Morgunblaðið - 05.05.2012, Qupperneq 37
UMRÆÐAN 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2012
Miðvikudaginn 28.
mars var mér bent á
að daginn eftir yrði
opinn kynning-
arfundur um Háskóla-
sjúkrahús við Hring-
braut. Nýtt
deiliskipulag, breyt-
ingar á svæðaskipu-
lagi höfuðborg-
arsvæðisins og
aðalskipulagi Reykja-
vikur ásamt breytingu skipulags
fyrir Hringbraut skyldi kynnt á
fundinum. Auglýsing þessa mikla
fundar, sem var auglýstur með
tveggja daga fyrirvara í Mbl. fór
framhjá mér. Kannski hefur verið
stærri auglýsing í Flettiblaðinu.
Auglýsingin sagði fundinn lög-
bundinn kynningarfund áður en
tillögur yrðu teknar til afgreiðslu
hjá borgaryfirvöldum.
Ég mætti á fundinn í ráðhúsinu.
Í upphafi fundar var skýrt tekið
fram, eins og venjan hefur verið á
fundum um spítalann, að staðsetn-
ing hans við Hringbraut hefði ver-
ið ákveðin og skyldi ekki rædd á
fundinum. Pallborðsumræður um-
ræður urðu samt mest um það.
Í framsögu var sagt að sérstakt
tillit væri tekið til gamla Land-
spítalans og honum gert hátt und-
ir höfði. Sú glæsilega bygging
fengi að njóta sín. Myndir á glær-
um sýndu spítalann séðan frá
„Sóleyjartorgi“. Það-
an sést hann vel. Eft-
ir fyrsta áfanga sést
hann aðeins, þegar
Hringbraut er ekin
til vesturs. Eftir ann-
an áfanga sést gamli
Landspítalinn örfár
sekúndur á meðan
ekið er framhjá
sundi, sem opnast frá
torginu til suðurs.
Ekki er hægt að
segja að þessari
glæsilegu byggingu
sé gert hátt undir höfði með því
að byggja fyrir hana, þannig að
hún sjáist ekki nema farið sé hjól-
andi eða gangandi inn á torg, sem
spítalinn stendur við.
Sagt var frá því að hætt hefði
verið við svokölluð Holtagöng frá
spítalanum að Klöpp við Skúla-
götu. Væntanlega hefur kostn-
aðaráætlunin lækkað við það.
Framsaga Hjálmars Sveins-
sonar, fulltrúa í skipulags-, um-
hverfis- og samgönguráði fannst
mér sem áhugamanni um vist-
væna samgöngustefnu áhugaverð.
Fram kom hjá Hjálmari að könn-
un hefði sýnt að hátt hlutfall
starfsfólks byggi í nágrenni spít-
alans og mikill fjöldi kæmi gang-
andi eða hjólandi til vinnu.
Fundinum lauk með pallborðs-
umræðum. Þá gafst tækifæri að
spyrja frummælendur. Gestur
Ólafsson, arkitekt og skipulags-
fræðingur, spurði, hvaða skipu-
lagsfræðingur bæri faglega
ábyrgð á og legði starfsheiður
sinn að veði með því deiluskipu-
lagi, sem nú væri kynnt? Gestur
sagði að skv. lögum skyldi deili-
skipulag taka mið af aðalskipulagi
og samþykkt áður en byggingar
væru hannaðar inn í það. Í tilfelli
spítalans væri öllu öfugt farið og
þar fyrir utan hefði aðalskipulag
Reykjavíkur ekki verið endur-
skoðað í heild frá 2001. Hús væru
teiknuð fyrst og deiluskipulagi
svo breytt eftir þörfum. Ekki var
mikið um svör að öðru leyti en því
að byggingarnar hefðu orðið til í
verðlaunasamkeppni.
Íbúi í nágrenni spítalans lýsti
óánægju sinni með væntanlegar
framkvæmdir. Guðrún Bryndís
Karlsdóttir kom vel undirbúin.
Hún er sjúkraliði og bygg-
ingaverkfræðingur með byggingu
sjúkrahúsa, sem sérgrein og því
með yfirgripsmikla þekkingu á
málinu. Hún kom bæði með hnit-
miðaðar spurningar, sem lítt var
svarað og rökstuddi að vinnuað-
staða og niðurröðun húsa væri
rekstrarlega óhagstæð, auk þess
sem kostnaðaráætlun gæti ekki
staðist. Læknir, sem starfað hafði
í áratugi á Landspítalanum lýsti
áhyggjum sínum af því að þeir
sem lentu í slysum kæmust í tæka
tíð á spítalann. Í lok fundar komu
tveir yngri læknar hvor á eftir
öðrum og lýstu ánægju sinni með
spítalann, sem væri akkúrat sú
aðstaða, sem þá hefði lengi vant-
að.
Yfirgnæfandi fjöldi þeirra, sem
tóku þátt í pallborðsumræðum,
lýsti óánægju sinni á byggingunni
við Hringbraut.
Þar sem það er staðreynd að
fólk kýs vinnustað sem næst
heimili sínu spyr ég Hjálmar,
hvort sambærileg könnun hafi
verið gerð fyrir spítala staðsettan
í Fossvogi og við Hringbraut. Það
er, hversu stórt hlutfall starfs-
fólks Borgarspítalans: 1) býr í ná-
grenni spítalans, 2) kemur fót-
gangandi og 3) hjólandi til vinnu?
Minnispunktar frá fundi í ráðhúsinu
um spítala við Hringbraut
Eftir Sigurð
Oddsson » Yfirgnæfandi fjöldi
þeirra, sem tóku
þátt í pallborðsumræð-
um, lýsti óánægju sinni
með bygginguna við
Hringbraut.
Sigurður Oddsson
Höfundur er byggingaverkfræðingur.
Móttaka
aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi
umræðu í landinu og birtir aðsend-
ar greinar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðs-
ins. Kerfið er auðvelt í notkun og
tryggir öryggi í samskiptum milli
starfsfólks Morgunblaðsins og höf-
unda. Morgunblaðið birtir ekki
greinar sem einnig eru sendar eru
á aðra miðla.
Að senda grein
Kerfið er aðgengilegt undir
Morgunblaðslógóinu efst í hægra
horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt
er á lógóið birtist felligluggi þar
sem liðurinn "Senda inn grein" er
valinn.
Í fyrsta skipti sem inn-
sendikerfið er notað þarf notand-
inn að nýskrá sig inn í kerfið. Ít-
arlegar leiðbeiningar fylgja hverju
þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem
notanda í kerfið nóg að slá inn
kennitölu notanda og lykilorð til að
opna svæðið. Hægt er að senda
greinar allan sólarhringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfs-
fólk Morgunblaðsins alla virka
daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18.
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is
Dalvegi 4 - 201 Kópavogur
Hamraborg 14 - 2w00 Kópavogur
Opnunartími: Mánudaga til föstudaga frá 6:00 til 18:00
laugardaga frá 6:00 til 17:00
sunnudaga frá 7:00 til 17:00
Bjóðum upp á margar
Hafðu samband við bakara-
meistarann og ráðfærðu
þig við hann um val á
tertu og útfærslu