Morgunblaðið - 02.06.2012, Qupperneq 22
ÚR BÆJARLÍFINU
Svanhildur Eiríksdóttir
Reykjanesbær
Hönnuðir og frumkvöðlar á Suður-
nesjum sýndu vörur sínar og starf-
semi á Heklugosi sem haldið var í
þróunarsetrinu Eldey á Ásbrú sl.
fimmtudagskvöld. Þar kom berlega
í ljóst að það er mikil gerjun í gangi
í hönnun og handverki og mikill
dugur í fólki.
Hátt í 40 tóku þátt í Heklugosi,
þar af hafa 18 sprotafyrirtæki að-
setur í Eldey með 30 starfsmenn.
Að Heklugosi stóðu Atvinnuþróun-
arfélagið Heklan, Menningarráð
Suðurnesja og SKASS, Samtök
kraftmikilla alvöru skapandi Suður-
nesjakvenna.
Menningarráð Suðurnesja af-
henti á Heklugosi 37 styrki til
menningarverkefna á svæðinu, sam-
tals 32,7 milljónir króna. Það er
ljóst að ekki skorti íbúa svæðisins
hugmyndir og mörg skemmtileg
verkefni eru í gangi; tónlist, forn-
leifar, kvikmynd, menningararfur
og sagnaslóðir.
Keflavík Music Festival 2012 er
heiti á tónlistarhátíð sem haldin
verður í bænum dagana 7.-10. júní
nk. Ég heyrði það í Vestmanna-
eyjum, þar sem ég dvaldi um hvíta-
sunnuhelgina, að unga fólkið þar
væri spennt, ekki síður en ungt fólk
hér í bæ og nærsveitum.
Yfir 100 tónlistarmenn koma
fram á tónlistarhátíðinni, sem fram
fer á helstu skemmtistöðum bæjar-
ins. Þar mun áhugasömum gefast
kostur á að berja sveitina Of Mon-
sters and Men augum eftir tónleika-
ferðir erlendis sem og aðrar gæða-
sveitir á borð Hjálma, Klassart og
Valdimar.
Hvað ætlar þú að gera í sum-
ar? Þannig er spurt á forsíðu raf-
ræns bæklings sem Reykjanesbær
gefur út á hverju ári með nám-
skeiðum og afþreyingu fyrir börn
og unglinga. Bæklingurinn einfaldar
foreldrum og forráðamönnum vinn-
una við að finna skemmtilegar leiðir
til að efla og styrkja unga fólkið og
fá upplýsingar um hvert á að snúa
sér. Það er margt í boði í ár og allir
ættu að geta fundið eitthvað við sitt
hæfi.
Nýjar sýningar hafa verið sett-
ar upp í Víkingaheimum. Nú eru
alls fimm sýningar í gangi inni í
húsinu. Utan við Víkingaheima er
landnámsdýragarður sem rekinn er
yfir sumarmánuðina og gefur börn-
um kost á að njóta meiri návista við
dýrin. Þá er verið að leggja loka-
hönd á sérstakt leiksvæði þar sem
hægt verður að spreyta sig á leikj-
um og íþróttum víkinga.
Keflavík Music Festival
Morgunblaðið/Svanhildur Eirík
Gaman Börnin fengu að halda á nýfæddu lambi í landnámsdýragarðinum.
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 2012
Hundasýning Hundaræktarfélags
Íslands verður haldin á Korputorgi
helgina 2.-3. júní.
Nýja sýningarsvæðið er allt opið,
sölu- og kynningarbásar eru inni á
sjálfu sýningarsvæðinu ásamt sýn-
endum og áhorfendum. Áhorf-
endum er leyfilegt að koma með sína
eigin stóla og sitja við sýningar-
hringi. Gestum gefst kostur á að
kynnast hundum og ræða við hunda-
eigendur og sýnendur auk þess sem
á staðnum er fjöldinn allur af sölu-
og kynningarbásum þar sem ýmis
tilboð verða í gangi, segir í frétt frá
félaginu.
Alls verða sýndir 689 hreinrækt-
aðir hundar af 75 hundategundum
og hefjast dómar kl. 9:00 árdegis
báða daga og standa fram eftir degi.
Fimm dómarar frá fjórum lönd-
um, Bretlandi, Belgíu, Danmörku og
Írlandi, dæma í fimm sýningar-
hringjum samtímis.
Megintilgangur hundasýninga er
að meta hundana út frá ræktunar-
markmiði hvers kyns og leiðbeina
ræktendum þannig í starfi sínu.
Öflugt barna- og unglingastarf er
starfrækt innan félagsins og að
þessu sinni taka 27 ungmenni þátt í
keppni ungra sýnenda, laugar-
daginn 2. júní kl. 13:00.
Úrslit báða dagana hefjast um kl.
14:00 og þá kemur í ljós hvaða
hundar bera af að mati dómara.
Hundasýning á Korputorgi um helgina
Sá besti Það ríkir ætíð spenna þegar valið
á besta hundi sýningarinnar er tilkynnt.
Hinn árlegi Grafarvogsdagur verður hald-
inn hátíðlegur í dag, laugardaginn 2. júní.
Hann hefur verið haldinn hátíðlegur ár-
lega síðan 1998 og hefur frá upphafi verið
ætlað að sameina íbúa hverfisins og skapa
þeim tækifæri til að hittast, skemmta sér
og öðrum og koma því mikla og merkilega
menningarstarfi á framfæri sem fram fer í
hverfinu. Dagskráin hefst klukkan níu með
pottakaffi í Grafarvogslaug. Sundlaug
Grafarvogs býður gestum að gæða sér á
ilmandi morgunkaffi í pottunum. Klukkan 11:00-12:30 verður söguganga.
Sævar Sigurðsson leiðir gesti um sögu Áburðarverksmiðjunnar og svæði
hennar. Síðan rekur hver dagskrárliðurinn annan. Klukkan 13:00-16:00
verða hátíðarhöld á útivistarsvæði Gufunesbæjar. Þar verður dagskrá í tali
og tónum og boðið upp á margvísleg leiktæki fyrir börnin.
Grafarvogsdagurinn haldinn hátíðlegur
Sunnudaginn 3. júní munu íbúar við
Borgarstíg bjóða gestum og gang-
andi á flóamarkað og götuhátíð.
Borgarstígur er göngustígur sem
liggur á milli Seljavegs, Fram-
nesvegs og Holtsgötu í gamla Vest-
urbænum. Hann er einnig þekktur
sem Millistígur.
Á dagskrá verður meðal annars
kennsla í nytsamlegri endur-
vinnslu, tónlistaratriði, götulist,
sneisafullur markaður af fötum,
bókum, plötum, geisladiskum og
allskyns geymsludóti.
Allir eru velkomnir, Reykjavík-
urbúar sem og aðrir nær- og fjær-
sveitungar, segir í tilkynningu frá
aðstandandendum markaðarins.
Þeir búast við mikilli aðsókn enda
veðurspáin einkar góð.
Götuhátíð og flóa-
markaður við Borgar
stíg á morgun
Sumaráætlun Strætó tekur gildi sunnudaginn
3. júní, heldur seinna en áður, og akstur sam-
kvæmt vetraráætlun hefst sömuleiðis nokkru
fyrr en venja er, eða 12. ágúst. Er þetta gert til
að bregðast við eftirspurn og bæta þjónustu við
farþega, segir í frétt frá Stætó.
Helstu breytingar verða þær að leiðir 1 og 3
munu aka á 15 mínútna tíðni á annatíma í sumar og akstur leiðar 6 breytist
ekki frá því sem nú. Einnig verða tímatöflur lagfærðar á nokkrum leiðum
(1, 3, 11, 12, 15 og 18) til að tryggja að áætlun haldist. Þá verður leið 18
breytt þannig að hún tengir Mosfellsbæ og Grafarvog saman. Ekið verður
frá Korputorgi að Víkurvegi, framhjá Egilshöll og þaðan í Staðarhverfi að
Vesturlandsvegi og beint í Háholt. Sama leið er ekin frá Háholti að Korpu-
torgi. Nánar á www.straeto.is.
Sumaráætlun Strætó tekur gildi
Varmárskóli í Mosfellsbæ fagnar 50
ára afmæli sínu í dag, laugardaginn
2. júní. Skólinn opnar dyr sínar
klukkan 11 og margvísleg dagskrá
verður til kl. 17. Nefna má sýningar
á myndum og gömlum munum og
lokaverkefni nemenda verða sýnd.
Þá verður boðið upp á tónlist og
leiklist. Sjálf afmælishátíðin hefst
kl. 13.30. Allir bæjarbúar eru hvatt-
ir til að fagna skólanum á þessum
tímamótum, segir í tilkynningu.
Fimmtugur skóli
Fossvogsskóli varð 40 ára 9. október
2011. Af því tilefni verður opið hús
laugardaginn 2. júní nk. kl. 10:00 til
14:00. Þemavika var í skólanum 21.
til 25. maí þar sem unnið var með
áratugina frá 1971 til 2011. Afrakst-
ur þeirrar vinnu og önnur verk nem-
enda verða þá til sýnis. Einnig verð-
ur vorhátíð foreldrafélagsins og
Grænfáninn verður afhentur. Borg-
arstjórinn, Jón Gnarr, fyrrverandi
nemandi skólans, kemur í heimsókn.
Foreldrar, gamlir nemendur og aðr-
ir velunnarar skólans eru hjartan-
lega velkomnir.
Fertugur skóli
STUTT
Sumargötur borgarinnar vöknuðu
úr vetrardvala í gærmorgun þegar
Pósthússtræti var lokað fyrir bíla-
umferð.
Með þessu verður umhverfi
Kvosarinnar að stórum hluta til-
einkað gangandi vegfarendum,
mannlífi, verslun og menningu til
3. september næstkomandi. Gatan
verður opin fyrir akstur með að-
föng á milli kl. 08.00 og 11.00 frá
mánudegi til föstudags.
Bifreiðastöður í Pósthússtræti
sunnan Hafnarstrætis verða
óheimilar á meðan gatan er
göngugata. Á heimasíðunni
www.borghildur.info er hægt að
kynna sér myndbönd og úttekt á
mannlífinu í miðborginni síðast-
liðið sumar.
Pósthússtræti lokað fyrir bílaumferð til hausts
SÍÐUMÚLI 31 | 108 REYKJAVÍK | SÍMI 414 8400 / 414 8409 | HEXA.IS | HEXA@HEXA.IS
SÉRHÆFT FYRIRTÆKI
Í STARFSMANNAFATNAÐI
ERUM FLUTT
AÐ SÍÐUMÚLA 31.