Morgunblaðið - 02.06.2012, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 02.06.2012, Blaðsíða 49
MINNINGAR 49 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 2012 ekkert fékkst, vikurholsteinn í veggjum og upprétt braggabáru- járn á þakinu. En þetta hús fylltu þau af lífi og börnum, barnabörn- um, sumarbörnum og snúninga- börnum. Mörg voru óvensluð fjöl- skyldunni en urðu sjálfsagður hluti hennar. Fríða átti enda trúnað þessara barna og vináttu þeirra til æviloka. Fríða var einstaklega þrifin og snyrtileg, vildi vera vel til fara og eiga vönduð föt. Ung stúlka af- greiddi hún í fataverslun í Reykjavík og hefði vel getað orð- ið „fín frú“ í bænum. En hún hitti sveitastrákinn Ingvar sem hvergi vildi annars staðar vera en á Reykjahlaðinu. Náttúrubarninu og dýravininum Fríðu leið líka best í sveitinni innan um dýrin, í garðinum sínum og með stórfjöl- skyldunni. Hún fylgdist alltaf glöggt með öllu sem gerðist í fjós- inu og passaði sérstaklega vel upp á kettina. Nýgotnar læður gátu reitt sig á miklar veislumál- tíðir, iðulega mátti sjá nýsoðinn lax í kattarskálinni. Sonurinn og sonarsonurinn halda uppi merkj- um hennar áfram, allar skepnur á bænum skulu vera saddar, sælar og í góðum holdum. Hún stundaði heilsubótargöngur fram á það síðasta, fullvissaði okkur um að sér væri nú alveg óhætt með göngustafina, gemsann og svo auðvitað sprengitöflurnar í vas- anum. Tengdamóðir mín var bráð- greind, athugul og skemmtilega gagnrýnin – jafnvel róttæk í mörgum málum. Aldrei var kom- ið að tómum kofunum, hún var margfróð um ólíklegustu málefni þótt ekki færi hún oft af bæ. Hún las mjög mikið, ég hafði í seinni tíð mér til afsökunar að bókakaup væru nú líka ætluð Fríðu enda vorum við yfirleitt sammála um gæði og galla bókanna. Hún hlakkaði sérstaklega til að sjá hvað kæmi upp úr bókamarkaðs- kössunum því þá var Svenni með í innkaupunum og þau því fjöl- breyttari og rausnarlegri. Mikilvægur þáttur í uppeldi barna er samneyti við eldra fólk. Hér var stutt yfir til ömmu og afa, oft þurfti ég að fara í vitjun á fjósatíma og þá var gott að geta laumað litlum ungum inn til ömmu Fríðu. Þegar Ingvar féll frá varð Fríða ein í kotinu, þá tóku börnin upp þann góða sið að skiptast á að sofa hjá ömmu. Minningarnar um kvöldstundirn- ar hjá ömmu eru börnum mínum einstakt veganesti. Fríða skilur eftir sig dýrmæt- an arf, hún innrætti öllum börn- um væntumþykju, þolinmæði og virðingu fyrir öllu sem lifir. Ég minnist hennar með þakklæti og virðingu. Katrín. Elsku hjartans amma Fríða er búin að kveðja. Það verður skrýt- ið að geta ekki rætt við hana um bækurnar sem maður er að lesa þá stundina, það sem er að gerast í sveitinni eða hreinlega allt sem manni dettur í hug og þarf að ræða. Ég er líka hrædd um að kisa fái ekki alveg jafn oft nýjan lax eða nýsoðin hrogn og rjóma með, en ég held að hún amma hefði verið ánægð með nýja kett- linginn sem fitnar bara og fitnar og minnir helst á Nebba gamla í holdafari, þannig eiga kettir nefnilega að vera. Þegar ég var pínulítið grjón sótti ég mjög stíft í að komast yfir til ömmu og afa, mamma og pabbi sóttu mig stundum oft sama dag- inn þegar ég hafði stolist yfir. Hún var svo ósköp skemmtileg og vildi alltaf tala við mann, hlusta og gefa góð ráð. Hún fylgdist líka alltaf vel með skólagöngunni og var áhugasöm um allt sem gerðist þar, og alltaf hvatti hún mann áfram þegar ekki gekk nógu vel. Hjá ömmu var alltaf eins og heimurinn snerist um mann sjálf- an, alveg sama hvað hún hafði fyrir stafni var alltaf pláss fyrir aukamanneskju, þótt það væri bara lítil stelpa sem gerði lítið gagn. Þegar hún var að baka flat- kökur (þær allra bestu) var dreg- ið fram lítið kökukefli og form fyrir yngri kynslóðina og ýmsar fígúrur steiktar samhliða stóru kökunum. Kleinubaksturinn var líka mjög vinsæll því þá fékk maður afskorninga og borðaði eins og maður gat í sig látið. Amma kveikti áhugann á bakstri, enda enginn sem bjó til betra bakkelsi, og alltaf virtist eitthvað gott vera til í skápunum eða frystinum, svo var líka sérstök veisla þegar hún hafði gert jarð- arberjatertu því þá bjó hún til jarðarberjaklaka sem var jafnt skipt í litlar dollur handa þeim krökkum sem voru á hlaðinu það og það skiptið. Amma vildi alltaf gera eitthvað skemmtilegt, eins og til dæmis að spila. Ég var óhemju tapsár frá unga aldri svo ég fann upp spilið Mjólk. Í því spili voru reglurnar samdar jafnóðum, alltaf mér í hag, svo ég tapaði aldrei. Það truflaði ömmu ekki neitt og við spiluðum Mjólk löngum stundum. Einstaka sinnum spilaði afi líka með en honum leist frekar illa á (ó)reglurnar sem stelpuskottið spann upp svo hann gafst yfirleitt upp á þessari vitleysu. Amma var alltaf fín, hún átti vönduð og falleg föt og bar smekklega skartgripi við. Húðin hennar var alltaf mjúk og hend- urnar hlýjar, og þegar við Ingvar Hersir fórum að skiptast á að sofa í ömmu húsi eftir að afi fór var alltaf jafn notalegt að setjast að- eins inn í herbergi hjá ömmu og spjalla meðan hún bar á sig krem- in og kyssa svo góða nótt svo maður fékk smá kremlykt með sér í svefninn, það voru allra bestu kvöldin. Sigríður Sóley. Ég var svo heppinn að alast upp með ömmu Fríðu og afa Ingvari í næsta húsi. Ömmu og afa sem ég heiti í höfuðið á, amma Fríða hét nefnilega líka Hersilíla og þess vegna heiti ég Ingvar Hersir. Hjá ömmu Fríðu var ég oft í pössun þegar ég var lítill. Hún amma Fríða hafði alltaf nægan tíma fyrir mig og systur mína Siggu Sóleyju og talaði mikið við okkur um allt á milli himins og jarðar og margt af því hefur reynst okkur gott veganesti út í lífið. Eftir að hann afi Ingvar dó sá ég um að segja ömmu frá öllu sem gerðist í búskapnum í Reykjahlíð. Þá var amma líka ein í húsinu hennar, það fannst okkur Siggu Sóleyju ófært og við skipt- umst á að sofa í hennar húsi þann- ig að hún var sjaldan ein á nótt- unni. Ein af mínum uppáhaldsminn- ingum um ömmu er þegar hund- urinn okkar hún Hvöt dó og var jörðuð í blómagarðinum okkar. Ég var lítill strákur og allir voru leiðir, líka amma sem hafði haldið mikið upp á Hvöt. Ég bauð ömmu að ef hún vildi, þá mætti hún láta jarða sig hjá Hvöt í garðinum okkar. Ömmu fannst þetta mjög fallega boðið. Það er dýrmætt að hafa átt hana ömmu Fríðu og minning- arnar um hana verða mér mikils- verðar í framtíðinni. Ingvar Hersir. Elsku besta amma mín, þá er því miður komið að kveðjustund. Það sem ég hef notið þess að eiga þig að, ég er svo þakklát að hafa fengið að eiga þig sem leiðbein- anda í lífinu, þú varst svo skyn- söm og hafðir upplifað svo margt í gegnum þína löngu ævi, bæði mikla gleði og mikla sorg. Alltaf stóðst þú teinrétt, engin áföll náðu að beygja þig og það mun ég minna mig á seinna á lífsleiðinni. Þú ert okkur öllum svo góð fyr- irmynd, elskan mín. Ég viðurkenni það að ég hef frá því ég man eftir mér verið mikil ömmusleikja og skammast mín ekkert fyrir það. Amma hafði þann hæfileika að láta manni líða þannig að maður hlyti að vera uppáhaldsbarnabarnið og það er ég viss um að okkur barnabörn- unum líður öllum þannig. Amma hugsaði alltaf svo vel um sig og var svo mikil dama, hún var alltaf fínt klædd og fín um hárið. Hún átti rúllur sem hún setti í sig við og við og ég man hvað mér fundust þessar rúllur ótrúlega flottar og ég tilkynnti ömmu það þegar ég var lítil stelpa að þegar hún væri dáin þá myndi ég koma uppeftir, ná í rúll- urnar og koma svo aldrei aftur. Amma var ein af mínum bestu vinkonum og það var alltaf hægt að leita til hennar. Hún var ótrú- lega góð að hlusta á mann og kom alltaf með svo góðar lausnir á hlutunum. Ef við Lárus lentum í rökræðum með einhver mál var oft á tíðum lendingin sú að best væri að heyra í ömmu til að heyra hvað þeirri gömlu þætti skyn- samlegast að gera og oftar en ekki var það besta lausnin. Ég hlýja mér við tilhugsunina um að þú, afi, Hjalti frændi og mamma séuð sameinuð á ný, vak- ið yfir okkur hinum og njótið ykk- ar. Ég er svo þakklát að hafa feng- ið að hafa þig svona lengi hjá okk- ur og þú átt svo stóran þátt í því hver ég er í dag því þú hefur alltaf verið til staðar og verið svo dug- leg að gefa góð ráð. Ég elska þig svo mikið og á eftir að sakna þín alveg óendanlega, kossar og knús. Þín Ragnheiður. Elskuleg amma mín, hún amma Fríða, hefur kvatt. Mikið var ég lánsöm að fá að hafa hana svona lengi. Það sem einkenndi ömmu var jákvæðni, kímni, heið- arleiki og hversu traust hún var. Það var hægt að segja ömmu allt milli himins og jarðar og aldrei laug hún til um skoðun sína á hlutunum. Hún var líka alltaf mjög áhugasöm um það sem ég og aðrir voru að gera, hvort sem það voru ferðalög, skóli eða eitt- hvað annað. Ég á margar góðar minningar sem ég ætla að geyma vel og lengi um ömmu, afa og lífið í Reykjahlíð en þar dvaldi ég mik- ið sem barn. Þá var ég hjá ömmu og afa nokkurn veginn í stað leik- skóla, en einnig vorum við alltaf hópur af barnabörnum hjá þeim á sumrin og gekk oft ekki lítið á. Vaktu, minn Jesús, vaktu í mér, vaka láttu mig eins í þér. Sálin vaki þá sofnar líf, sé hún ætíð í þinni hlíf. (Hallgrímur Pétursson) Elsku amma, ég veit að afi Ingvar var örugglega farinn að bíða eftir þér eins og hann var vanur og er himinlifandi að fá þig til sín, Gígju og Hjalta. Ég þakka þér fyrir samfylgd- ina, það er ómetanlegt að hafa átt þig sem ömmu, betri fyrirmynd er ekki hægt að óska sér. Þín Fríða Margrét. Sólin hækkar á lofti, sumarið er framundan, sumarið sem hún Fríða mín ætlaði að dvelja í Reykjahlíð þar sem hún hafði allt sem var henni kærast. Þar var alltaf gott að koma og spjalla við hana Fríðu, hún hafði einstakt lag á að tala við börn og unglinga á því þroskaskeiði sem hver og einn var á, hverju sinni. Ef þú varst eitthvað að kvarta yfir tilverunni þá afsakaði hún þig með orðunum að þú værir sennilega á vondum aldri eða nývöknuð. Og ef eitt- hvað bjátar á er bara að setja öxl- ina í vindinn og brosa, já lífsspeki Fríðu endist þér allt lífið. Við börnin á „Reykjatorfunni“ sótt- um mjög í hennar félagsskap, hlupum undan brekkunni eins og við sögðum til að krækja okkur í rúsínur og sveskjur sem alltaf var nóg til af í búrinu hennar. Fríða hafði gaman af lestri og gat sagt okkur skemmtilegar sögur, lesið fyrir okkur ljóð og kennt okkur texta við lög sem við gátum sungið fyrir hana. Já, til- veran hennar Fríðu var skapandi og skemmtileg, hún hafði næmt auga fyrir því spaugilega sem við börnin vorum að bjástra við enda átti hún trúnað okkar allra. Þegar unglingsárin tóku við var gott að ráðfæra sig við Fríðu um skólaáform og framtíðarhorf- ur, henni var mjög umhugað um að við gengjum menntaveginn, hún fylgdist því vel með í þeim málaflokki og þekkti hvað í okkur bjó, allir hafa eitthvað sérstakt fram að færa að hennar mati og hún hafði alltaf tíma til að stappa í okkur stálinu. Fríða var einstök og það eru forréttindi að hafa alist upp með henni, á kveðjustund er efst í huga virðing og þakklæti fyrir góða samfylgd. Hvíl þú í friði. Þér kæra sendi kveðju með kvöldstjörnunni blá það hjarta, sem þú átt, en sem er svo langt þér frá. Þar mætast okkar augu, þótt ei oftar sjáumst hér. Ó, Guð minn ávallt gæti þín, ég gleymi aldrei þér. (Bjarni Þorsteinsson) Börnum hennar Fríðu, Svenna, Nunnu, Ernu og fjöl- skyldum þeirra, sendum við sam- úðarkveðjur og biðjum Guð að styrkja þau í sorginni. Magnea, Guðrún, Þórdís, Sigrún Ásta og Rúnar Þór Bjarnabörn. Lóan boðaði ekki bara vor- komuna á æskuárunum heldur annað og meira, sumardvöl í Reykjahlíð hjá Fríðu og Ingvari. Við vorum svo lánsamar að fá að vera í sveit hjá þessum yndislegu hjónum í um tíu ár sem tóku okk- ur opnum örmum, eins og fjöl- skyldan öll. Sumarið hófst fyrir alvöru á hlaðinu í Reykjahlíð. Lífið og fjörið á Reykjabæjunum þremur var engu líkt. Þar voru krakkar á öllum aldri og ævintýrin á hverj- um degi endalaus. Gæska Fríðu sýndi sig frá fyrstu stundu. Hún nálgaðist okkur systur af þeirri hlýju og til- litssemi sem einkenndi hana alla tíð og fékk okkur til að falla inn í hópinn. Við vorum hluti fjölskyld- unnar. Fríða hafði sérstakt lag á að ná vel til fólks og umgekkst alla af sama áhuga og virðingu. Og það var ekki bara mannfólkið sem skynjaði þessa einstöku eigin- leika hennar því dýrin á bænum hændust líka að henni. Mörg gullkorn Fríðu munu geymast enda bjó hún yfir skarpri kímnigáfu. Hún var greind og vel upplýst og las bók- staflega allt sem hún komst yfir. Hún var glaðsinna og hugurinn alltaf bjartur. Þrátt fyrir sáran missi barna og maka var Fríða alltaf hughraust og horfði æðru- laus fram á veginn. Heimsóknirnar í Reykjahlíð á seinni árum voru líka dýrmætar. Myndin af fjölskyldunni þar sem hún stendur úti á tröppum og veifar að skilnaði þegar við keyr- um úr hlaði er falleg og yljar. Við kveðjum elsku Fríðu okk- ar, nú þegar leiðir skilur. Við er- um þakklátar fyrir að hafa átt vináttu hennar og Reykjahlíðar- fólksins alls. Bergljót og Kolbrún. Sendum frítt hvert á land sem er Helluhrauni 12 • Hafnarfjörður • 544 5100 • www.granithusid.is ✝ Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför KRISTÍNAR GUÐMUNDSDÓTTUR frá Norðfirði, Snorrabraut 56b, Reykjavík. Kolbrún Sigurðardóttir, Guðlaugur Sigurðsson, Alda Björk Skarphéðinsdóttir, Valgerður Sigurðardóttir, Ágúst Ólafur Georgsson og fjölskyldur þeirra. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, KRISTÍNAR ÞORBJARGAR STEFÁNSDÓTTUR, Skarðshlíð 27c, Akureyri. Sérstakar þakkir til starfsfólks Lyflækningadeildar Sjúkrahúss Akureyrar og Heimahlynningar fyrir frábæra umönnun. Hörður Sigtryggsson, Heimir Sigtryggsson, Guðrún H. Sigtryggsdóttir, Stefán Guðmundsson, ömmu- og langömmubörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar mömmu, tengdamömmu, ömmu, langömmu og systur, INGIBJARGAR S. SIGURÐARDÓTTUR. Innilegar þakkir fá allir þeir sem komu að aðhlynningu hennar á Landspítalanum í Fossvogi. Sérstakar þakkir fær starfsfólk á deild A 7 fyrir einstaka ummönnun, hlýju og virðingu. Fyrir hönd aðstandenda, Þorsteinn Sveinbjörnsson, Sigurður Sveinbjörnsson. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, PÉTUR INGVASON vörubílstjóri, Unufelli 27, verður jarðsunginn frá Fella- og Hólakirkju mánudaginn 4. júní kl. 13.00. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunar- heimilisins Markar, 3. hæð suður, fyrir hlýhug og einstaka umönnun. Elín Kristín Halldórsdóttir, Halldór Pétursson, Ágústa Hansdóttir, Ingvi Pétursson, Auður Agnes Haraldsdóttir, Lilja Pétursdóttir, Friðfinnur Einarsson, Pétur Pétursson, Halldóra Jóhannesdóttir Sanko, Þóra Pétursdóttir, Njáll Þórðarson og barnabörn. ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, INGA MARTA INGIMUNDARDÓTTIR, Njörvasundi 27, lést í faðmi fjölskyldunnar á Landspítalanum við Hringbraut fimmtudaginn 24. maí. Útförin fer fram frá Seljakirkju þriðjudaginn 5. júní kl. 13.00. Sigurður Stefánsson, Stefán Ingi Sigurðsson, Rósa María Guðjónsdóttir, Sigurlaug Sigurðardóttir, Friðþjófur Ó. Johnson, Svanberg Þór Sigurðsson, Magnea S. Guðmundsdóttir, Jóhanna Sigurðardóttir, Agnar Már Agnarsson, ömmu- og langömmubörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.