Morgunblaðið - 02.06.2012, Blaðsíða 32
Stórhöfða 17 | Sími 577 5555 | veggsport.is
Skvass » Spinning » Karfa » Golfhermir » Tækjasalur » Gufubað
14 daga námskeið fyrir 13-16 ára 11.-22. júní
• Æfingar og fræðsla
• 3 tímar á dag
• Næringarfræðsla fyrir foreldra
Á námskeiðinu verður kennt mikilvægustu atriðin varðandi
• hvernig á að velja rétta næringu
• hvernig á að þjálfa rétt fyrir sinn aldur
• hvernig þú getur hámarkað árangur þinn
Hugmyndafræðin við námskeiðið er byggð á The Window of
Opportunity sem kemur frá fyrrum styrktarþjálfara Chicago Bulls
• Námskeiðið hentar öllum ungmennum 13-16 ára
• Þeim sem æfa íþróttir, eru í undirþyngd, eru í yfirþyngd og þeim sem
vilja byrja að æfa.
Verð kr. 15.000
Þjálfarar á námskeiðinu eru Mark Kislich styrktarþjálfari meistaraflokks KR og
Selfoss í knattspyrnu og Hilmar H. Gunnarsson íþróttakennari
Nú er tækifærið til að læra rétta þjálfun og næringu
32 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 2012
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Boðið verður upp á nám í fjallamennsku við
Framhaldsskólann í Austur-Skaftafellssýslu
(FAS) á Höfn í Hornafirði nú í haust. Námið
verður 60 eininga sérnám sem tekur eitt ár og
er lögð áhersla á verklegt útinám á fjöllum og í
óbyggðum. Einnig verða bóklegar námslotur
við skólann. Náminu lýkur svo með starfs-
þjálfun hjá ferðaþjónustufyrirtæki næsta sum-
ar.
„Við teljum okkur vel í sveit sett með svona
nám. Við keyrum klukkutíma frá skólastofunni
og þá erum við komin upp á jökul. Við höfum
svo mikla möguleika á alls kyns landslagi. Þetta
er mjög góð staðsetning fyrir svona nám,“ segir
Sigurður Mar Halldórsson, kennari við skólann.
Fjallamennskunámið var kennt í tilrauna-
skyni í vetur og útskrifuðust ellefu nemendur
þaðan nú í vor. Þar á meðal voru ýmsir reyndir
björgunarsveitar- og leiðsögumenn.
Skráningar fyrir haustið eru þegar hafnar en
Sigurður segir skólann renna nokkuð blint í sjó-
inn með það hversu margir sæki um. „Ef það
koma fleiri en æskilegt þykir skiptum við bara í
tvo hópa. Það er nóg til af fjöllum,“ segir hann. Klifur Ferðir upp á jökla, fjöll og firnindi eru hluti af náminu í fjallamennsku við FAS. Ellefu nemendur lögðu stund á námið í vetur.
Fjallamennskunám á vel heima á Höfn
Ný braut í Fram-
haldsskólanum í Aust-
ur - Skaftafellssýslu
Tæplega þrítug kona situr í gæslu-
varðhaldi eftir að hún reyndi að
smygla nær hálfu kílói af fíkniefn-
um í leggöngum sínum til landsins.
Konan, sem er af erlendu bergi
brotin, var að koma frá Kaup-
mannahöfn og vaknaði grunur um
að hún væri með fíkniefni í fórum
sínum við hefðbundið eftirlit toll-
gæslu.
Þegar farið var að ræða nánar
við hana „missti“ hún á fimmta
hundrað grömm af ecstasy-dufti
niður úr leggöngum sínum, líkt og
það er orðað í tilkynningu frá lög-
reglunni.
Úrskurðuð í gæsluvarðhald
Lögreglan á Suðurnesjum var
þá kvödd í Flugstöð Leifs Eiríks-
sonar, þar sem konan hafði misst
efnin og var hún handtekin og
færð á lögreglustöð. Hún var
skömmu síðar úrskurðuð í gæslu-
varðhald. Rannsókn lögreglu er á
lokastigi.
Með hálft kíló af
fíkniefnum
í leggöngunum
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Um þriðjungur af tekjum veiðikorta-
sjóðs fer í rekstur veiðikortakerfisins.
Það sem eftir stendur fer til rann-
sókna á villtum dýrum. Veiðikorta-
sjóður úthlutaði nýlega rannsókna-
styrkjum upp á 28,4 milljónir. Tekjur
sjóðsins byggjast á tekjum af sölu
veiði- og hlunnindakorta vegna veiða
á villtum dýrum, aðallega veiðikort-
um til skotveiðimanna.
Gylfi Ástbjartsson, sviðsstjóri fjár-
mála og reksturs Umhverfisstofnun-
ar, sagði kveðið á um það í reglugerð
um veiðar á villtum dýrum (291/1995)
hvernig tekjum sjóðsins skuli varið.
Umhverfisráðuneytið gaf síðan út
vinnureglur um hve stórt hlutfall af
tekjunum mætti fara til rekstursins,
eða allt að 40% af tekjum sjóðsins.
Gylfi sagði reynt að halda reksturs-
kostnaði veiðikortakerfisins í lág-
marki. Hann sagði töluverða umsýslu
vera í kringum útgáfu 12-13 þúsund
veiðikorta á ári. Kerfinu tilheyrir
einnig að halda utan um og vinna úr
veiðiskýrslum veiðimanna.
Umsýslukostnaður veiðikortakerf-
isins hefur verið í kringum 16 millj-
ónir á ári undanfarin þrjú ár og tekj-
urnar í kringum 48 milljónir á ári,
samkvæmt upplýsingum í Veiðidag-
bók Umhverfisstofnunar 2012. Þar er
birt yfirlit yfir fjölda útgefinna veiði-
korta og tekjur og rekstrarkostnað
veiðikortasjóðsins allt aftur til ársins
1995 þegar kerfið var sett á laggirnar.
Þar sést að umsýsla kerfisins á árum
áður nam allt frá 28% af tekjum og
upp í 48% af tekjum sjóðsins á ári.
Umsýslukostnaðurinn hefur því
minnkað hlutfallslega undanfarin ár.
Um þriðjungur
tekna fer í umsýslu
Morgunblaðið/Ingó
Veiði Tekjur sjóðsins byggjast á
tekjum af sölu veiðikorta.
Hún er söm við sig hún Lína langsokkur og heillar
krakka upp úr skónum hvar sem hún kemur með sínum
prakkarastrikum og frumlegheitum. Þessi skemmti-
lega stelpa sem Astrid Lindgren skapaði fyrir margt
löngu lifnaði við einu sinni enn í gær þegar 6. bekkur
Rimaskóla setti upp leiksýningu úti í góða veðrinu.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Langsokkurinn Lína gerir mikla lukku