Morgunblaðið - 02.06.2012, Page 1
L A U G A R D A G U R 2. J Ú N Í 2 0 1 2
Stofnað 1913 127. tölublað 100. árgangur
LEGGUR AF
STAÐ Í VÍKING
TIL NOREGS
SKIN OG
SKÚRIR
Í HÖLLINNI
SJÓMANNADAGUR
SUNNUDAGSMOGGINN 16 SÍÐNA SÉRBLAÐNÚTÍMAVÍKINGUR 29
Síkátur sjóari, Skagaskip,
lostæti, björgunarbátar, furðu-
fiskar, ljósmyndir, kraftafólk
Straumur sjó-
manna og ann-
arra hefur legið í
Slysavarnaskóla
sjómanna síðustu
ár. Breytingar á
lagaumhverfi og
sjósókn eiga
stóran þátt í
þessu, en fleira
kemur til: „Að-
stæður margra, sem héldu að þeir
væru hættir sjómennsku og höfðu
fundið störf í landi, breyttust með
hruninu og þeir flykktust aftur á
sjóinn,“ segir Hilmar Snorrason
skólastjóri.
Síðustu ár hefur dregið úr opin-
berum fjárframlögum til skólans og
allur tilkostnaður hefur aukist
mjög. Nú er svo komið að Sæbjörg-
in fer helst ekki út fyrir hafnar-
kjaftinn í Reykjavík. »26
Gamlir sjómenn
flykktust aftur á sjó
Björgun úr sjó æfð.
Litskrúðug
ganga í sjáv-
arbænum
Skrúðgangan var stærsta og jafnframt litskrúð-
ugasta atriði á fyrsta degi Sjóarans síkáta í
Grindavík í gær. Íbúar hafa verið duglegir að
skreyta hverfin og litirnir mættust í skrúðgöngu
úr hverfunum fjórum að hátíðarsvæðinu við Hafn-
argötu. Mikið fjölmenni var í skrúðgöngunni enda
veður með eindæmum gott í Grindavík.
Sjóarinn síkáti er fjölskyldu- og sjómannahátíð
sem haldin er um hverja sjómannadagshelgi. Er
þetta ein af veglegustu sjómannahátíðum.
Grindavík er hefðbundinn sjávarbær þar sem
ferðaþjónusta fer vaxandi. Þannig lýsir Róbert
Ragnarsson bæjarstjóri staðnum. Hann segir að
þótt ferðamenn séu boðnir velkomnir sé ekki ætl-
unin að fórna grunnstoðinni. Róbert gerir sitt til
þess að svo megi verða, meðal annars með því að
reyna að lokka fleiri sjómenn í bæinn. „Ég hef
verið að fara á milli báta á vetrarvertíðinni til að
kynna bæinn og reyna að höfða til þess að sjó-
mennirnir flytji hingað. Það hefur reytingur flust
hingað úr öðrum sveitarfélögum en þetta mun
taka nokkur ár að fá sjómennina hingað. Víðast
hvar er það þannig að það þarf að fjölga störfum
til að ná í fleira fólk, hér er fullt af störfum sem
eru mönnuð fólki sem keyrir að, svo við erum að
reyna að fá það til að flytja hingað,“ segir hann.
Gestir bæjarins leggja leið sína gjarnan niður á
bryggju enda óvíða eins aðgengilegt að fylgjast
með störfum sjómanna. Útgerðarfélögin gera
ekki aðeins út á fisk. Í Stakkavík er aðstaða til að
taka á móti ferðafólki, útsýnispallur út á fisk-
vinnslugólfið og hægt að horfa yfir vinnslusalinn.
„Fólk er forvitið að sjá hvernig fiskurinn er unn-
inn. Margir af þeim sem hingað koma hafa aldrei
komið inn í fiskvinnslu,“ segir Hermann Ólafsson,
framkvæmdastjóri Stakkavíkur.
Heimsóknirnar eru alltaf að aukast, að sögn
Hermanns sem vonar að það framtak að hafa
opna fiskvinnslu geti orðið til þess að umræðan
um sjávarútveginn verði ekki eins neikvæð og
verið hefur. »34-35
Ljósmynd/Haraldur Hjálmarsson
Rauða hverfið Íbúar Rauða hverfisins fjölmenntu í litaskrúðgönguna í Grindavík. Allir hóparnir
stefndu að sama marki, hátíðarsvæðinu við Hafnargötu. Þar var kvölddagskrá og bryggjuball.
Grindvíkingar gera ekki aðeins út á fisk því ferðaútvegurinn fer stöðugt vaxandi
Helgi Bjarnason
Kristján H. Johannessen
„Staða mála í þinginu í heild er í
uppnámi enda fjölmörg umdeild mál
frá ríkisstjórninni óafgreidd og sum
þeirra mjög skammt á veg komin í
þinglegri meðferð,“ segir Birgir Ár-
mannsson, þingmaður Sjálfstæðis-
flokks, en umræður um veiðigjöld
stóðu langt fram eftir kvöldi á Al-
þingi í gær. Sextán voru enn á mæl-
endaskrá undir miðnættið.
Birgir segir það augljóst að hart
sé deilt bæði um forsendur og út-
færslu í veiðigjaldamálinu. „Það er
augljóst að það er mjög langt í land
að menn nái saman um það.“
Þingflokksformenn stjórnarflokk-
anna eru samhuga um að málefna-
leg og góð umræða hafi farið fram í
þingsal. „Mér finnst nú vera sam-
hljómur með þingmönnum um að
það eigi að leggja á veiðigjöld.
Menn kannski greinir á um hversu
há,“ segir Magnús Orri Schram,
formaður þingflokks Samfylkingar.
Undir það tekur Björn Valur
Gíslason, formaður þingflokks
Vinstri grænna. Góðar og upp-
byggilegar umræður hafi átt sér
stað um veiðigjaldafrumvarpið. „Ég
er miklu vonbetri núna en áður um
að það sé hægt að landa þessum
málum í tiltölulega góðu samkomu-
lagi.“
MLeggjast gegn »3
Hart deilt um veiðigjöld og
óvissa um framhaldið á þingi
Formenn þingflokka ríkisstjórnarinnar samhuga um að góð umræða sé í þingsal
Morgunblaðið/Golli
Alþingi Umræður stóðu enn yfir
skömmu fyrir miðnætti í gær.
Sjávarútvegsfrumvörp
» Fulltrúar Sjálfstæðisflokks
og Framsóknarflokks í atvinnu-
veganefnd leggjast gegn því að
frumvarp um veiðigjöld verði
afgreitt á Alþingi.
» Umræða um málið hófst í
gær þrátt fyrir að stjórnarand-
stæðingar legðu til að beðið
yrði þar til línur skýrðust um
fiskveiðistjórnarfrumvarpið.
» Avinnuveganefnd hefur ekki
lokið umfjöllun um frumvarpið
um fiskveiðistjórnun.
Einn ábyrgð-
armanna kæru
Fjármálaeftir-
litsins til efna-
hagsbrotadeildar
ríkislögreglu-
stjóra vegna
meintra brota
félagsins Aserta
og tengdra aðila
á gjaldeyrisreglum Seðlabankans
og lögum um gjaldeyrismál hafði
skömmu áður sjálfur starfað í þágu
Aserta. Í afriti af reikningi til
Aserta frá félaginu Skáhyrnu slf.
sem Morgunblaðið hefur undir
höndum kemur fram að félagið
fékk greiddar 600 þúsund kr. frá
Aserta í þóknun fyrir að finna við-
skiptavini fyrir Aserta. »36
Tengist viðskiptum
sem FME kærði
Bæjaryfirvöld í Eyjum vilja
skoða þann möguleika að fá til
landsins farþegabát sem hægt
væri að nota til siglinga í Land-
eyjahöfn næsta vetur, þegar Herj-
ólfur þarf að sigla til Þorláks-
hafnar. Hefur bæjarstjórinn óskað
eftir því við vegamálastjóra að fá
faglegan stuðning við athugun á
þessum möguleika.
„Við þurfum meiri stöðugleika í
ferjusiglingar en verið hefur,“
segir Elliði Vignisson bæjarstjóri
um ástæður þess að farið var að
athuga með varabát. Segir hann
að ákveðið skip sé í sigtinu en það
myndi aðeins verða háð ölduhæð
en ekki dýpi hafnarinnar. »2
Athuga með leigu á
öðrum farþegabát
Morgunblaðið/Ómar
Ferja Herjólfur siglir inn í Landeyjahöfn.