Morgunblaðið - 02.06.2012, Qupperneq 56
56 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 2012
Brynja Eiríksdóttir verður tvítug í dag og af því tilefni ákvað blaðamaður að taka púlsinn á henni og fræðast um hvaðhún hygðist gera í tilefni dagsins. Brynja fæddist 2. júní
1992 og er uppalin í Reykjavík. Hún stundaði nám við Álftamýrar-
skóla sem barn og stundar nú nám við Fjölbraut í Ármúla.
Brynja er mikil hestamanneskja og hefur gaman af að skella
sér í reiðtúra. Brynja er að vinna fyrir Eldhesta sem reiðkennari
og leiðsögumaður í sumar, en hestar eru hennar helsta áhugamál og
í raun allt sem viðkemur útivist og má því segja að hún hafi dottið í
lukkupottinn að landa því starfi. Brynja hefur einnig mikinn áhuga
á tónlist og öllu sem henni viðkemur og býr yfir þeim sjaldgæfa
hæfileika að geta spilað á ukulele, sem er vel þekkt strengja-
hljóðfæri frá Hawaii. Brynja er mjög spennt fyrir deginum, en hún
ætlar að nýta tækifærið á morgun í góða veðrinu og gera það sem
hún hefur mest yndi af og skella sér í reiðtúr úti á landi í hópi vinnu-
félaga og vina. Morgundagurinn verður því ósköp rólegur, en hún
reiknar svo með því að kíkja út á lífið í höfuðborginni seinna um
kvöldið og fagna stórafmælinu, enda ekki á hverjum degi sem menn
verða tvítugir. Blaðamaður óskar Brynju til hamingju með afmælið
og vonar að henni gangi allt í haginn.
Brynja Eiríksdóttir 20 ára
Hestakona Brynja Eiríksdóttir er reiðkennari og leiðsögumaður,
ásamt því að stunda nám við Fjölbraut í Ármúla.
Hestakona sem
spilar á ukulele
P
áll fæddist í Reykjavík en
ólst upp á Þingeyri. Fað-
ir hans átti bátana Fjölni
og Hilmi sem hann fórst
með 1943. Móðir Páls
gerði þá áfram út bátinn Fjölni til
síldveiða og fiskflutninga þar til hann
fórst 1945.
Þar sem lífið snerist um fisk
Páll fór fyrst til sjós níu ára, er
hann var léttadrengur á Fjölni. Hann
stundaði síðan sjómennsku á ýmsum
bátum og togurum, var einn vetur á
Núpi og lauk skipstjórnarprófi frá
Stýrimannaskólanum 1953. Það ár
keypti hann, ásamt fleirum, 100
tonna bát sem fékk nafnið Fjölnir ÍS
177 og var gerður út frá Þingeyri.
Páll var stýrimaður á m/b Voninni
KE og á m/b Hilmi KE, var skipstjóri
á m/b Nonna og síðan á m/b Bárunni.
Páll keypti m/b Farsæl 1963 og
1964 keypti hann, ásamt fleirum, vél-
bátinn Vísi KE 70 og fiskverk-
Páll H. Pálsson, stjórnarformaður Vísis í Grindavík 80 ára
Börnin og tengdabörn Frá vinstri: Páll Jóhann Pálsson og eiginkona hans, Guðmunda Kristjánsdóttir, hjónin Sól-
veig Pálsdóttir og Sveinn Ari Guðjónsson, afmælisbarnið og Margrét Sighvatsdóttir, kona hans sem lést í febrúar
sl., þá Pétur Hafsteinn Pálsson og eiginkona hans, Ágústa Óskarsdóttir, þá Ágúst Ingólfsson sem er kvæntur Krist-
ínu Pálsdóttur, og loks Svanhvít D. Pálsdóttir og Albert Sigurjónsson. Á myndina vantar Margréti Pálsdóttur, elsta
barn Páls og Margrétar.
Fór fyrst til sjós níu ára
Feðgar Páll H.Pálsson og Pétur Hafsteinn með væna karfa.
Dýrleif Una Ing-
þórsdóttir, Erla
Hlín Guðmunds-
dóttir og Líf
Hlavackova
héldu tombólu á
Eiðistorgi. Þær
söfnuðu 4.859 kr.
sem þær gáfu
Rauða krossi Ís-
lands.
Hlutavelta
Hafnarfjörður Kristófer Leví fæddist
8. apríl kl. 12. Hann vó 3.845 g og var
49 cm langur. Foreldrar hans eru Katr-
ín Ísafold Guðnadóttir og Pétur Pét-
ursson.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Nethyl 3-3a ▪ 110 Reykjavík
Sími 535 3600 ▪ hillur.is
SKOÐIÐ ÚRVALIÐ Á
HILLUR.IS
20
ára
HILLUREKKAR
Í BÍLSKÚRINN, GEYMSLUNA,
HEIMILIÐ OG FYRIRTÆKIÐ
ENGAR SKRÚFUR - SMELLT SAMAN
Kolbrún Krist-
insdóttir til
heimilis í Sand-
gerði verður
sextug á morg-
un, 3. júní. Hún
og eiginmaður
hennar Einar
Sveinsson
verða að heim-
an en verða með opið hús fyrir ætt-
ingja og vini í sumarhúsi nr. 12 í Skóg-
arnesi við Apavatn á afmælisdaginn.
Árnað heilla
60 ára