Morgunblaðið - 02.06.2012, Síða 37

Morgunblaðið - 02.06.2012, Síða 37
FRÉTTIR 37Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 2012 Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Stjórnendur Kauphallarinnar vinna að því að bæta menninguna í kringum markaðinn. Það er tvennt sem þeir vilja leggja aukna áherslu á: Að hlutabréfamarkaðurinn sé leið fyrir fyrirtæki – líka minni fyrirtæki – til að sækja fjármagn og að fjárfestar horfi til langs tíma. „Ef fjárfestar horfa til langs tíma munu fyrirtækin í auknum mæli miða sinn rekstur til langs tíma líka,“ segir Páll Harðarson, for- stjóri Kauphallarinnar Nasdaq OMX, í samtali við Morgunblaðið. „Við viljum skapa heilbrigða og raunsæja menningu á markaðn- um.“ Til að vinna að bættri menningu hefur Kauphöllin bætt upplýsinga- gjöf til muna; opnað nýja heima- síðu, Facebook-síðu og blogg. Páli þykir mikilvægt að Kauphöllin reki lifandi upplýsingatorg til að auka fræðsluna um markaðinn og bæta menninguna. Páll segir að menn hafi misst sjónar af grundvallarhlutverki Kauphallarinnar, sem er að hún sé vettvangur til að sækja fjármagn. Það má annars vegar nýta Kaup- höllina til að auka eigið fé með hlutafjáraukningu eða skuldabréfa- útgáfu. Hann fagnar því að fast- eignafélagið Reitir hyggist sækja fé með skráningu á markað. Stjórnendur minni fyrirtækja hugsi til að mynda sjaldan til Kauphallarinnar þegar leitað er eftir fjármagni. Hann vill bæta úr því og segir að fyrir lítil fyrir- tæki sem hafi áhuga á að vaxa geti þetta skipt verulega máli. Hann segir að stórfyrirtækin Marel og Össur hafi verið lítil þegar þau voru skráð á markað. Össur var t.d. með 50 starfsmenn og 600 milljóna króna veltu á verðlagi dagsins í dag. Páll nefnir að Kauphöllin hér sé ung að árum og því sé mikilvægt að efla fræðsluna. „Hlutirnir hafa gerst hratt en það er ekkert víst að menningin fylgi með,“ segir Páll. Fá fyrirtæki eru á markaðnum núna. En fjögur fyrirtæki stefna að skráningu á næstunni: Fasteigna- félögin Reginn og Reitir ásamt Eimskipi og Vodafone. Páll segir að Advania, N1 og Sjóva hafi lýst yfir áhuga á skráningu, og að rætt hafi verið um möguleika á að skrá Landsbankann á markað. Kauphöll- in hefur auk þess rætt við fyrirtæki sem Páll getur ekki nafngreint á þessu stigi. „Það eru kannski 10-12 fyrirtæki sem eru að íhuga mjög sterklega að koma inn á markað á þessu ári eða næsta. Og svo eru miklu fleiri að velta þessum mögu- leika fyrir sér. En í þessari upp- talningu sakna ég smærri fyrir- tækja.“ Bætt menning í Kauphöll Páll Harðarson  Menningin þarf að halda í við hraðann Atvinnuleysi á evrusvæðinu er það mesta síðan mælingar hófust árið 1995. Það mældist 11% í apríl en er óbreytt frá mánuðinum á und- an. Mesta atvinnuleysið er á Spáni eða 24,3% en minnst er það í Austurríki eða 3,9%. Á evrusvæðinu eru 17,4 millj- ónir manna atvinnulausar, að því er segir í frétt BCC. Þetta mikla atvinnuleysi sýnir að evrusvæðið þarf á því að halda að Seðlabankinn sýni meiri lausa- tök í stefnu sinni og að rík- isstjórnir fari ekki jafn bratt í nið- urskurð, að sögn Martins Van Vliets, hagfræðings hjá ING. „Kreppan á vinnumarkaðnum heldur áfram að dýpka og aukast,“ segir hann. Atvinnuleysið í Frakklandi jókst í 10,2% úr 10,1% milli mánaða. Aftur á móti minnkaði atvinnu- leysið í Þýskalandi, lækkaði í 5,4% apríl úr 5,5% í mars. helgivifill@mbl.is Atvinnuleysi í methæðum á evrusvæðinu AFP Vonleysi Atvinnuleysi tekur á. Mótorhjól til sölu Glæsilegt Thriump Thruxton mótorhjól til sölu. Árgerð 2008, aðeins ekið 740 km, verð 1890 þús fer á 1600 þús staðgreitt. Upplýsingar í síma 8994888. Landey ehf. er dótturfélag Arion banka og fer með eignarhald bankans á nýbyggingum og fasteignaþróunarverkefnum. Hátúni 2b | 105 Reykjavík | Sími 594 4200 | Fax 594 4201 | www.landey.is Mánatún og Lýsisreitur G R AN D AVEG U R EIÐ ISG RA ND I H R IN G B R A U T FR AM NE SV EG UR Mánatún Um er að ræða byggingarrétt að þremur byggingum: Mánatún 1, um 23 íbúðir (Hús C). Mánatún 7-17, um 90 íbúðir (Hús A). Sóltún 1-3, um 40 íbúðir (Hús D). Lýsisreitur Um er að ræða byggingarrétt fyrir tvær byggingar: Fjölbýlishús við Eiðisgranda, stærð um 13.250 m², um 100 íbúðir. Hjúkrunarheimili við Grandaveg, stærð um 5.800 m². Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu félagsins að Hátúni 2b í síma 594 4210/660 4210, netfang: landey@landey.is Hús A Hús D Hús C Leiksvæði N Ó A T Ú N SÓLTÚN ÍS LE N SK A /S IA .I S/ L A E 59 93 5 06 /1 2Landey býður til sölu eftirtalin lóðarréttindi:

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.