Morgunblaðið - 05.05.2012, Page 44
44 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2012
DÚKA KRINGLUNNI SÍMI: 533 1322 SMÁRALIND SÍMI: 564 2011
Litríkar, hagnýtar,
fíngerðar, óbrjótandi,
fallegar, spennandi,
endingargóðar,
mjúkar, skemmtilegar...
Ég reikna ekki með viðburðaríkum degi. Það stendur ekkerttil nema að nota góða veðrið, skreppa kannski á hestbak ogtaka fjölskylduna í góðan mat í kvöld,“ segir Pétur J. Eiríks-
son, starfandi stjórnarformaður Portusar, en hann fagnar 62 ára af-
mælisdegi sínum í dag. Hann segist yfirleitt eiga lágstemmda af-
mælisdaga og þeir séu frekar í kaffisopastíl. Hann hafi þó haldið
upp á þrítugsafmælið sitt með fínni veislu og hún hafi enst honum
hingað til.
Eignarhaldsfélagið Portus, sem Pétur starfar fyrir, á og rekur
tónlistarhúsið Hörpu og segir hann að hún eigi hug hans allan í
augnablikinu. „Það hefur verið alveg ótrúlega spennandi verkefni
að fá þetta tækifæri að reyna það með öðrum að klára bygginguna
og koma henni í rekstur og sjá síðan hvað hún hefur fengið ótrúlega
góðar viðtökur,“ segir hann. Nú þegar hafi hátt í milljón gestir kom-
ið í Hörpu á innan við ári en húsið var opnað formlega hinn 13. maí í
fyrra. Þar með taldir séu gestir á viðburðum, matargestir og fólk
sem hefur heimsótt húsið. Fram að áramótum hafi um 700 þúsund
manns komið í Hörpu og fjöldinn hafi farið yfir milljón nú í apríl.
Það hefur þó ekki hvarflað að Pétri að notfæra sér aðstöðu sína
og leggja undir sig stóra salinn fyrir afmælisveislu. „Ekki á 62 ára
afmælinu en maður veit aldrei upp á hverju maður tekur seinna,“
segir hann og hlær. kjartan@mbl.is
Pétur J. Eiríksson er 62 ára í dag
Morgunblaðið/Golli
Lágstemmdur Pétur J. Eiríksson hélt upp á þrítugsafmælið með
góðri veislu á sínum tíma og segir að hún hafi enst honum hingað til.
Harpa á hug hans
allan í augnablikinu
S
vana Berglind Karlsdóttir
fæddist á Sauðárkróki og
ólst þar upp. Hún var í
Barnaskóla Sauðárkróks
og stundaði nám við Fjöl-
brautarskóla Norðurlands vestra á
Sauðárkróki og lauk þaðan stúdents-
prófum 1992.
Fór ung í píanó- og söngnám
Svana hóf nám í píanóleik við Tón-
lisarskóla Skagafjarðar 1979 og lauk
þaðan 7. stigi, stundaði söngnám við
Tónlistarskóla Skagafjarðar 1988-
91, var eitt ár í söngnámi í Flórense
á Ítalíu hjá Augusto Fradi á mennta-
skólaárunum og aftur þar og í
Parma á Ítalíu, nokkrum árum síðar,
stundaði söngnám við Söngskólann í
Reykjavík hjá Elínu Ósk Óskars-
dóttur til 2000 og stundaði þar fram-
haldsnám við söngkennaradeild.
Svana stundar nú nám í gullsmíði
og skartgripahönnum við Tækni-
skólann.
Svana starfaði hjá Fosshótelunum
á árunum 2002-2006 þar sem hún
sinnti skrifstofustörfum á veturna
og var hótelstýra á sumrin og var
Svana Berglind Karlsdóttir söngkona 40 ára
Ljósmynd/Pétur Pétursson
Klassapíur Söngtríóið Sopranos, frá vinstri: Margrét Grétarsdóttir, Svana Berglind og Hörn Hrafnsdóttir.
Sígildur söngur og gull
Leikið í snjónum Svana, Bríet Mjöll, Þorsteinn og snjókarlarnir.
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Reykjavíkurborg, Icelandair Group
og Harpa, tónlistar- og ráðstefnuhús
hafa myndað nýjan samstarfsvett-
vang um markaðssetningu á Reykja-
vík sem alþjóðlegri ráðstefnu- og við-
burðaborg. Samstarfsvettvangurinn
ber heitið Ráðstefnuborgin Reykja-
vík. Starfsmenn Ráðstefnuborgar-
innar Reykjavíkur eru Þorsteinn
Örn Guðmundsson, Björg Kjart-
ansdóttir, Einar Gylfason, Helga
Thors og Sigurjóna Sverrisdóttir.
Þorsteinn Örn Guðmundsson
framkvæmdastjóri var
forstjóri Northern Tra-
vel Holding 2007-2008,
framkvæmdastjóri
rekstrarsviðs FL Group
2006-2007, forstjóri FL
Travel Group 2005-
2006, framkvæmdastjóri stefnumót-
unar og viðskiptaþróunar FL Group
frá 2005. Þorsteinn Örn er kvæntur
Magneu Þóreyju Hjálmarsdóttur og
eiga þau fimm börn.
Björg Kjartansdóttir vann lengi
hjá Stjórnarráði Ís-
lands, einnig hjá eft-
irlitsstofnun Alþingis,
Ríkisendurskoðun og
hjá Evrópuráðinu í
Frakklandi. Hún er við-
skiptafræðingur MBA
frá HR, BA í sálfræði frá HÍ og MA í
Evrópufræðum frá Maastricht Uni-
versity 2000. Björg er gift Benedikt
Stefánssyni og eiga þau þrjá syni.
Einar Gylfason starfaði í sölu og
markaðsmálum í
upplýsingatækni, m.a
hjá EJS, Opnum kerf-
um og Grunni gagna-
lausnum. Síðastliðið eitt
og hálft ár hefur Einar
starfað sem verkefna-
stjóri í sérverkefnum hjá Samtökum
ferðaþjónustunnar (SAF) og síðar
hjá Höfuðborgarstofu.
Helga Thors starfaði síðast sem
forstöðumaður við-
burðadeildar hjá Saga-
film. Áður starfaði hún
sem „brand manager“
fyrir Kaupþing frá
2003-2008. Hún var
viðskiptastjóri á aug-
lýsingastofunni XYZ, var tímabund-
ið markaðsstjóri fyrir Smáralind,
vann fyrir OZ og Icelandair. Helga
er viðskiptafræðingur með MBA frá
HÍ. Helga er í sambúð með Birni
Ólafssyni. Þau eiga tvær dætur.
Sigurjóna Sverrisdóttir hefur sinnt
verkefnum og markaðs-
setningu í sambandi við
alþjóðlegan starfsferil
Kristjáns Jóhanns-
sonar óperusöngvara.
Undanfarin 23 ár hefur
Sigurjóna búið á Ítalíu.
Hún er með MBA-gráðu frá HÍ og
BA-próf í leiklist frá Leiklistarskóla
Íslands. Sigurjóna er gift Kristjáni
Jóhannssyni og eiga þau þrjú börn.
Ný störf
Reykjavík markaðssett