Morgunblaðið - 02.06.2012, Blaðsíða 28
28 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 2012
V/Reykjalund - Mosfellsbæ - Sími 562 8500 - www.mulalundur.is
Múlalundur - fyrir betri framtíð
BARMMERKI
FUNDURINN
ÆTTARMÓTIÐ
ENDURFUNDIR
N NÁMSKEIÐIÐ
RÁÐSTEFNUR
Við öll tækifæri
Barmmerkin fást í mörgum litum sem bjóða upp á
flokkun ættartengsla þegar ættarmót er haldið.
Snúrur í
hangandi merki
Vörunr. 1033
Vörunr. 1020 K
Vörunr. 1025 K
Vörunr. 1018 K
Hægt er að velja á milli
þess að hafa snúru,
hangandi klemmu eða
klemmu og nælu
á baki bammerkis.
Pappírinn kemur rifgataður í A4 örkum, fyrir þá sem vilja prenta sjálfir.
Nokkrar algengustu
gerðir barmmerkja:
Vörunúmer h (mm) br (mm)
130-1018K 28 70
130-1020K 43 70
130-1025K 55 90
130-1033 55 85
Sjá nánari upplýsingar á vef okkar:
www.mulalundur.is
EINBÝLISHÚS TEIKNAÐ AF
HÖGNU SIGURÐARDÓTTUR Í
BREKKUGERÐI REYKJAVÍK
Eignin er til sýnis
skv. nánara samkomulagi
Höfum fengið til sölumeðferðar þetta
stórglæsilega hús við Brekkugerði 19
í Reykjavík. Húsið, sem er 308 fer-
metrar að stærð, skiptist m.a. þannig:
á neðri hæð eru forstofa, stórt hol
með arinstæði og sundlaug, baðher-
bergi, tvö íbúðarherbergi, bílskúr o.fl.
Á efri hæð eru m.a. stórar og glæsi-
legar stofur með fallegu arinstæði og
útgengi á tvennar svalir. Eldhús, þrjú
herbergi og baðherbergi. Um 150 fer-
metra þakgarður er yfir allri efri hæð
hússins og nýtur þaðan glæsilegs út-
sýnisyfir borgina, til sjávar og víðar.
Verð tilboð.
FASTEIGNA-
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. - OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/.
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali. - Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali.
verkstjóra á hverju svæði fylgjast
mjög grannt með hálendinu og meta
dag frá degi hvernig staðan væri.
„Kaldadal ætla þeir að fara og
hreinsa strax á mánudag,“ sagði Sig-
fríður. „Þetta er allt að mjakast.“
Hún gat ekki upplýst hvenær mætti
búast við opnun Sprengisands, en
sagði að búið væri að ryðja Kjöl að
mestu leyti og að vegurinn væri að
þorna núna og ætti líklegast að opn-
ast innan skamms. Sigríður sagði
Ingvar P. Guðbjörnsson
ipg@mbl.is
Hálendisvegirnir opnast einn af öðr-
um. Búið er að opna veginn frá Sig-
öldu í Landmannalaugar. Þá er einn-
ig hægt að komast að Hagavatni,
sunnan Langjökuls og að Bláfells-
hálsi.
Á Norðurlandi er búið að opna
veginn um Flateyjardal og á Austur-
landi er búið að opna leiðina frá
Kárahnjúkum, vestan við Jökulsá,
niður að Brú á Jökuldal og að Sæ-
nautaseli. Þá er búið að opna veg
F862, frá Hljóðaklettum að Detti-
fossi og er vegurinn nú fær fjór-
hjóladrifsbílum og þar takmarkast
ásþungi við 7 tonn.
Þetta kemur fram í tilkynningu
frá Vegagerðinni.
Fylgst með ástandinu dag frá
degi.
Í samtali við Sigfríði Hallgríms-
dóttur hjá Vegagerðinni kom fram
að fólk þyrfti að fara fram og til baka
í Landmannalaugar. Fjallabak
nyrðra væri ekki opið ennþá og ein-
hver tími væri enn í að hún opnist.
Vegurinn inn í Land-
mannalaugar opnaður
Hálendisveg-
irnir opnast einn
af öðrum
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Ferðamenn Mikil ásókn er í Landmannalaugar á hverju sumri og þangað
koma ferðamenn þúsundum saman, enda ærin ástæða til heimsóknar.
Forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur
hefur lagt til að Perlan verði að
nýju auglýst til sölu.
Í bréfi til borgarráðs er Reykja-
víkurborg boðið að kaupa Perluna
af Orkuveitunni. Borgarráð sam-
þykkti að vísa málinu til til um-
sagnar starfshóps um sölu eigna
OR.
„Reykjavíkurborg er hér með
gefinn kostur á að kaupa Perluna.
Fyrir liggur tilboð í eignina og er
vilji innan fyrirtækisins til að hefja
söluferli að nýju. Verður tillaga
þar um tekin fyrir á næsta stjórn-
arfundi þann 14. júní nk. nema þá
liggi fyrir ákvörðun Reykjavíkur-
borgar um að kaupa Perluna,“
segir í bréfi Bjarna Bjarnasonar
forstjóra.
Orkuveitan auglýsti Perluna til
sölu í vetur og bárust sex kaup-
tilboð. Hæsta tilboðið var frá hópi
fjárfesta sem áformaði að byggja
við Perluna og nýja húsið fyrir
ferðaþjónustu. Tilboðið hljóðaði
upp á 1.688,8 milljónir króna.
Hópurinn féll í vor frá tilboði
sínu í kjölfar þess að Reykjavík-
urborg ákvað að efna til sam-
keppni um skipulag Öskjuhlíðar-
innar. Hópurinn taldi að
borgaryfirvöld væru að eyðileggja
söluferli Perlunnar með því að
standa svona að málum.
Orkuveitan reisti Perluna og var
hún vígð 21. júní árið 1991. Perlan
hvílir ofan á sex hitaveitugeymum
sem rúma samtals 24 milljónir
lítra af heitu vatni.
Hundruð þúsunda gesta heim-
sækja Perluna á hverju ári enda er
hún eitt helsta kennileiti höfuð-
borgarinnar.
Perlan hefur verið valin í hóp
fimm bestu útsýnisveitingahúsa
heims. sisi@mbl.is
Orkuveitan gefur borginni
kost á að kaupa Perluna
Morgunblaðið/Árni Sæberg
„Við fögnum þessum áfanga mjög
og í okkar fólki er tilhlökkun að
undirbúa mótið. Við höfum þegar
hafist handa við það verk,“ segir
Ingvar P. Guðbjörnsson, formaður
stjórnar Rangárbakka. Í gær var
gengið formlega frá samningi við
stjórn Landssambands hesta-
mannafélaga um að landsmót verði
haldið á Gaddstaðaflötum við Hellu
á árinu 2014.
„Við erum ánægðir með að þetta
skuli vera komið. Hingað til hafa
stærstu mótin verið haldin á Hellu
og hér ættu að vera mestu mögu-
leikarnir til að rétta fjárhag móts-
svæðisins og ekki síður landsmóts-
ins,“ segir Haraldur Þórarinsson,
formaður LH. Hann vísar til þess að
skuldir hvíla á fasteignum á móts-
svæðinu og Landsmót ehf. er skuld-
ugt eftir að fresta þurfti lands-
mótinu í Skagafirði 2010 um eitt ár.
Landsmót á Hellu hefur mikla þýð-
ingu fyrir sveitarfélagið og þá sem
stunda ferðaþjónustu og veita aðra
þjónustu um allt Suðurland, að
sögn Guðfinnu Þorvaldsdóttur,
oddvita hreppsnefndar Rangár-
þings ytra. helgi@mbl.is
Á Gaddstaðaflötum Fulltrúar Rangárbakka, Landsmóts, sveitarfélaga og
hestamannafélaga komu saman á mótssvæðinu á Hellu í gær.
Tilhlökkun að
hefja undirbúning