Morgunblaðið - 02.06.2012, Side 42
42 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 2012
Tilefni þessara
skrifa er að í nóv-
ember næstkomandi
verður Heyrnarhjálp
75 ára en félagið er
félag þeirra sem eru
heyrnaskertir, hafa
misst heyrn að hluta
eða alveg, eða þjást
af eyrnasuði og öðr-
um vandamálum sem
snúa að heyrninni
(heyrnarhjalp.is). Margir fé-
lagsmenn eru aðstandendur
heyrnarskertra eða hafa áhuga á
réttindamálum þeirra. Ég er í
þeim hópi þar sem ég á rúmlega
tvítuga dóttur sem er mikið
heyrnarskert og hefur verið það
frá fyrstu æviárum. Ég hef líka
mikinn áhuga á rittúlkun sem
leið til að miðla efni til heyrn-
arskertra. Rittúlkun er jafnframt
eitt af baráttumálum Heyrn-
arhjálpar sem vill hefja rittúlkun
til sömu virðingar og táknmáls-
túlkun nýtur. Auk þess telur fé-
lagið að rittúlkun og textun nýt-
ist fleirum en táknmálstúlkun.
Staðreyndin er sú að margir eiga
erfitt með að fylgjast með og ná
samhenginu í því sem fer fram í
ljósvakamiðlum. Sem dæmi má
nefna aldraða sem margir heyra
illa talað mál og þann stóra hóp
fólks sem hefur ekki íslensku að
móðurmáli. Rittúlkun og textun
opnar þeim möguleika á að fylgj-
ast með því sem fram fer í sam-
félaginu og dregur úr einangrun.
Rittúlkun er einn þeirra mögu-
leika sem bæta aðgengi til náms.
Rittúlkun fer þannig fram að
nemandanum „fylgir“ rittúlkur
sem situr við hlið hans og skrifar
niður á tölvu allt sem fram fer.
Sá heyrnarskerti þarf þá ekki að
eyða allri orku sinni í það að
reyna að heyra talað mál, heldur
horfir hann einfaldlega á skjáinn
og les það sem þar stendur.
Mikilli heyrnarskerðingu fylgja
oft erfiðleikar við að fara hefð-
bundna leið til menntunar. Í námi
reynir mikið á að hlusta og ná því
sem kennarinn hefur að segja.
Heyrnarskertir hika gjarnan við
að fara í framhaldsnám vegna
þess að þeim gengur illa að með-
taka allt sem fram fer í kennslu-
stofunni.
Kennsla í háskólum fer að
miklu leyti fram í formi fyr-
irlestra. Slíkt kennsluform krefst
þess að nemendur geti heyrt allt
sem kennarinn segir, þannig að
þeir nái samhenginu
og geti tekið niður
helstu punkta úr
námsefni tímans. Auk
þess eru settar fram
spurningar og álita-
mál sem svo leiða af
sér umræður á milli
nemenda og kennara.
Hér er rittúlkurinn
frábært hjálpartæki
sem gerir heyrn-
arskertum nemanda
mögulegt að fylgjast
með því sem fram fer í kennslu-
stundinni.
Dóttir mín hóf nám á hugvís-
indasviði Háskóla Íslands síðast-
liðið haust að loknu stúdents-
prófi. Áður en skólinn byrjaði
hafði hún samband við náms-
ráðgjafa og fór með honum yfir
stöðuna og þann stuðning sem
hún á rétt á sem nemandi með
sérrúrræði. Rittúlkun í hverri
kennslustund gerir henni fært að
fylgjast með því sem fram fer þar
sem hún hefur túlkinn með sér í
alla tíma. Það er vert að geta
þess að nemendur hafa greiðan
aðgang að þeim aðila sem heldur
utan um rittúlkunina og sér jafn-
framt um að allt gangi snurðu-
laust. Ef möguleikinn á rittúlkun
í námi hefði ekki verið til staðar
hefði dóttur minni ekki gefist
sama eða svipað tækifæri til
framhaldsnáms og heyrandi nem-
endur eiga kost á.
Ég vil nota tækifærið og þakka
starfsfólki Háskólans fyrir góða
vinnu í réttindamálum heyrn-
arskertra. Rittúlkun er frábær
leið til að miðla hinu talaða máli
og þetta hefur sannfært mig um
að það er vel hægt að stunda há-
skólanám þrátt fyrir mikla
heyrnarskerðingu. Það þarf ein-
faldlega að setjast niður og finna
lausnir sem henta hverjum og
einum.
Rittúlkun er málið.
Rittúlkun fyrir
háskólanemendur
Eftir Klöru
Matthíasdóttur
Klara Matthíasdóttir
»Rittúlkun er
frábært hjálpartæki
sem gerir heyrnar-
skertum nemanda
mögulegt að fylgjast
með því sem fram fer
í kennslustundum.
Höfundur er móðir, félagi í Heyrn-
arhjálp og áhugamanneskja um rit-
túlkun og aðgengi allra til náms.
Öllu má nú nafn
gefa! Forsetaræði!
Þarna vísar Þóra
Arnórsdóttir forseta-
frambjóðandi til þess
sem hún telur að hafi
orðið þróunin í tíð
Ólafs Ragnars Gríms-
sonar, núverandi for-
seta. Af því að hann
synjaði nýjum lögum
undirskriftar í þrí-
gang. Þannig heitir það í hennar
huga forsetaræði, ef þingið og rík-
isstjórnin hafa ekki sitt fram, þar
sem þau bera ekki gæfu til að eiga
samhljóm með þjóð sinni í stórum
hagsmunamálum hennar. Það er
sem sagt forsetaræði í huga þessa
mótframbjóðanda Ólafs forseta, að
forseti skuli leyfa þjóðinni að taka
af skarið. Og ég sem hélt að ein-
mitt þetta héti lýðræði. En það er
víst ekki sama hvar í flokki fólk
stendur.
Forsetaræði skal nú lýðræðið
heita! Og það í neikvæðri merk-
ingu ef ég skil Þóru rétt. Ólafur
forseti átti líklega ekkert með að
virkja þennan öryggisventil lýð-
ræðisins sem falinn er í 26. grein
stjórnarskrárinnar. Það er nefni-
lega forsetaræði! En ef valið
stendur aðeins milli þingræðis og
forsetaræðis, hvar höfum við þá
þetta blessaða lýðræði, sem alltaf
þykir svo fínt að tala um á tylli-
dögum? Eins og við formlega opn-
un á kosningaskrifstofu? En Þóra
hélt áfram að nudda núverandi
forseta vorum upp úr þessum mis-
gjörðum hans, í opnunarræðu
sinni:
„Forseti sem rekur eigin stjórn-
málastefnu í samkeppni við þjóð-
kjörið þing og ríkisstjórn getur
ekki fyllilega rækt eitt sitt meg-
inhlutverk: að vera sameiningarafl
inn á við. Að vera forseti allrar
þjóðarinnar, ekki bara þeirra sem
deila sýn hans á pólitísk deilu-
mál.“
Aumingja við, sem „deilum sýn
hans á pólitísk deilumál“, sem
óvart vill til að erum meirihluti
þjóðarinnar í Icesave-málunum
(við fengum aldrei úr því skorið
varðandi fjölmiðlalög-
in), við erum sam-
kvæmt þessu ekki
hátt skrifaður hópur í
augum Þóru. Nú veit
ég reyndar ekkert
hvort nýting forsetans
á málskotsrétti sínum
í þessum málum hafi
endilega byggst á
„eigin stjórn-
málastefnu í sam-
keppni við þjóðkjörið
þing og ríkisstjórn“,
því mig minnir endi-
lega að hann hafi fengið í hendur
allstóran bunka af undirskriftum
kjósenda, svo skipti raunar tug-
þúsundum, með óskum um að-
komu almennings í þessum
ákvarðanatökum, í öllum þeim til-
fellum sem hann brást svona við.
Ég kýs nefnilega að halda, alla-
vega þar til Þóra eða fylginautar
hennar færa betri rök fyrir þess-
um staðhæfingum hennar, að
þessar undirskriftir hafi öðru
fremur orðið til þess að forset-
anum varð það á að stofna til
þessa „forsetaræðis“ og leyfa fólk-
inu að vera memm.
Maður veltir fyrir sér hvernig
farið hefði ef Þóra Arnórsdóttir
hefði setið í embættinu, þegar
ríkisstjórnin og þingmeirihluti
hennar sullaði yfir okkur Icesave-
óhroðanum. Það er nefnilega auð-
velt að segja svona eftir á, og það
álengdar, að já ég hefði að sjálf-
sögðu gert þetta svona og svona,
en annað var að standa í sporum
Ólafs forseta á þessum tíma. Og
úr því svo fór sem fór hjá honum,
þá finnst Þóru að við búum við
forsetaræði. Og ætlar þá vænt-
anlega að bæta úr því. En grípum
nú aftur niður í ræðu Þóru:
„Hann á að standa vörð um hið
lýðræðislega ferli, en ekki taka
virkan þátt í baráttunni.“
Það er nefnilega það. Nú stend
ég á gati. Eitthvað virðist Þóra
vilja hampa lýðræði, en hvaða lýð-
ræði ef ekki því sem hún kallar
forsetaræði? Ætli forsetinn teljist
hafa tekið virkan þátt í baráttunni
þegar hann virkjaði þjóðina til
ákvarðanatöku? Ég verð að játa
að ég skil ekki manneskjuna, ef
hún ætlar að standa vörð um lýð-
ræðislegt ferli, en fordæmir þó að
Ólafur forseti skuli hafa leyft sér
slíkt hið sama. Það er engu líkara
en að tilvitnanirnar hér að ofan
komi hver frá sinni manneskjunni,
en ekki einasta er þetta allt frá
Þóru komið heldur einnig í einni
og sömu ræðunni.
Og enn hafði Þóra ekki lokið sér
af með Ólaf, því hún sagði hann
fara með lýðskrum og vísaði þá til
hugrenninga hans um mögulega
utanþingsstjórn á tímum búsá-
haldabyltingarinnar. Nú voru að-
stæður á þeim tíma þannig að
stjórn landsins var í molum og á
Alþingi þótti við hæfi að taka til
umræðu heimildir til vínsölu í
matvöruverslunum, meðan féflett-
ur almenningur með stökkbreytta
skuldabyrði á herðum barði bumb-
ur og potta utan veggja þingsins!
M.ö.o. var Alþingi beinlínis óstarf-
hæft, sem best sást á því að í
framhaldinu tók við minni-
hlutastjórn, því það var eini mögu-
leikinn á þingræðisstjórn á þess-
um tíma. Hvað var því eðlilegra
hjá manni í stöðu Ólafs forseta, en
að hugleiða í það minnsta mögu-
leikann á að koma þyrfti á ut-
anþingsstjórn? Hann var nú ekki
einu sinni fyrstur forseta okkar til
að hugleiða slíkt, því Kristján Eld-
járn gekk því skrefi lengra að
hafa slíka stjórn nánast tilbúna til
að taka við völdum. Í augum Þóru
heitir það lýðskrum, ef Ólafur for-
seti leitar á vit þessa fordæmis.
Alveg eins og það heitir forset-
aræði þegar hann hefur þó aðeins
unnið vinnu sína í samræmi við
stjórnarskrá og vilja meirihluta
þjóðarinnar. Í niðurlagi ræðu
sinnar sagðist Þóra vilja hafna
„gamalsdags, sundrandi átakap-
ólitík og skotgröfum stríðandi
fylkinga“. Svona kaus hún þó að
gefa tóninn í upphafi sinnar kosn-
ingabaráttu.
Eftir Þorkel Á.
Jóhannsson » Forsetaræði
skal nú lýðræðið
heita! Og það í
neikvæðri merkingu.
Þorkell Á. Jóhannsson
Höfundur er flugmaður.
Forsetaræði
OPIÐ HÚS
FROSTAFOLD 6 - LAUS STRAX
Sérlega góð 62,3 fm tveggja herbergja útsýnisíbúð á fjórðu hæð í góðu
lyftuhúsi. Húsvörður er í húsinu. Sérmerkt bílastæði er á bílaplani við
innganginn. Húsið stendur hátt og mikið útsýni er til suðurs yfir Borgina.
Magnús (GSM 841-2345) tekur vel á móti gestum
og sýnir íbúðina í dag milli Kl. 11:00 og 13:00.
Kauptúni og Kringlunni – www.tekk.is
Opið laugardag kl. 10–17 og sunnudag kl. 13–17
20%
AFSLÁTTUR
AF STROKE
LEÐURSÓFUM
OG STÓLUM
Bjóðum
vaxtalausar
afborganir
til 12 mánaða
3ja sæta leðursófi
158.400 kr.
Leðurstóll
78.400 kr.