Morgunblaðið - 05.05.2012, Side 28
28 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2012
BAKSVIÐ
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Talið er að niðurstaða þingkosninga
sem fram fara í Grikklandi á morgun
leiði til mikillar pólitískrar óvissu í
landinu, jafnvel glundroða sem geti
orðið til þess að efnahagskreppan í
landinu ágerist enn frekar.
Stjórnmálaskýrendur telja líklegt
að niðurstaðan verði sú að tveir
stærstu flokkarnir, hægriflokkurinn
Nýtt lýðræði og sósíalistaflokkurinn
PASOK, geti ekki myndað meiri-
hlutastjórn eftir kosningarnar. Frá
því að lýðræði var komið á að nýju í
Grikklandi árið 1974 eftir sjö ára ein-
ræði hersins hafa forsætisráðherrar
landsins komið úr þessum tveimur
flokkum, að undanskildum forsætis-
ráðherrum þriggja skammlífra
bráðabirgðastjórna.
Skoðanakannanir benda til þess að
jaðarflokkar til hægri og vinstri auki
mjög fylgi sitt í kosningunum á
morgun. Á meðal þeirra eru harð-
línukommúnistar og Gullin dögun,
fasistaflokkur sem hefur aldrei átt
fulltrúa á þinginu. Flokkarnir eiga
það sameiginlegt að vera andvígir
sparnaðaraðgerðum sem ráðamenn á
evrusvæðinu settu sem skilyrði fyrir
neyðarlánum til að afstýra greiðslu-
þroti gríska ríkisins.
Fréttaveitan AFP hefur eftir hag-
fræðingum að samningurinn við Evr-
ópusambandið og Alþjóðagjaldeyris-
sjóðinn um skilmála aðstoðarinnar sé
í mikilli hættu. Svo kunni að fara að
Grikkland þurfi að segja skilið við
evruna ef ekki tekst að mynda
trausta ríkisstjórn.
Bannað er að birta nýjar skoðana-
kannanir síðustu tvær vikurnar fyrir
þingkosningar í Grikklandi, en þær
síðustu benda til þess að mjög erfitt
verði að mynda meirihlutastjórn eftir
kosningarnar. Búist er við að tíu
flokkar fái sæti á þinginu – fleiri en
nokkru sinni fyrr frá því að lýðræði
var komið á að nýju árið 1974.
Stóru flokkarnir tveir fengu sam-
tals 80% fylgi í síðustu kosningum en
kannanirnar benda til þess að fylgi
þeirra sé nú um 40% og þeir geti prís-
að sig sæla fái þeir 50% atkvæðanna
samanlagt.
Telja að kjósa þurfi aftur
Líklegt er að Nýtt lýðræði verði
stærsti flokkurinn og leiðtoga hans,
Antonis Samaras, verði falið að
mynda næstu ríkisstjórn. Samaras er
hins vegar sagður tregur til að
mynda nýja stjórn með PASOK. Fari
svo að flokkarnir tveir geti myndað
meirihlutastjórn þykir líklegt að hún
verði skammlíf.
Stjórnmálaskýrendur The Wall
Street Journal hafa eftir heimildar-
mönnum sínum í stóru flokkunum
tveimur að þeir búist við því að efna
þurfi til nýrra þingkosninga í vor eða
sumar.
Blaðið segir að nokkrir af ráðgjöf-
um Samaras spái því að PASOK
veikist svo í kosningunum á sunnu-
dag að flokkurinn verði óstarfhæfur í
ríkisstjórn vegna innbyrðis deilna.
Þeir telja því líklegt að Nýtt lýðræði
fari með sigur af hólmi ef kosið verð-
ur að nýju í vor eða haust. Eftir að
hafa refsað stóru flokkunum tveimur
sé líklegt að glundroðinn á þinginu
verði til þess að margir kjósendanna
vilji tryggja pólitískan stöðugleika og
telji að Nýtt lýðræði sé best til þess
fallið að mynda trausta stjórn.
Flokkurinn geti því fengið meirihluta
ef kosið verður að nýju, hugsanlega í
júní.
Stóru flokkarnir tveir styðja
samninginn um neyðarlánin en vilja
semja um breytingar á skilmálunum
eftir kosningarnar. Flestir hinna
flokkanna vilja hins vegar segja
samningnum upp.
Samkvæmt samningnum þurfa
stjórnvöld í Grikklandi að samþykkja
stórfelldar sparnaðaraðgerðir ekki
síðar en í júní. Náist ekki samkomu-
lag um sparnaðinn fyrir tilsettan
tíma er líklegt að ESB-ríkin og Al-
þjóðagjaldeyrissjóðurinn stöðvi að-
stoð sem Grikkland þarf til að kom-
ast hjá greiðsluþroti. Það gæti síðan
magnað pólitísku kreppuna og ólg-
una í Grikklandi, að mati stjórnmála-
skýrenda The Wall Street Journal.
Óttast pólitískan glundroða
AFP
Óvissa Stuðningsmenn Nýs lýðræðis á kosningafundi í Aþenu.
Útlit fyrir að stóru flokkarnir í Grikklandi geti ekki myndað meirihlutastjórn eftir kosningarnar
Samningurinn um neyðarlánin í hættu Jaðarflokkum til vinstri og hægri spáð stórauknu fylgi
300
72129
31
SÍÐUSTU SKOÐANAKANNANIR í prósentum
ÞINGKOSNINGAR Í GRIKKLANDI
Nýtt
lýðræði (NL)
Íhaldsmenn
PASOK (Samgríska
sósíalistahreyfingin)
Jafnaðarmenn
Gríski
kommúnista-
flokkurinn 21
Óháðir
Grikkir (ÓG)
Hægrimenn
10
Óflokksbundnir
þingmenn
Lýðræðislegi vinstri-
flokkurinn (LV) 10
Vinstribanda-
lagið (VB) 11
LAOS
Hægriflokkur
16
Stjórnarflokkar
SKIPTING ÞINGSÆTA EFTIR FLOKKUM FYRIR KOSNINGARNAR
22,215,810,69,9 9,37,8 5,2
NLPASOKVBKKE ÓGLV
Gullin
dögun
LAOS
3,5
2,9
Lýðræðis-
bandalagið
Heimildir: Reuters, gríska þingið.
Flokkar sem styðja samninginn við ESB og AGS: Stjórnarflokkarnir (PASOK, NL) og
Lýðræðisbandalagið (flokkur fjögurra þingmanna sem voru kjörnir á þing sem óháðir. Þeir geta
ekki myndað formlegan þingflokk þar sem þeir eru með færri en tíu þingsæti).
Allir aðrir stjórnmálaflokkar Grikklands eru andvígir samningnum.
Tölurnar eru meðaltalsniðurstöður kannana sem gerðar voru 19.-20.
apríl. Fylgi meðal þeirra sem tóku afstöðu til flokka.
Efnahagur í lamasessi
» Búist er við að efnahagur
Grikklands dragist saman í ár,
fimmta árið í röð. Samdráttur-
inn nam 14% á síðustu þremur
árum.
» Atvinnuleysið er um 22%.
Rúm 50% Grikkja undir 25 ára
aldri eru án atvinnu. Fjórð-
ungur allra fyrirtækja landsins
hefur hætt rekstri frá árinu
2009.
» Laun og ellilífeyrir hafa
lækkað um allt að 40%.
Nýjar vörur –Wilmot sófinn er kominn.
Pantanir óskast sóttar.
Bandarískir embættismenn sögðu í
gær að stjórnvöld í Kína hefðu gefið
til kynna að þau myndu heimila and-
ófsmanninum Chen Guangcheng að
fara úr landi.
Embættismenn í bandaríska utan-
ríkisráðuneytinu sögðu að Chen
hefði verið boðinn námsstyrkur til að
stunda framhaldsnám í bandarískum
háskóla. Kínverskir embættismenn
hefðu gefið til kynna að eiginkona
Chens og börn fengju að fara með
honum.
Áður höfðu kínversk stjórnvöld
sagt að Chen gæti óskað eftir leyfi til
að stunda háskólanám erlendis.
Chen, sem er blindur, sjálfmennt-
aður lögfræðingur, flúði úr stofu-
fangelsi 22. apríl í Shandong-héraði
þótt hann hefði verið í strangri
gæslu tuga varða. Hann dvaldi í sex
daga í sendiráði Bandaríkjanna í
Peking þar til á miðvikudag þegar
hann féllst á að fara þaðan á sjúkra-
hús eftir að samkomulag náðist milli
Bandaríkjamanna og Kínverja um
að honum yrði veitt frelsi. Hann
hugðist þá vera áfram í Kína en hon-
um snerist hugur síðar og hann
kvaðst vilja fara þaðan vegna þess að
hann óttaðist um öryggi sitt og fjöl-
skyldu sinnar.
AFP
Viðræður Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, ræddi við Hu
Jintao, forseta Kína, í Peking í gær. Deilan um Chen skyggði á viðræðurnar.
Segja að Chen verði
leyft að fara frá Kína