Morgunblaðið - 02.06.2012, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 2012
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Þ
að sem er mest heillandi
við þessi bréf er hin
barnslega einlægni sem
þau geyma. Eitt barnið
er til dæmis að minna
jólasveininn á að hann megi ekki
gleyma að nú eigi það heima annars-
staðar en síðast, því það sé búið að
flytja. Sama barn segir að kaka muni
bíða sveinka þegar hann komi,“ segir
Gísli Harðarson safnari en hann á í
fórum sínum um sjötíu bréf sem eru
nokkuð sérstök. Bréf þessi bárust til
Íslands frá börnum um víða veröld,
en bréfin skrifuðu börnin til jóla-
sveinsins sem þau efuðust ekki um
að ætti heima hér í norðrinu. Þetta
einstaka safn bréfa verður sýnt á
sýningu Landssambands íslenskra
frímerkjasafnara nú um helgina.
Öll börnin fengu þakkarkort
frá jólasveininum
„Ég eignaðist þessi bréf nýlega
þegar ég keypti hluta úr safni sem
var til sölu. Þessi bréf eru frá ár-
unum rétt fyrir og rétt eftir 1980 og
mörg umslögin eru ekki með neinu
frímerki. Því virðist sem börnin hafi
sett bréfin beint út í póstkassa eftir
að þau skrifuðu þau. Sum börnin
hafa einfaldlega teiknað frímerkin en
önnur hafa sett límmiða. En þrátt
fyrir að mörg bréfin séu ófrímerkt
kom það ekki í veg fyrir að bréfin
bárust á áfangastað, enda engin
ástæða til að stöðva jafn þýðing-
armikinn póst og bréf frá barni til
jólasveinsins. Öll börnin sem skrif-
uðu jólasveininum fengu þakkarkort
áritað af honum, fyrir milligöngu
Ferðaskrifstofu ríkisins,“ segir Gísli
sem er mikill safnari. Hann safnar
meðal annars öllu sem viðkemur
Borgarfjarðar- og Mýrasýslu, póst-
kortum, bréfum, stimplum og fleiru.
Faðir jólanna á níunda skýi
Áritanir á bréfunum eru sumar
hverjar hefðbundnar á borð við „Mr.
Santa Claus, North Pole Ice Land“
(Herra jólasveinn, Norðurpólnum
Íslandi), eða „Father Christmas
Reykjavík Iceland“ (Faðir jólanna
Reykjavík Íslandi). En önnur eru
„Vertu svo vænn að
sanna að þú sért til“
Úti í hinum stóra heimi eru mörg börn sannfærð um að jólasveinninn eigi heima
á Íslandi. Nú um helgina verða dregin fram bréf til jólasveinsins á sýningu
Landssambands íslenskra frímerkjasafnara, en bréfin bárust hingað á áttunda
og níunda áratugnum frá börnum hvaðanæva úr veröldinni. Eru mörg þeirra af-
ar skemmtileg aflestrar og ekki er utanáskriftin síður athygliverð.
Aðalsnjóhúsið Berist til jólasveinsins í Snjóhúsi númer eitt.
Vefsíðan makoodle.com er skemmti-
leg og fjölbreytt lífsstílssíða sem
ætlað er að veita innblástur, fræða
og skemmta. Hér er að finna snið-
ugar hugmyndir að litlum gjöfum
sem er tilvalið að taka með sér í
matarboð eða annan hitting. Á síð-
unni eru líka girnilegar uppskriftir
að sætindum. Þeirra á meðal má
nefna rice crispies- og karamellu-
kökubita sem flestir fá örugglega
vatn í munninn við að sjá, en þar er
blandað saman sykurpúðum, rice
crispies, súkkulaði og fleira. Þá má
ekki gleyma að nefna skreytinga-
hluta síðunnar en þar er að finna
hugmyndir að borðskreytingum.
Nokkuð sem kemur sér vel fyrir
veisluna eða þegar þú vilt gera mat-
arboðið dálítið sérstakara. Flott vef-
síða fyrir fagurkera og sælkera sem
vert er að kíkja á til að auka hug-
myndaflugið.
Vefsíðan www.makoodle.com
Girnilegt Fæstir myndu fúlsa við góðum rice crispies-kökum sem þessum.
Innblástur og skemmtun
Drengjakór Reykjavíkur heldur sína
árlegu vortónleika í dag, laugardag
2. júní, í Hallgrímskirkju. Í kórnum
eru 34 drengir á aldrinum 8-15 ára
en stjórnandi kórsins er Friðrik S.
Kristinsson sem einnig stjórnar
Karlakór Reykjavíkur, meðleikari er
Lenka Mátéová. Efnisskrá tón-
leikanna á laugardag er fjölbreytt,
íslensk lög meðal annars eftir Sig-
valda Kaldalóns, Þorkel Sigurbjörns-
son og Jónas Helgason og erlend
lög eftir Fauré, Händel og fleiri en
þessa dagskrá mun Drengjakórinn
flytja í tónleikaferð sinni til London.
Kórinn hefur undirbúið ferðina nú á
vorönn en þar munu drengirnir
meðal annars syngja í Southwalk-
dómkirkjunni undir nývígðum
glugga Leifs Breiðfjörð. Þá hlotnast
kórnum sá heiður að syngja í dóm-
kirkju Kantaraborgar.
Tónleikarnir hefjast kl. 16 og að
þeim loknum verður boðið upp á
kaffi og meðlæti. Miðaverð er 2500
kr. en kaffiveitingar eru innifaldar í
miðaverði. Börn 12 ára og yngri fá
frían aðgang.
Endilega…
…hlýðið á drengjakór syngja
Drengjakór Reykjavíkur Flytur fjölbreytta efnisskrá á tónleikunum.
Lónkot – sveitasetur býður gestum
og gangandi í opið hús í dag, laug-
ardag 2. júní, milli kl. 14 og 16. Með
því verður fagnað nýju og endur-
bættu veitinga- og gistihúsi stað-
arins.
Lónkot er þekkt fyrir hugmynda-
fræði, menningu og krásir úr
Matarkistu Skagafjarðar en í Lón-
koti er rekið eitt þekktasta sæl-
keraeldhús landsbyggðarinnar sem
leggur áherslu á skapandi hönnun
matar úr blómum, berjum og jurt-
um ásamt ferskmeti úr sjó og landi.
Opið hús í Lónkoti
Sælkeraeldhús og
förumaður á sveitasetri
Fjóluís Úr sælkeraeldhúsinu þar sem notuð eru blóm, jurtir og ber.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Gallerí Fold í 20 ár 1992–2012
mánudaginn 4. júní, kl. 18
í Gallerí Fold, á Rauðarárstíg
Karólína
Lárusdóttir
Karólína
Lárusdóttir
Á uppboðinu verður gott úrval verka samtímalistamanna svo og
fjöldi frábærra verka gömlu meistaranna.
Verkin verða sýnd laugardag kl. 11–17,
sunnudag kl. 12–17, mánudag kl. 10–17
Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is
Listmunauppboð
í Gallerí Fold
Áminning Ég er fimm ára og með köku handa þér, segir sá sem minnir jóla-
sveininn á nýja húsið og biður um Action Man með arnaraugum.