Morgunblaðið - 05.05.2012, Side 32
32 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2012
Það geta sennilega
langflestir tekið undir
það að þátttaka í stjórn-
málum á að ganga út á
einbeittan vilja til að
vinna að samfélagsheill
almennra borgara. Í
samtímanum hefur
skapast mikið svigrúm
fyrir nýtt stjórnmálaafl
sem hefur einmitt þetta
að leiðarljósi. SAMSTAÐA flokkur
lýðræðis og velferðar var stofnaður í
Borgarfirði 15. janúar á þessu ári.
Samstaða er flokkur sem vill sjá
meiri jöfnuð og réttlæti í íslensku
samfélagi. Við viljum segja skilið við
hagsmunapólitík og byggja upp sam-
félag þar sem vönduð málefnavinna
er í forgrunni. Við viljum byggja upp
samfélag þar sem raddir allra hafa
sama vægi.
Fólkið sem stóð að stofnun Sam-
stöðu flokks lýðræðis og velferðar
setti saman grundvallarstefnuskrá
sem byggir á þessum markmiðum en
það vantar fleiri til að vinna að því að
þau nái fram að ganga. Fólkið sem
stendur að baki Samstöðu nú kemur
úr ýmsum áttum en það vantar enn
meiri fjölbreyttni. Til að gefa ein-
hverja mynd af því hverjir standa að
baki Samstöðu nú verða þeir sem
skipa stjórn flokksins og leiða aðild-
arfélög hans í Reykjavík og Krag-
anum taldir hér með örstuttri kynn-
ingu.
Lilja Mósesdóttir, doktor í hag-
fræði og þingmaður, er formaður
þessa nýja afls. Lilja var nýlega kosin
annar tveggja vinsælustu þingmanna
landsins í fjölmiðlum og kemur ekki á
óvart þar sem hún hefur talað fyrir
hagsmunum fjölskyldnanna í landinu,
fyrst á opnum borgarafundum haust-
ið 2008 og síðar bæði á þingi og í fjöl-
miðlum. Lilja starfaði áður með
Vinstri grænum.
Agnes Arnardóttir, atvinnurek-
andi, er annar tveggja varaformanna
Samstöðu. Agnes, sem er búsett á
Akureyri, hefur verið í málaferlum
við Landsbankann vegna uppgjörs
skulda fyrirtækis hennar og eig-
inmanns við bankann. Agnes hefur
verið ósátt við þá mismunun sem hef-
ur verið við lýði hjá bankastofnunum
við uppgjör skulda við bankana og
hefur kært æðstu yfirmenn Lands-
bankans til sýslumanns fyrir fjársvik.
Sú kæra er enn í gangi ásamt und-
irbúningi að margþættri málshöfðun.
Agnes starfaði áður með Samfylking-
unni.
Sigurjón Norberg Kjærnested,
verkfræðingur, er líka varaformaður
Samstöðu. Kristbjörg Þórisdóttir er
meðstjórnandi Samstöðu en hún er
sálfræðingur að mennt ásamt því að
vera með diplómagráðu í fötlunar-
fræðum og mikla starfsreynslu úr
málaflokki fatlaðs fólks. Sigurjón er
búsettur í Reykjavík en Kristbjörg í
Mosfellsbæ. Þau eru bæði talsmenn
unga fólksins í flokknum og mikil-
vægi þess að nýliðun eigi sér stað í
stjórnmálastarfinu sem leið til að
stuðla að bættri stjórnmálamenningu
og framsæknum vinnubrögðum. Sig-
urjón og Kristbjörg störfuðu áður
með Framsókn. Sigurjón sem for-
maður Ungra framsóknarmanna og
Kristbjörg sem formaður Lands-
sambands framsóknarkvenna.
Ragný Þóra Guðjohnsen, ritari
Samstöðu, er lögfræðingur, dokt-
orsnemi í uppeldis- og mennt-
unarfræðum og bæjarfulltrúi í
Garðabæ. María Grétarsdóttir er
gjaldkeri Samstöðu. Hún er við-
skiptafræðingur og varabæjarfulltrúi
í Garðabæ. Auður Hallgrímsdóttir er
meðstjórnandi í stjórn Samstöðu en
hún er atvinnurekandi og gegnir for-
mennsku Sameinaða lífeyrissjóðsins
fram að næsta aðalfundi sem haldinn
verður í maí. Þær störfuðu áður með
Sjálfstæðisflokknum, María og
Ragný sem varabæjarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins í Garðabæ í 8 ár.
Auður, María og Ragný stofnuðu,
ásamt félögum sínum, nýtt stjórn-
málaafl í Garðabæ fyrir síðustu bæj-
arstjórnarkosningar. Þetta nýja
framboð hlaut heitið: FÓLKIÐ – í
bænum (sjá www.xm.is) og fékk
15,9% út úr kosningunum. Í fram-
haldinu kviknaði svo áhugi þeirra
þriggja á því að stofna sams konar afl
á landsvísu. Það er þverpólitískt afl
sem yrði lýðræðislegur vettvangur
fyrir fólk sem vildi efla gagnrýna en
skapandi umræðu á landsvísu.
Rakel Sigurgeirsdóttir er formað-
ur stjórnar Samstöðu-Reykjavík.
Hún hefur lengst af verið búsett á
Akureyri þar sem hún starfaði sem
framhaldsskólakennari í íslensku.
Frá haustinu 2008 hefur hún tekið
virkan hátt í ýmsum viðspyrnuverk-
efnum eins og undirbúningi og ut-
anumhaldi borgarafunda á Akureyri
og í Reykjavík. Hún var einn aðal-
skipuleggjandi Tunnumótmælanna
haustið 2010 og tók virkan þátt í Sam-
stöðu þjóðar gegn Icesave fyrri hluta
árs 2011. Frá haustinu 2011 lagði hún
hönd á plóg við uppbyggingu Gras-
rótarmiðstöðvarinnar og stóð m.a.
fyrir laugardagsfundum þar. Rakel
starfaði áður með Hreyfingunni.
Birgir Örn Guðjónsson lögreglu-
maður er formaður Samstöðu í Krag-
anum. Hann hefur m.a. skrifað grein-
ar sem vakið hafa mikla athygli um
skuldavanda heimilanna og þörfina á
almennri leiðréttingu verðtryggðra
lána. Birgir Örn hefur aldrei áður
tekið þátt í starfsemi stjórn-
málaflokks.
Samstaða flokkur lýðræðis og vel-
ferðar var stofnaður í upphafi þessa
árs. Grunnur hans er þaulhugsaður
og vel undirbúinn. Ef Íslendingar
vilja raunverulega nýtt Ísland þá
þurfum við öll að taka saman höndum
gegn mótspyrnu þeirra sem vilja ekk-
ert frekar en njóta ávaxta þess að
vera í hópi hinna útvöldu.
Það er þörf fyrir samstöðu
Eftir Maríu Grét-
arsdóttur og Rakel
Sigurgeirsdóttur
» Við viljum segja
skilið við hagsmuna-
pólitík og byggja upp
samfélag þar sem
vönduð málefnavinna
er í forgrunni.
María Grétarsdóttir
María er gjaldkeri SAMSTÖÐU
flokks lýðræðis og velferðar. Rakel
Sigurgeirsdóttir er formaður SAM-
STÖÐU-Reykjavík
Rakel Sigurgeirsdóttir
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is
BÍLARAF
BÍLAVERKSTÆÐI
Bílaraf
www.bilaraf.is
Strandgötu 75 • 220 Hafnarfjörður • Sími 564 0400 • bilaraf.is
Allar almennar
bílaviðgerðir
Tímapantanir í síma 564 0400
Gott verð, góð þjónusta!
Startarar og alternatorar
í miklu úrvali
:
Eurovision 2012 SÉRB
LA
Ð
–– Meira fyrir lesendur
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
Morgunblaðið
gefur út sérblað
tileinkað
Eurovision
þriðjudaginn
22. maí
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 14, fimmtudaginn 16. maí.
Þetta er blað sem lesendur hafa
við hendina 22., 24. og 26. maí
þegar Eurovision verður sýnt í
sjónvarpinu.