Morgunblaðið - 02.06.2012, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 02.06.2012, Blaðsíða 68
„Það er sérstök staða að mæta sínu gamla félagi sem maður spilaði með í 15 ár,“ segir Guðjón Þórðarson þjálfari Grindvíkinga en í dag stjórnar hann liði sínu gegn ÍA í Pepsí-deildinni. Grindavík situr á botninum og er án sigurs á meðan Ak- urnesingar tróna á toppi deildarinnar og eru eina liðið sem hefur ekki tapað leik. »1 Alfreð Gíslason elskar áskoranir, er ákaflega metnaðarfullur, þykir mjög harður og vill gera allt sjálfur. Styrk- ur hans er í mannlegu hliðinni, hann breytist ekkert og er alltaf sami kar- akterinn. Þetta og margt fleira segja Atli Hilmarsson og Sigfús Sigurðsson um þennan sigursæla handboltaþjálf- ara sem er að slá öll met í Þýskalandi. »2-3 Á sunnudag (sjómannadaginn) Fremur hæg norðlæg átt og víða léttskýjað, en líkur á síðdegisskúrum S-lands. Þokubakkar við ströndina, einkum N-til. Hiti 10 til 18 stig. Á mánudag Norðaustanátt, 3-8 m/s og víða skúrir, en sums staðar slydduél NA-til. Hiti víða 3 til 12 stig, hlýjast SV-til. Alfreð elskar áskoranir og vill gera allt sjálfur LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 154. DAGUR ÁRSINS 2012  Tónleikum spænsk/afrísku söng- konunnar Buiku, sem vera áttu á morgun sunnudag í Hörpu, hefur ver- ið frestað vegna veikinda söngkon- unnar. Ný dagsetning í júní verður til- kynnt á allra næstu dögum. Tónleikum Buiku í Hörpu frestað  Djasssumar- tónleikaröð Jóm- frúarinnar við Lækjargötu hefst í dag kl. 15 með tónleikum tríós gítarleikarans Ómars Guðjóns- sonar. Auk Ómars leika Tómas R. Einarsson á kontrabassa og Matthías Hemstock á trommur. Verða tónleik- arnir á laugardögum í júní og júlí. Fyrstu djasssumar- tónleikar á Jómfrúnni  Plötusnúðurinn DJ Fingaz frá Los Angeles kemur fram í kvöld á skemmtistaðnum Vegamótum. DJ Fingaz hefur haldið marga teitina fyrir þekkta, bandaríska listamenn og má þar nefna Snoop Dogg, Jay-Z, Will Smith, Lil Wayne, Black Eyed Peas, Nicki Minaj, Drake, The Roots og Beyoncé. Þá hefur hann þeytt skífum á tónleikum rapparans XZibit. DJ Fingaz þeytir skífum á Vegamótum Ingvar P. Guðbjörnsson ipg@mbl.is Náttúru, sögu og nytjum Veiðivatna eru gerð skil á ljósmyndasýning- unni Í Veiðivötnum sem opnuð var um síðustu helgi í Heklusetrinu á Leirubakka í Landsveit. Ljósmyndirnar eru verk hjónanna Pálma Bjarnasonar og Sigrúnar Kristjánsdóttur, sem hafa getið sér gott orð á undanförnum árum fyrir fallegar ljósmyndir og er sýningin afrakstur undanfarinna ára af ferðum þeirra í Veiðivötn. „Ástæðan fyrir þessari sýningu liggur tvímælalaust hjá Anders og Valgerði. Þegar við vorum komin langt með sýninguna Á fjalli í fyrra vetur fór Anders að tala um það hvort við værum ekki tilbúin að halda áfram því þau hafa áhuga á að tengja Heklusetrið miklu meira við bændur í sveitinni og nytjar bænda af afréttinum,“ sagði Pálmi aðspurður um tilurð sýningarinnar. Stóðust ekki áskorunina „Það lá beint við að taka Vötnin á eftir smalamennskunni og beit- arnytjunum. Þannig að við stóð- umst ekki áskorunina og sam- þykktum þetta síðastliðið vor og svo náttúrulega kom veiðifélagið með mjög rausnarlegt framlag sem gerði okkur kleift að halda þessa sýningu.“ Pálmi segir að markmiðið með sýningunni hafi verið skýrt frá upp- hafi. Þau hafi viljað sýna umhverfið í Vötnunum, en allt of fáir tengi þau við náttúrufegurð þar sem flestir hugsi um stangveiði í samhengi við Veiðivötn. Einnig að gera skil stangveiðinni og netaveiðinni, bæði nytjaveiði bænda og eins klakveið- inni á haustin sem sé undirstaða fiskiræktar veiðifélagsins í vötn- unum undanfarna áratugi. Pálmi og Sigrún settu á sama stað upp sýninguna Á fjalli í fyrra sem fjallaði um smölun á Land- mannaafrétti. Auk þess hafa þau komið að nokkrum samsýningum, en þau hafa starfað saman að ljós- myndun frá árinu 2004. Ljósmyndir Pálma og Sigrúnar hafa verið gefn- ar út á bókum, fyrst þremur bókum sem voru gefnar út með tveimur öðrum ljósmyndurum og fjórða bókin, Iceland in your pocket, kom út um hvítasunnuhelgina, eingöngu með verkum þeirra hjóna. Þau halda einnig úti síðunni www.ice- landimage.com þar sem hægt er að sjá afrakstur vinnu þeirra. Ljósmyndasýningin verður opin daglega til 14. október frá 9-21 samhliða Heklusetrinu. Að Leiru- bakka eru einungis 115 km frá höf- uðborginni og vel þess virði fyrir alla að fara og skoða hana á góðum degi. Ljósmyndasýning um Veiðivötn  Gáfu einnig út ljósmyndabók um hvítasunnuhelgina Ljósmynd/Kim Mortensen Árabátasafn Ólafur Helgason, fyrrum bóndi á Pulu í Holtum, hefur verið áhrifamaður innan Veiðifélags Land- mannaafréttar til margra ára. Hér skoðar hann myndir af lúnum árabátum sem á að gera skil á safni á Leirubakka. Myndarhjón Sigrún Kristjánsdóttir og Pálmi Bjarnason við opnun sýning- arinnar á Leirubakka. Þau hafa stundað ljósmyndun saman síðan árið 2004. 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í LAUSASÖLU 649 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550 VEÐUR » 8 www.mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. Lést í bílslysi við Hörgárbrú 2. Andlát: Rúnar Bjarnason 3. Horfði á klám og nauðgaði 4. Fundu eigandann í Svíþjóð FÓLK Í FRÉTTUM VEÐURÍÞRÓTTIR SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hægviðri eða hafgola og yfirleitt léttskýjað. Hiti 12 til 20 stig að deginum, hlýjast í uppsveitum SV-lands, en svalara úti við A-ströndina. „Við þurfum að búa okkur vel undir 5/1-vörnina sem úkraínska liðið leik- ur yfirleitt og olli okkur miklum erfið- leikum í fyrri leiknum í haust og eins undir lokin gegn Spáni á miðvikudag- inn,“ sagði Ágúst Jóhannsson, þjálf- ari kvennalandsliðsins í handbolta, við Morgunblaðið en Ísland mætir Úkraínu í hreinum úrslitaleik um sæti á EM á morgun. »1 Þurfum að búa okkur vel undir 5/1-vörnina Guðjón spenntur að mæta ÍA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.