Morgunblaðið - 05.05.2012, Síða 27
FRÉTTIR 27Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2012
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
„Samþjöppun á fjármálamarkaði
hefur aukist mikið frá hruni, sam-
hliða fækkun fjármálafyrirtækja,“
sagði Páll Gunnar Pálsson, forstjóri
Samkeppniseftirlitsins, á málþingi
um stöðu og framtíð sparisjóðanna
sem haldið var í gær. „Samþjöppun á
markaðinum mælist vera rúmlega
3.000 stig eftir samruna Landsbank-
ans og SpKef annars vegar og Ís-
landsbanka og Byrs hins vegar á hin-
um svonefnda
Herfindahl-Hirschman-kvarða, sem
notaður er í samkeppnisrétti til að
mæla samþjöppun. Fram að hruni
mældist samþjöppunarstuðullinn
hins vegar undir 2.000 stigum en al-
mennt telst markaður mjög sam-
þjappaður ef stuðullinn er hærri en
1.800 stig.“
Á málþinginu, sem haldið var á
Hótel Sögu, héldu tölu auk Páls
Gunnars, þau Ari Teitsson, stjórn-
arformaður SÍSP (Samband ís-
lenskra sparisjóða), Ragnar Þórir
Guðgeirsson, ráðgjafi hjá Expectus,
og Helga Jónsdóttir, ráðuneytis-
stjóri í efnahags- og viðskiptaráðu-
neytinu.
Páll Gunnar talaði um mikilvægi
þess að skapa uppbyggilegar sam-
keppnisaðstæður þar sem fyrirtæki
eins og sparisjóðirnir gætu vaxið og
veitt öðrum aðhald. Ari, Ragnar Þór-
ir og Helga töluðu um sérstöðu
sparisjóðanna og hvernig þeir gætu
nýtt sér hana til að skapa sér sterka
stöðu á markaðnum.
Þrír bankar ráðandi
Páll Gunnar benti á að markaðs-
hlutdeild þriggja stóru bankanna
hefði haldist að mestu óbreytt síð-
ustu tíu árin en yfirtökur þeirra að
undanförnu aukið hlutdeild þeirra.
En á slíkum fákeppnismarkaði væri
hætta á að fyrirtækin sæju sér hag í
því „verða samstiga í markaðshegð-
un og hámarka þannig sameiginleg-
an hagnað. Slík hegðun fyrirtækja er
skaðleg,“ sagði Páll Gunnar.
Hann benti á að SPRON hefði
stuðlað að meiri samkeppni á mark-
aðnum og að brotthvarf hans hefði
styrkt markaðsráðandi stöðu við-
skiptabankanna þriggja sem væri
ekki heppilegt.
Páll Gunnar taldi upp mörg atriði
sem væru nauðsynleg til að gefa
smærri fjármálafyrirtækjum eins og
sparisjóðum olnbogarými.
Í fyrsta lagi að skipulag fjármála-
markaðar sé þannig að það hindri
ekki vöxt smærri fyrirtækja. Hann
benti á að því miður væru dæmi um
slíkar hindranir á liðinni tíð. Hann
nefndi þar til dæmis að eftir húsleit
hjá greiðslukortafyrirtækjum og
Fjölgreiðslumiðlun á árunum 2006
og 2007 voru fyrirtækin sektuð um
rúmar 700 milljónir króna fyrir að
hindra nýjan keppinaut í því að hasla
sér völl á markaðnum.
Þá minntist hann á fyrirhuguð
kaup Reiknistofu bankanna á Teris.
Hann sagði frá því að verið væri að
athuga hvort hægt væri að skilyrða
þann samruna og tryggja smærri
keppinautum, m.a. sparisjóðunum,
fullan aðgang að öllum kerfum og
allri þjónustu sem Reiknistofa
bankanna innti af hendi.
Hann nefndi einnig að þau hefðu
til skoðunar hvort viðskiptabönkun-
um þremur, með slíka yfirburða-
stöðu sem þeir hefðu á markaðnum,
væri heimilt að binda fjármálaþjón-
ustu þeim skilyrðum að önnur fjár-
málaþjónusta til viðskiptamanns
væri á hendi sama banka.
Sérstaða sparisjóðanna
Ari ítrekaði uppruna sparisjóð-
anna, hvernig tilgangur þeirra þeg-
ar þeir voru stofnaðir á 19. öld var
að flytja afgangsfjármagn á milli
manna á sama svæði án mikils til-
kostnaðar. Hann sagði þörf fyrir
slíkar fjármálastofnanir enn vera til
staðar. Stofnanir sem stunda sjálf-
bæra svæðisbundna fjármálastarf-
semi á grundvelli samfélagslegrar
ábyrgðar.
Ragnar Þórir tók undir með Ara
og benti einnig á að ákveðin sókn-
artækifæri fælust í því að aðeins 7%
þjóðarinnar bæru traust til bank-
anna.
Erfitt fyrir sparisjóðina á markaði
Íslenskur fjármálamarkaður er fákeppnismarkaður og erfitt fyrir smærri fyrirtækin að vaxa
Tækifærin felast í sérstöðu sparisjóðanna Uppruni þeirra er í samhjálp og samfélagsábyrgð
Spara Hvert sæti var setið á málþingi um framtíð sparisjóðanna sem haldið
var í gær á Hótel Sögu og pallborðsumræður urðu fjörugar.
Morgunblaðið/Golli
Til að bæta
samkeppnisstöðu þarf:
» Að huga vel að skipulagi
fjármálamarkaðar.
» Finna leiðir til að hagræða í
íslensku bankakerfi.
» Fylgjast með samkeppnis-
háttum viðskiptabankanna.
» Setja eignarhaldi bankanna
á atvinnufyrirækjum skorður.
» Tryggja að ekki sé til staðar
ólögmætt samstarf fjármála-
fyrirtækja.
» Skapa umhverfi þar sem
viðskiptamanni sé gert auðvelt
að skipta um fjármálafyrirtæki.
w w w . o p t i c a l s t u d i o . i sTEG: LINDBERG SPIRIT
TEG: CHROME HEARTS
TEG: RAY•BAN
OPTICAL STUDIO
FRÍHÖFN LEIFSSTÖÐ
Verslaðu á hagstæðara verði
í okkar fullbúnu gleraugnaverslun
á fríhafnarsvæðinu í Leifsstöð
Á L E I Ð T I L Ú T L A N D A