að þarna sé mjög viðkvæmt tuttugustu aldar umhverfi og það beri að fara varlega með það. Og að vissu leyti er verið að ítreka að þetta hús fer mjög illa á þessum stað,“ segir Nikulás. Þá seg- ir hann önnur atriði óljós varðandi framtíð Þorláksbúðar, svo sem hver muni hafa umsjón með henni og ann- ast viðhald. Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, sagði í gær að ráðuneytinu hefði borist tillagan en hún hefði ekki enn verið tekin til efnislegrar skoðunar. „Við munum fara yfir málið eins og aðrar hefðbundnar friðunartillög- ur,“ sagði Katrín en þar sem málið hefði aðeins borist ráðuneytinu ný- lega væri niðurstöðu ekki að vænta alveg á næstunni. Hugsanlega yrði kallað eftir frekari umsögnum um tillöguna áður en málið yrði afgreitt. Vilja friða Skálholt  Húsafriðunarnefnd vill friða Skálholt að undanskilinni Þor- láksbúð  Tillagan ítrekun á slæmri staðsetningu hússins Morgunblaðið/Brynjar Gauti Friðun Skálholtskirkja hin fagra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.