Morgunblaðið - 05.05.2012, Side 36

Morgunblaðið - 05.05.2012, Side 36
36 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2012 Þar sem auðmýkt og bræðralag, fyrirgefn- ing og þakklæti ræður ríkjum, býr fegurðin. Þannig er kærleik- urinn. Hann spyr ekki um ágóða eða endur- gjald, heldur umburð- arlyndi, frið og sátt. Og mundu að fegurðin kemur með bæninni. Hvað er bæn? Ekki veit ég svo sem nákvæmlega hvað bænin er eða hvernig hún virkar. En hitt veit ég fyrir víst af því að ég hef upplifað það sjálfur að mér finnst gott að hvíla í henni og með- taka friðinn og lausnina sem henni fylgir. Venjum okkur á að biðja hvert fyrir öðru, vinum, ættingjum og þá ekki síst þeim sem vilja okkur illt eða okk- ur stendur einhvers- konar ógn af, þeim sem við upplifum að okkur ofsækja á einhvern hátt. Biðjum fyrir öllum þeim sem fara í taugarnar á okkur, þeim sem við hreinlega þolum ekki eða eigum erfitt með að umgangast. Leggjum allt sem á okkur hvílir í al- máttugar hendur Guðs. Tölum við hann um gleði okkar og sorgir, vænt- ingar og þrár, því að hann þerrar tár- in, veitir þreyttum hvíld, færir frið og ró. Hann styður og styrkir, veitir djörfung og kraft. Og við getum treyst því að hann gleymir ekki þeim sem til hans leita. Gleymum svo ekki að þakka honum sem fyrir okkur dó, reis upp, sigraði dauðann og vill gefa okkur alla sína dýrð með sér, honum sem sagði: Í heiminum hafið þið þrenging en verið hughraust því ég hef sigrað heiminn. Honum sem sagði: Ég lifi og þið mun- uð lifa. Biðjum því góðan Guð, höfund og fullkomnara lífsins, að kenna okkur að biðja með orðum frelsarans um að hans vilji sem er hið góða, fagra og fullkomna nái fram að ganga og við fáum ratað rétta braut, leiðina til lífs- ins. Opnum okkur í ein- lægni fyrir honum og ger- um óskir okkar honum kunnar með einlægni hjartans, í Jesú nafni. Hann biður fyrir okkur Og þegar okkur skortir orð er svo gott að vita til þess að sjálfur andi lífsins biður fyrir okkur, hinn heilagi andi Guðs. Hann biður fyrir okkur með andvörpum sem ekki verður í orð komið. Hann býðst til að leiða þig, vernda þig og blessa þig með sinni eilífu blessun sem er æðri okkar mann- lega skilningi. Og ég trúi því og treysti samkvæmt hans eilífu fyrirheitum að hann muni uppfylla þarfir okkar betur en hugur okkar kann að girnast eða óska eftir. Draumar, væntingar og þrár Felum okkur því hon- um á vald í trausti þess að hann muni vel fyrir sjá. Við höfum hvort sem er engu að tapa en sann- arlega allt að vinna. Opnum hjarta okkar fyrir honum, fyrir lífinu og eilífum anda þess. Hon- um sem er höfundur og fullkomnari lífsins. Treystum honum fyrir draumum okkar, væntingum og þrám og öllum þeim áhyggjum sem okkur þjaka í trausti þess að hann létti undir með okkur samkvæmt þeim fyrirheitum sem hann hefur gefið okkur. Hann býðst nefnilega til þess að anda á þig sínum eilífa anda. Hann þráir að hann fái að leika um þig, fylla þig kærleika sínum og friði sem eng- inn getur gefið nema hann einn og enginn og ekkert mun megna frá okk- ur að taka, hvorki nú né nokkurn tíma síðar. Hann vill fá að tendra sitt eilífa ljós innra með þér. Ljósið sem lýsir þér veginn sem heillavænlegast er að fara. Veginn sem liggur til himinsins heim, til lífsins, þar sem tárin verða þerruð og spurningum svarað. Þar sem fegurðin býr Eftir Sigurbjörn Þorkelsson Sigurbjörn Þorkelsson » Biðjum fyrir sjálfum okkur og þá ekki síður þeim sem okkur stendur ógn af, fara í taugarnar á okkur og við eigum erfitt með að umgangast Höfundur er rithöfundur. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is Vortvímenningur í Kópavogi Vortvímenningur félagsins hófst sl. fimmtudag og er hann jafnframt síðasta keppni vetrarins 2011-2012. Spilað var á níu borðum og var Loft- ur Þór Pétursson greinilega kominn í brids/golf-gírinn því hann „sveifl- aði“ sér í efsta sætið ásamt Valdi- mari Sveinssyni með þremur pró- sentum betra skor en parið í öðru sætinu. Staða efstu para er annars þessi: Loftur Þór Péturss. - Valdimar Sveinss. 58,5 Gísli Tryggvason - Þorsteinn Berg 55,4 Björn Jónsson - Þórður Jónsson 54,2 Jón St. Ingólfss. - Guðlaugur Bessas. 53,8 Erla Sigurjónsd. - Guðni Ingvarsson 53,3 Síðasta spilakvöld vetrarins verð- ur fimmtudaginn 10. maí og er hægt að bæta inn pörum þar sem hvort kvöld er spilað sjálfstætt. Góðmennt í Gullsmáranum Það var góðmennt í Gullsmára fimmtudaginn 3. maí. Spilað var á 11 borðum. Úrslit í N/S: Jónína Pálsd. - Þorleifur Þórarinss. 211 Birgir Ísleifsson - Jóhann Ólafsson 189 Guðrún Hinriksd. - Haukur Hannesson 174 Halldór Jónsson - Einar Kristinsson 173 A/V: Ármann J. Láruss. - Guðl. Nielsen 204 Þorsteinn Laufdal - Páll Ólason 199 Aðalh. Torfad. - Ragnar Ásmundss. 195 Sigurður Njálss. - Pétur Jónsson 194 Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500 www.flis.is • netfang: flis@flis.is lím og fúguefni Skólavörðustíg 21, Reykjavík sími 551 4050 Mikið úrval af fallegum rúmfatnaði ÁSKRIFTASÍMI 569 1100 Sími 568 1090 - www.bilson.is - bilson@bilson.is Opnunartímar: Mánudagur til fimmtudags kl. 8-17, föstudagur kl. 8-16 GÆÐAVOTTAÐ BÍLAVERKSTÆÐI • Sérhæft og vottað þjónustuverkstæði fyrir VW og Skoda. • Hefur gæðavottun Bílgreinasambandsins með úttekt frá BSI á Íslandi. • Starfsleyfi til endurskoðunar frá Umferðarstofu. • Forvarnarverðlaun VÍS 2010. ÞJÓNUSTA SEM ÞÚ GETUR TREYST Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga Starfsemi LsRb 2011 Allar fjárhæðir í milljónum króna Breytingar á hreinni eign til greiðslu lífeyris 31.12 2011 2010 A-deild V-deild S-deild Samtals Samtals Iðgjöld 4.863 1.113 97 6.073 5.677 Lífeyrir -718 -38 -128 -884 -704 Fjárfestingartekjur 4.183 612 115 4.910 1.926 Fjárfestingargjöld -146 -21 -3 -169 -79 Rekstrarkostnaður -92 -13 0 -105 -100 Gjald í ríkissjóð -41 -5 -1 -47 0 Hækkun á hreinni eign á árinu 8.049 1.648 81 9.778 6.720 Hrein eign frá fyrra ári 41.737 5.890 1.062 48.689 41.970 Hrein eign til greiðslu lífeyris 49.787 7.538 1.143 58.467 48.689 Efnahagsreikningur A-deild V-deild S-deild 2011 2010 Fasteign, rekstrarfjármunir og aðrar eignir 108 16 0 125 129 Verðbréf með breytilegum tekjum 13.761 2.083 325 16.170 12.133 Verðbréf með föstum tekjum 27.874 4.220 613 32.707 27.642 Veðlán 5.460 827 0 6.287 6.054 Bankainnistæður 1.386 210 196 1.792 1.481 Aðrar fjárfestingar 250 38 0 288 422 Kröfur 457 69 1.805 528 522 Aðrar eignir 578 87 22 688 377 Skuldir -88 -13 -14 -116 -71 Hrein eign til greiðslu lífeyris 49.787 7.538 1.143 58.467 48.689 Kennitölur ársins 2011 A-deild V-deild S-deild I S-deild II S-deild III Nafnávöxtun 9% 9% 10,4% 14% 8,4% Hrein raunávöxtun 3,6% 3,6% 4,9% 8,3% 3% Hrein raunávöxtun - 5 ára meðaltal -1,1% -1,1% -0,3% 3,7% 5,1% Fjöldi sjóðfélaga 9.327 4.810 204 71 57 Fjöldi lífeyrisþega 1.622 314 31 4 13 Rekstrarkostnaður í % af eignum 0,2% 0,2% 0% 0,1% 0,1% Eignir í íslenskum krónum í % 83% 83% 66,7% 92,1% 100% Eignir í erlendum gjaldmiðlum % 17% 17% 33,3% 7,9% 0% Eign umfram heildarskuldbindingar í % -11% -5% Eign umfram áfallnar skuldbindingar í % -4,2% -4,3% Birt með fyrirvara um prentvillur Ársreikning LSS 2011 má sjá í heild sinni á heimasíðu LSS: www.lss.is Ársfundur 2012 Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga verður haldinn þriðjudaginn 8. maí kl. 16.00, í húsakynnum Sambands íslenskra sveitarfélaga að Borgartúni 30, Reykjavík. Stjórn og framkvæmdastjóri Í stjórn lífeyrissjóðsins eru Karl Björnsson stjórnarformaður, Elín Björg Jónsdóttir, Garðar Hilmarsson, Gerður Guðjónsdóttir, Kristbjörg Stephensen og Salóme E. Þórisdóttir. Framkvæmdastjóri sjóðsins er Jón G. Kristjánsson. Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga, Sigtúni 42, 105 Reykjavík, sími 5 400 700, lss@lss.is - www.lss.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.