Morgunblaðið - 02.06.2012, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 2012
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
Ruslahaugur hefur myndast í miðju
Norðlingaholtinu íbúum til mikillar
óánægju. Svo virðist sem óprúttnir
aðilar hafi losað heilu bílfarmana af
úrgangi á fjölförnum stað í hverfinu
og sjónmengunin því mikil.
Algengt er að börnin í hverfinu
líti á sorphauginn sem leikvöll og
slysahættan af naglaspýtum og
brotajárni því nokkur. Svo virðist
sem um sé að ræða úrgang eftir
byggingarverktaka sem hafa ekki
séð sóma sinn í að fjarlægja óþurft-
arefni að verkefni loknu. Haug-
urinn hefur því verið á sínum stað í
þó nokkurn tíma og við hann hefur
bæst almennt sorp á borð við
þvottavélar og bensínbrúsa.
Dæmi eru um slíka hauga á fleiri
stöðum á höfuðborgarsvæðinu og
má þar nefna einn slíkan sem
myndaðist í Hafnarfirði ekki alls
fyrir löngu.
Hrólfur Jónsson, sviðsstjóri
framkvæmda- og eignasviðs
Reykjavíkurborgar, heldur því þó
fram að ekki sé algengt að slíkir
haugar myndist í úthverfum. Að-
spurður út í haugana í Norðlinga-
holti og Hafnarfirði segir hann að
vissulega séu undantekningar á
öllu. Það hafi m.a. þurft að loka
nokkrum vegum sem lágu að vin-
sælum en ólöglegum sorphaugum.
Hann segir jafnframt að eitthvað
hafi verið um það í hruninu að
verktakar færu á hausinn og skildu
eftir byggingarefni. Þó er ávallt
hægt að finna ábyrgðarmenn í slík-
um tilfellum og þá er það á ábyrgð
þeirra sem tóku yfir lóðina. „Ef úr-
gangurinn er á borgarlóð ber borg-
in ábyrgð á því að fjarlægja hann
en ef hann er á einkalóð ber að
hafa samband við byggingarfulltrúa
skipulags- og byggingarsviðs
Reykjavíkurborgar. Ef um borg-
arlóð er að ræða er auðveldast að
tilkynna þessa hluti inni á ábend-
ingarvefnum Borgarlandinu. Hægt
er að átta sig á því hvort um borg-
arlóð sé að ræða inni á borgar-
vefsjá, þetta er allt á netinu í raun-
inni.“ Þess má geta að nálgast má
vefina tvo á heimasíðu Reykjavík-
urborgar. „Ef þú hefur ekki net
geturðu alltaf hringt í þjónustuver
borgarinnar og þau finna út úr
þessu öllu fyrir þig,“ segir hann. Að
sögn Hrólfs á ekki að líða langur
tími á milli þess sem tilkynnt er um
illa hirt svæði á borgarlóð og þar til
aðhafst er í málinu. „Auðvitað getur
vel verið að það gerist en það á
ekki að gerast,
það er ekki
meiningin. Ef
þú tilkynnir eitt-
hvað þá á að bregðast við
því.“
Morgunblaðið/RAX
Slysagildra Einar Ingi Hjálmtýsson, ósáttur íbúi hverfisins, við haug sem bæði er sjónmengun og slysagildra.
Sorp í miðju úthverfi
Ruslahaugur hefur myndast í miðju Norðlingaholti
Íbúar í hverfinu eru orðnir langþreyttir á ástandinu
Morgunblaðið/RAX
Sorp Byggingarefni ásamt öðrum úrgangi hefur verið dreift um svæðið.
Svo virðist sem almenn sátt ríki um
það fyrirkomulag að fella sjómanna-
daginn inn í Hátíð hafsins í Reykjavík
en hvorki markaðsstjóri Faxaflóa-
hafna, sem standa að hátíðinni í sam-
starfi við Sjómannadagsráð Reykja-
víkur, né formaður Sjómanna-
sambands Íslands, hafa orðið varir
við óánægju vegna þess.
Sigmar Þór Sveinbjörnsson, fyrr-
um stýrimaður, gerði fyrirkomulagið
að umfjöllunarefni í grein í Morgun-
blaðinu á fimmtudag, þar sem hann
spurði m.a. hvort mönnum þætti við-
eigandi að minnast sjómanna sem
farist hafa á hafi úti á degi sem kall-
aður væri Hátíð hafsins.
„Nei, ég hef ekki heyrt neinar
óánægjuraddir með þetta,“ segir
Sævar Gunnarsson, formaður SSÍ, og
bendir á að dagurinn hafi víðar verið
felldur inn í stærri hátíðarhöld. Hann
segist þó að vissu leyti skilja sjón-
armið Sigmars. „Ég get svolítið tekið
undir þetta persónulega, sem gamall
refur, að jú, ef þetta myndi þróast
þannig að það gleymdist að þetta
væri sjómannadagurinn þá væri það
neikvætt,“ segir hann.
Sjómannadagurinn er haldinn há-
tíðlegur víða um land en undir yfir-
skriftinni Hafnardagar í Þorlákshöfn
og Sjóarinn síkáti í Grindavík, svo
dæmi séu tekin. Í Reykjavík var dag-
urinn sameinaður Hafnardegi árið
1999 undir nafninu Hátíð hafsins.
„Hér er sjómannadagurinn haldinn
hátíðlegur og sama dagskráin og
var,“ segir Ágúst Ágústsson, mark-
aðsstjóri Faxaflóahafna, sem segir
hátíðina bara stærri og meiri fyrir
vikið. holmfridur@mbl.is
Sjómenn virðast
sáttir með sitt
Engin óánægja með Hátíð hafsins
Morgunblaðið/Golli
Forvitnilegt Börnin virða fyrir sér
skringilega hafbúa á Hátíð hafsins.
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
„Þetta eru náttúrlega skiljanleg viðbrögð. Það
hafa verið úttektir. Sumir hafa tekið út það sem
þeir eiga en oft á tíðum hafa þeir ekki lokað reikn-
ingum. Þessar fjárhæðir eru ekki háar,“ segir
Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, um
óánægju viðskiptavina bankans á þeim sjö stöðum
þar sem bankinn lokaði útibúum í gær. Útibúið á
Fáskrúðsfirði lenti til að mynda í sjóðsþurrð á
fimmtudag þegar fólk tók innistæður sínar út þar.
Á heimasíðu Landsbankans
má finna skýrslu um sam-
félagslega ábyrgð bankans
sem segist meðal annars vilja
verða „leiðandi í því að koma
atvinnulífinu af stað á ný“.
Sú stefna að halda úti stöðv-
um og atvinnustarfsemi sem
borgar sig ekki leiðir til þess
að fyrirtækið koðni niður og
deyi segir Steinþór spurður um hvort lokun útibú-
anna samræmist samfélagslegri ábyrgð bankans.
„Stærsta samfélagslega ábyrgðin sem Lands-
bankinn hefur er að reka bankann vel. Ábyrgðin
felst í því að veita þjónustu til at-
vinnulífs og heimilanna og byggja
upp öflugt atvinnulíf,“ segir hann.
Hluti af starfsfólkinu í útibúun-
um flyst í útibúin á Ísafirði, Snæ-
fellsbæ og Reyðarfirði en ein-
hverjir höfðu þegar sagt upp eða
hætta vegna aldurs. Alls var sjö
manns sagt upp í útibúunum sjö
en í nokkuð færri stöðugildum.
Óánægja viðskiptavina skiljanleg
Bankastjóri Landsbankans segir úttektir úr útibúunum úti á landi ekki háar
Sjö manns sagt upp í sjö útibúum á Vestfjörðum, Snæfellsnesi og Austfjörðum
Steinþór Pálsson
Fyrir um ári greindi Morgun-
blaðið frá sorpi í hrauninu sunn-
an Hafnafjarðar og stóð þá
Reynir Ingibjartsson fyrir til-
tekt. Aðspurður segir hann
ástandið í dag slæmt og að enn
sé verið að henda sorpi í hraun-
ið. „Þetta er nánast verkefnið
endalausa. Þarna eru stærðar
gjótur og glufur fullar af drasli
þannig að það er gríðarlegt
verkefni að hreinsa
þetta svæði.“
Reynir segir að
svipað átak verði
næsta haust og
hvetur fólk til að
taka þátt í því.
Lítið breyst
HAUGUR Í HAFNARFIRÐI
Reynir Ingibjartsson
Áfram verða hraðbankar frá
Landsbankanum á Grundarfirði,
Eskifirði og Fáskrúðsfirði þar
sem bankinn lokaði úti-
búum í gær. Skv. upplýs-
ingum Landsbankans
stendur ekki til að breyta
því.
Þá verða þjónustu-
heimsóknir farnar einu
sinni í viku á þá staði þar
sem útibúum var lokað.
Hraðbankar
um kyrrt
LANDSBANKINN