Morgunblaðið - 02.06.2012, Page 62
62 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 2012
Þegar ég fór á stúfana í efnisleit
fyrir pistil þennan var mér nokkur
vandi á höndum. Nú á mánudag-
inn koma nefnilega út tvær plötur
sem kalla á smá umfjöllun. Mig
rak t.a.m. í rogastans þegar ég sá
að Americana, ný plata með Neil
Young og sveit hans Crazy Horse
kæmi út nú en þessi merku „fyrir-
bæri“ hafa ekki unnið saman síðan
2003 eða þegar Greendale kom út.
En það er kannski merkilegri
frétt, þannig, að Beach Boys eru
sömuleiðis að gefa út nýja hljóð-
versplötu. Kallast hún hinu djúp-
spaka nafni That‘s Why God Made
the Radio og er fyrsta plata þeirr-
ar gerðar í tuttugu ár eða síðan
Summer in Paradise kom út árið
1992. Og miðað við blammeringar
þær sem Mike gamli Love hefur
látið dynja á trufluðum snillingi
sveitarinnar, Brian Wilson, er
ótrúlegt að þetta sé að gerast.
þremur lögum, „From There
and Back Again“, „Pacific Coast
Highway“ og „Summer’s Gone“.
Hið síðasttalda er sögufrægt,
átti á tímabili að vera síðasta
lagið á síðustu plötu Beach Boys
en eins og við könnumst við úr
poppsögunni er aldrei hægt að
segja aldrei. Lagasafnið er eftir
þessu, slatti af eldri lögum þarna
sem eru orðin að hálfgerðum
goðsögum hjá Beach Boys aðdá-
endum.
Johnston segir að áferðarlega
minni platan á Sunflower á með-
an Al Jardine tiltekur sjálfa Pet
Sounds. Eigum við ekki að
spyrja að leikslokum hvað slíkan
samanburð varðar ;o)
Gersemar vestan
Atlantsála
Beach Boys Strandastrákarnir reyna einu sinni sem oftar að fanga síungan anda sumarsins.
Það er hægt að fara í bókmennta-
lega djúpsjávarköfunarleiki með
þessi tvö mál. Njáll hinn síungi leit-
ar aftur í aldirnar eftir innblæstri á
meðan hinir hrumu
Strandadrengir, sem hafa ekki
beint verið þekktir fyrir að vera
leitandi í list sinni undanfarna ára-
tugi eru að myndast við það að vera
ferskir. Sá ferski verður gamall og
hinir gömlu verða ferskir.
Alltént, upplegg Neil Young og
félaga að þessu sinni eru eins og
nafn plötunnar gefur til kynna
aldagömul amerísk þjóðlög. Á með-
al laga sem þar er að finna eru „Oh!
Susanna“, „Gallows Pole“ og „This
Land Is Your Land“. Segir Neil
Young sjálfur: „Þetta eru lög sem
allir þekkja úr leikskóla. En við í
Crazy Horse erum búnir að tálga
þau til þannig að nú eru þau okk-
ar.“ Plötunni var streymt í heild
sinni fyrir tilstilli Rolling Stone í
síðustu viku en það er illínáanlegt
nú. Við bíðum róleg ... eða þannig.
Ernir Strandadrengir
Orðrómur um að Beach Boys ætl-
uðu að koma saman á nýjan leik fór
af stað fyrir tveimur árum. Allt var
á huldu um skeið en í desember síð-
astliðnum var hann svo staðfestur.
Platan nýja helst í hendur við fimm-
tíu ára afmæli sveitarinnar og er
hún 29. hljóðversplata hennar.
Strandadrengirnir eru í dag
þeir Brian Wilson, Mike Love, Al
Jardine, Bruce Johnston og David
Marks en hann sást síðast með
sveitinni í tengslum við Little
Deuce Coupe árið 1963 – fyrir 49
árum!
Þeir frændur, Wilson og Love,
komu meira að segja fram saman í
viðtali í febrúar síðastliðnum og
upplýstu m.a. að platan myndi
enda með svítu sem samanstæði af
» Og miðað við blammeringar þær sem Mikegamli Love hefur látið dynja á trufluðum snill-
ingi sveitarinnar, Brian Wilson, er ótrúlegt að
þetta sé að gerast.
Neil Young og Beach Boys senda
frá sér nýjar plötur á mánudaginn
Amerísk djásn, af ólíku tagi þó
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is
Léttir klassískir vortónar
er yfirskrift tónleika
Kammerhópsins Camer-
arctica og Ingibjargar Guð-
jónsdóttur sönkonu sem
haldnir verða í Hafnarborg,
menningarmiðstöð Hafnar-
fjarðar, annað kvöld kl. 20.
Þetta eru lokatónleikar
menningarhátíðarinnar
Bjartra daga en flutt verð-
ur léttlynd kammertónlist
og klassísk sönglög þar sem saman fer ljóðræna og léttleiki í tónlist eftir
Mozart, Rossini, Spohr, Meyerbeer og Schubert. Camerarctica skipa þau
Ármann Helgason klarínettuleikari, Hallfríður Ólafsdóttir flautuleikari,
Hildigunnur Halldórsdóttir og Bryndís Pálsdóttir fiðluleikarar, Svava
Bernharðsdóttir víóluleikari og Sigurður Halldórsson sellóleikari. Miðar
eru seldir við innganginn.
Camerarctica býður upp á létta,
klassíska vortóna í Hafnarborg
Yndi Sigurður, Hallfríður, Hildigunnur, Ingibjörg,
Svava, Bryndís og Ármann.
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
SNOWWHITEANDTHEHUNTSMAN Sýndkl.2-4-7-10(Power)
MEN IN BLACK 3 3D Sýndkl.2-5-8-10:15
THE FIVE YEAR ENGAGEMENT Sýndkl.5-8-10:25
LORAX 3D ÍSL TAL Sýndkl.2
AFTUR TIL FORTÍÐAR...
TIL AÐ BJARGA FRAMTÍÐINNI
BRÁÐSKEMMTILEG MYND FRÁ
FRAMLEIÐENDA BRIDESMAIDS
-bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
POWE
RSÝN
ING
KL. 10
Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU
EFTIR WES ANDERSON
MORGUNBLAÐIÐFRÉTTABLAÐIÐ
SMÁRABÍÓ
HÁSKÓLABÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.IS
GLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
SNOW WHITE... KL. 3.20 - 5.20 - 8 - 10.40 12
SNOW WHITE...LÚXUS KL. 2 -5.20 -8 -10.40 12
MIB 3 3D KL. 1 (TILB) -3 - 5.30- 8- 10.30 10
MIB 3 2D KL. 3 - 5.30 - 8 - 10.30 10
THE DICTATOR KL. 1 (TILB) -3.10 - 6 - 8 - 10 12
LORAX – ÍSL TAL 3D KL. 1 (TILB) L
LORAX – ÍSL TAL 2D KL. 1 (TILB) L
MOONRISE KINGDOM KL. 5.50 - 8 - 10.10 L
SNOW WHITE AND THE HUNTSMAN KL. 6 - 9 12
MIB 3 3D KL. 3.30 (TILB) -6 -9 10
SALMON FISHING IN THE YEMEN KL. 8 10
GRIMMD:SÖGUR AF EINELTI KL. 3.30 (TILB) -5.45 10
LORAX – ÍSLENSKT TAL 3D KL. 3.30 (TILB) L
LORAX – ÍSLENSKT TAL 2D KL. 3.30 (TILB) L
SVARTUR Á LEIK KL. 10.30 16
SNOW WHITE AND THE... KL. 5.45 - 8 - 10.15 12
MIB 3 3D KL. 3.50 - 8 - 10 10
THE DICTATOR KL. 6 12 THE LORAX KL. 3.50 L