Morgunblaðið - 02.06.2012, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 02.06.2012, Blaðsíða 58
58 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 2012 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú ert sérstaklega jákvæð/ur og það er langt síðan þú hefur verið jafn bjartsýn/n og þú ert nú. Þú spilar út öllum þínum trompum. 20. apríl - 20. maí  Naut Betur sjá augu en auga svo vertu bara þakklát/ur þegar samstarfsmenn þín- ir vilja rétta þér hjálparhönd. Einhver lítur á þig sem velgjörðarmann sinn í dag. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það er hugsanlegt að þú fáir af- not af eignum annarra í dag. Skrifaðu nið- ur áætlun og þú færð sífellt betri hug- myndir. Allt gengur á afturfótunum þessa dagana. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Það er hætt við að áætlanir sem tengjast ástamálum og börnum breytist í dag. Sinntu fólkinu í kringum þig betur en þú hefur gert hingað til. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Manngildi og frægð haldast ekki alltaf í hendur svo þú skalt varast að láta frægð- ina blinda þig. Góður undirbúningur tryggir farsæla framkvæmd. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þér er nauðsyn að ná tökum á fjár- málunum en að öllu óbreyttu stefnir þar í óefni. Taktu til og drífðu síðan í þeim lag- færingum sem beðið hafa. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú ættir að íhuga hvort þú haldir í einhvern af ótta eða óöryggi. Ekki láta eins og þú þurfir að réttlæta þína hegðun fyrir neinum. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú elskar að hjálpa til en það að leggja öllum lið verður fljótt þreytandi. Samningar ganga illa en allt fer þó vel að lokum. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú átt samskipti við yngri kyn- slóðina og elskar hverja mínútu. Gríptu öll tækifæri sem gefast til að slaka á. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú hugsar eins og sigurvegari þessa dagana. Nú er rétti tíminn til að fara í ferðalag eða á námskeið sem tengist áhugamáli þínu. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú gerir bara illt verra með því að stinga hausnum í sandinn og láta sem þú sjáir ekki það sem gera þarf á heim- ilinu. Biddu afsökunar á því sem kann að hafa sært aðra í hita leiksins. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú ert skýrari í hausnum þessa dagana en oftast gerist, svo nýttu þér það. Gakktu ákveðin/n fram í að fá hlutina til baka svo að ekki skapist leiðindi milli vina. Sjómannadagurinn var fyrst hald-inn í Reykjavík árið 1938 og smám saman breiddist það út að upp á hann var haldið í öllum sjávar- plássum landsins og var ekki annar hátíðisdagur merkari. Mér er það í barnsminni, að þreytt var stakka- sund í Reykjavíkurhöfn og farið í reiptog. Árið 1923 kom út bókin Hafræna, sjávarljóð og siglinga, sem Guð- mundur Finnbogason safnaði. Sjó- mannadaginn á hverju ári tek ég bókina fram og fletti síðunum. Þetta er gamall húsgangur, myndrænn og skemmtilegur: Einn er ég róinn Engey frá út á sjóinn kalda borðamjóum báti á burðarsljóum karli hjá. Þessi baksneidda braghenda er af öðrum toga: Nú er ekki neitt að frétta, nema kuldann. Höldar róa heldur sjaldan, hávaxin þeim þykir aldan. Og við þessar afhendingar síra Páls Sigurðssonar er dagsetningin 30. jan. 1882. Ekki hefur ástandið verið gott: Um aflabrögð er ei að tala og aldrei róið, loftið sífellt golugróið. Ýsan kemur ei á land og ýmsir svelta, að umrenningum garmar gelta Þegar ég var í Menntaskólanum á Akureyri hreifst ég mjög af Ramma- slag Stephans G. Stephanssonar og taldi ekki betur kveðið en þetta; það er eins og hringhendan breytist í strengleika: Mastrið syngur sveigt í keng seglið kringum hljómar; raddir þvinga úr stagi og streng stormsins fingurgómar. Karl Kristjánsson alþingismaður orti: Þeir sem hvekkja þorsk í dag þiggja rekkjufriðinn; kunna ekki áralag, engin þekkja miðin. Hér kemur erindi úr gamalli þulu: Úti á miðjum sjó skildi ég eftir skóna mína og skaust upp á sker. Eggið brýtur báran því brimið er. Og ein staka eftir Látra-Björgu: Brimið stranga óra er, ymja drangar stórir hér, á fimbulvanga glórir gler, glymja ranga jórarner. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Mastrið syngur sveigt í keng Nú er sólin farin að skína skært ogfreistingarnar koma í kjölfarið. Vegna sólarinnar ákvað Víkverji að kíkja aðeins niður á Austurvöll. Hann var ekki sá eini sem fékk þessa hug- mynd því það var troðið á Austurvelli um það leyti sem venjulegum vinnu- tíma lauk. Fyrr en varði var Víkverji búinn að setjast við borð á kaffihúsi í sólinni og farinn að spjalla við félaga sinn sem sat þar til að njóta sólar- innar. Afskaplega fannst Víkverja góð hugmynd að fá sér einn bjór þarna í hitanum og brátt voru þeir orðnir tveir og ljóst að bíllinn yrði eft- ir í bænum. Svo voru þeir orðnir þrír og fjórir. x x x Víkverji hefur alltaf haft mikinnskilning á því að suðrænni þjóðir vinni minna en aðrar. Honum finnst eiginlega merkilegt að þær vinni yfir- höfuð. Um leið og sólin fer að skína svona skært hverfur honum öll vinnu- löngun og hann langar bara til að leggjast einhvers staðar út og láta hana sleikja sig. Ein af megin- ástæðum þess að Víkverji vinnur mikið er sú að það er alltaf skítaveður hér á Íslandi. x x x Víkverji er enginn mannfræðinguren kastar samt fram þeirri speki að hann telji að eina ástæða þess að norðlægar þjóðir hafi í gegnum tíðina verið duglegri sé veðurfarið. Þessi duglegheit norrænu þjóðanna hafa víst dvínað mikið á undanförnum ára- tugum, enda hafa þær haft efni á því að þvælast mikið suður og láta sólina sleikja sig. x x x Á sumum suðlægari slóðum erbannað með lögum að vinna meira en tvö til þrjú korter af klukku- tímanum við útivinnu á sumartím- anum. Það er bannað með lögum vegna þess að það er beinlínis hættu- legt að vinna úti í svona mikilli sól. x x x Stundum þegar kona Víkverja erað reka hann út til að slá vildi hann geta vitnað í slík lög. „Nei, væna mín. Ég er búinn að slá í korter og nú þarf ég lögum samkvæmt pásu.“ víkverji@mbl.is Víkverji Orð dagsins: Og ef þér reynist ekki trú- ir í því sem annars er, hver gefur yður þá það, sem yðar er? (Lúk. 16, 12.) G æ sa m am m a o g G rí m ur G re tt ir S m áf ól k H ró lfu r hr æ ði le gi F er di n an d HA! HA! JÓN ER AÐ DREKKA ÚR KAFFIBOLLANUM MÍNUM HA! HA! JÓN ER AÐ DREKKA ÚR HEITA- POTTINUM MÍNUM SPURÐU EDDA HVAÐ SÉ Í MATINN ÉG GERÐI ÞAÐ... HANN SAGÐI AÐ ÞAÐ ÆTTI EFTIR AÐ KOMA Á ÓVART ...ÉG VIL ÞIG! ÉG HÉLT AÐ ÞÚ VÆRIR KOMINN YFIR ÞETTA EN ÞÚ ERT ENNÞÁ AÐ VELTA ÞÉR UPP ÚR ÞESSU. ÞÚ VERÐUR AÐ FINNA LEIÐ TIL AÐ GLEYMA HENNI ÉG KANN BARA EINA LEIÐ TIL AÐ GLEYMA MÉR... ÉG BORÐA!! Sannir heimilisvinir Hátúni 6a • 105 Rvk • Sími 552 4420 • fonix.is ryksugur Fyrsta flokks frá FÖNIX...
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.