Morgunblaðið - 02.06.2012, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 02.06.2012, Blaðsíða 25
Polarolje Meiri virkni Hátt hlutfall Omega 3 fitusýrur Minn læknir mælir með Polarolíunni, en þinn ? Selolía, einstök olía Gott fyrir: Maga- og þarmastarfsemi Hjarta og æðar Ónæmiskerfið Kolesterol Liðina Polarolían fæst í: apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni og Melabúð Nú líka í hylkjum Nýtt! FRÉTTIR 25Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 2012 störf í hefðbundnum framleiðslugrein- um. Þriðji flokkurinn er störf tengd ný- sköpun og sprotastarfsemi. 500-800 störf áttu að verða til í nýj- um litlum og meðalstórum fyrir- tækjum, 300-500 störf í umhverfis- vænum iðnaði, 500 störf í menningargeiranum og 300 störf í hugvitsgreinum, alls 1.600-2.100 störf tengd nýsköpun og sprotastarfsemi. 2.000 umhverfistengd störf Fjórði flokkurinn, 2.500 heilsársstörf og 2.000 sumarstörf með aðkomu rík- isins, skiptast þannig að 2.000 ný heils- ársstörf áttu að verða til hjá hinu op- inbera og 500 störf með endur- skipulagningu í heilbrigðiskerfinu og vegna fjölgunar aldraðra og svo hins vegar 2.000 umhverfistengd sum- arstörf fyrir námsmenn. Fimmti og síðasti flokkurinn var „að minnsta kosti 4.000 störf með hlutfallslegri fjölgun í þjónustugeirum“. Má hér nefna að þessi tækifæri áttu að skapast „með hlutfallslegri fjölgun starfa í þjónustu hjá ríki, sveitarfélögum og einkafyr- irtækjum sem leiðir af fjölgun starfa í öðrum geirum“. Þingkosningarnar 25. apríl 2009 fóru svo að Samfylking og Vinstri grænir náðu hreinum meirihluta. Eftir kosningarnar lögðu flokkarnir tveir fram svonefnda hundrað daga áætlun. Nokkur atriði varða atvinnu- mál öðrum fremur. Í fyrsta lagi það markmið að ná samkomulagi við aðila vinnumarkaðarins um stöðugleikasátt- mála og í öðru lagi mótun atvinnu- stefnu í samvinnu við aðila vinnumark- aðarins og háskólasamfélagsins, meðal annars með það að markmiði að Ísland yrði meðal tíu samkeppnishæfustu landa heims árið 2020. Í þriðja lagi átti að efla úrræði Vinnumálastofnunar og Nýsköpunarmiðstöðvar til að bregðast við atvinnuleysi og í fjórða lagi að hrinda af stað átaki til að fjölga sum- arstörfum og nýjum atvinnutækifær- um fyrir ungt fólk. Laugardaginn 12. maí 2009 ályktaði sveitarstjórnarráð VG að grípa þyrfti til aðgerða til að skapa störf á lands- byggðinni. Sagði þar m.a. að „í að- gerðum til að draga úr atvinnuleysi [væri] eðlilegt að líta til verkefna hjá sveitarfélögunum og veita fé til við- halds og nýsköpunarverkefna á þeirra vegum.“ 18. maí 2009 flutti Jóhanna Sigurð- ardóttir forsætisráðherra stefnu- ræðu. Eftir hana steig Steingrímur í pontu og fjallaði um atvinnuvandann. Baráttan gegn atvinnuleysi hlyti að hafa „algjöran forgang“. Síðla um sumarið, 29. ágúst 2009, samþykkti flokksráðsfundur VG á Hvolsvelli ályktun um að beita skyldi kynjaðri hagstjórn „svo kvennastörf- um í velferðarkerfinu verði ekki fórn- að til að skapa karlastörf með verk- legum framkvæmdum“. Taldi vandann vera minni Á aðfangadag 2009 sendi Stein- grímur flokkssystkinum sínum jóla- kveðju: „Atvinnuleysi er umtalsvert minna en spáð var, samdráttur lands- framleiðslu sömuleiðis … Nú með nýju ári og hækkandi sól er sem bet- ur fer að sjá fyrir endann á mörgum erfiðustu og þyngstu verkefnum björgunarstarfsins. Þá verður hægt að beina kröftum af meira alefli að uppbyggingarstarfinu,“ sagði hann. Mánudaginn 14. júní 2010 lagði Steingrímur orð í belg við almennar stjórnmálaumræður. „Því var spáð að atvinnuleysi yrði upp undir 10% að meðaltali. Það varð á milli 8 og 9%. Atvinnuleysi, bæði í apríl og aftur í maí á þessu ári, er heldur minna en í sömu mánuðum síðasta árs. Það er á niðurleið og var 8,3% nú í maí- mánuði,“ sagði hann í ræðu sinni. Síðla í ágúst 2010 vék Steingrímur aftur að atvinnuástandinu í greina- flokknum Landið tekur að rísa sem birtist í sex hlutum í Fréttablaðinu. „Framundan eru miklar fram- kvæmdir, til dæmis nýbyggingar Landspítalans, Búðarhálsvirkjun, tvöföldun Suðurlandsvegar o.s.frv. ... Um 2000 fleiri störf voru í boði á öðr- um ársfjórðungi 2010 en á sama tíma 2009,“ skrifaði Steingrímur en setn- ingarnar eru sóttar í tvær ritsmíða hans í greinaflokknum. Er nánar vikið að ummælum Steingríms um atvinnumál í römm- unum hér á opnunni. Sumarsýning TRYGGVASAFNS í Safnahúsinu Neskaupstað. Sýningin opnar á sjómannadaginn, sunnudaginn 3. júní, kl. 13.00 Sýningin verður opin frá kl. 13.00 til 17.00 alla daga í sumar. Meginuppistaðan í sýningunni í ár eru myndir sem tengjast sjónum, skip, bátar, skútur, fiskar, kuðungar, krossfiskar, hvalir, sporðar, önglar, akkeri og hafið sjálft svo nokkuð sé nefnt. Því ber sýningin heitið HAFIÐ Listaverkabók um Tryggva Myndskreytt póstkort Grafíkmyndir Til sölu í Safnahúsinu eru: Sumarsýningin HAFIÐ Seinni hluta janúarmánaðar 2011 fór Stein- grímur J. Sigfússon í fyrirlestraferð um landið og rakti í erindum sínum „þau tækifæri sem fyrir hendi eru í atvinnulífinu og [nefndi] fjölda fjárfestingaverkefna sem stjórnvöld [væru] að vinna að til að auka hagvöxt og atvinnu á Ís- landi“, að sögn vefjar VG. Í febrúar skrifuðu Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur grein í tilefni af þriggja ára af- mæli minnihlutastjórnarinnar, Betra samfélag, en minntust ekki á atvinnuleysi. Hinn 2. apríl sama ár vöruðu Steingrímur og Katrín Jakobsdóttir, varaformaður VG, kjós- endur við að fella Icesave-samninginn, „ekki síst til að við getum einbeitt okkar að því að ná niður atvinnuleysinu, er JÁ mun skynsamlegri kostur,“ sögðu þau en hástafirnir eru frá þeim komnir. Hinn 21. maí lagði flokksráðsfundur VG í Reykjavík fram Ályktun um stuðning við ríkisstjórnina þar sem sagði: „Átak hefur verið boðað í vegafram- kvæmdum á Vestfjörðum auk ýmissa samgöngu- framkvæmda um land allt.“ Hinn 27. ágúst 2011 ítrek- aði flokksráðsfundur VG stuðning við ríkisstjórnina: „Umtalsverður árangur hefur náðst í glím- unni við atvinnuleysið. Fundurinn beinir því til kjörinna fulltrúa flokksins að leggja áherslu á fjölbreytta atvinnuuppbyggingu og gæta sér- staklega að byggða- og kynjasjónarmiðum.“ 28. október 2011 flutti Steingrímur setning- arræðuna Talað orð gildir á landsfundi VG á Akureyri: „Vinnumagn mælist nú meira frá mánuði til mánaðar og atvinnuleysi lætur und- an síga, jafnvel þó það sé enn mikið mein.“ Í sama mánuði kynnti Steingrímur fjárlaga- frumvarpið fyrir 2012 með glærusýningu og kom þar fram að meðal forsendna frumvarps- ins væri að atvinnuleysi verði 6% á þessu ári. Um síðustu jól sendi Steingrímur flokks- mönnum sínum jólakveðju: „Síðan atvinnuleys- ið náði hámarki sínu á síðasta ári hafa orðið til 5.000 ný störf og til viðbótar því hafa fjölmörg vinnumarkaðsúrræði verið sett í gang til að að- stoða fólk af atvinnuleysisskrá,“ sagði hann en eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær telur ASÍ að 3.600 störf hafi orðið til á tímabilinu. Steingrímur J. Sigfússon Kynnti fjölda atvinnutækifæra
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.