Morgunblaðið - 07.06.2012, Side 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2012
ÚR BÆJARLÍFINU
Skapti Hallgrímsson
Akureyri
Rjúpa hefur gert sig heimakomna
við raðhús við Hamratún í Nausta-
hverfi frá því um síðustu helgi.
Vappar um á stéttinni, flýgur annað
slagið upp á svalir næsta húss en
mætir svo aftur „heim“ fljótlega.
Húsráðandi sagði að fuglinn hefði
eflaust komið inn fyrir hefði hann
ekki lokað útidyrunum.
Fuglinn hlýtur að vera einn
þeirra sem eiga lögheimili í Hrísey.
Þeir eru vanir mannaferðum og vita
auðvitað að enginn hróflar við þeim
innan bæjarmarkanna.
Hólmfríður
Sólveig Haralds-
dóttir hélt veislu
á dögunum í til-
efni þess að hún
varð fimmtug í
apríl og útskrif-
aðist með BA-
próf í ferða-
málafræði frá
Hólaskóla í maí.
Um leið og
Hólmfríður fagnaði safnaði hún fé
til góðgerðarmála.
„Ég á fullt hús af dóti og sá ekki
ástæðu til þess að sanka að mér
meiru. Mig langaði hins vegar
óskaplega mikið að halda veislu og
bað fólk um að leggja fé í söfn-
unarbauk sem var á staðnum, frek-
ar en kaupa handa mér gjöf,“ sagði
Hólmfríður við Morgunblaðið.
Mun meira safnaðist en Hólm-
fríður gerði ráð fyrir. „Ég hélt ég
fengi kannski 30-40 þúsund en þeg-
ar talið var upp úr bauknum voru
þar 145 þúsund krónur,“ segir hún.
Peningana gaf Hólmfríður samtök-
unum SPES, sem byggja og reka
þorp fyrir foreldralaus börn í Tógó.
Njörður P. Njarðvík og Bera kona
hans eru í forsvari fyrir samtökin
hér á landi.
„Það er með vilja að ég gef pen-
ingana ekki til þurfandi hér innan-
lands. Ég veit að þeir eru til, en við
búum samt í góðu landi, höfum að-
gang að hreinu vatni og þokkalegri
heilsugæslu, þótt hún hafi látið á
sjá. Og krakkarnir okkar ekki bara
mega koma í skóla heldur eiga að
gera það. Mér finnst ágætt að setja
það í samhengi við kreppukvabb Ís-
lendinga að þessi upphæð nægir til
fullrar framfærslu fyrir eitt barn á
ári í Tógó og vel það, því hluti fjár-
ins er lagður í framtíðarsjóð, til
menntunar barnsins síðar meir.“
Kaffihúsið í Lystigarðinum,
Café Björk, verður opnað á laugar-
daginn. Af því tilefni er fólki boðið í
kaffi og vöfflur á milli klukkan 10 og
12.
Fyrsta skemmtiferðaskip sum-
arsins kemur til Akureyrar nú í bít-
ið; hið litla, krúttlega Arion, en
strax á laugardag kemur skipið
Ventura sem er gríðarlega stórt.
Klúbbur matreiðslumeistara á
Norðurlandi afhenti nýverið
Krabbameinsfélagi Akureyrar og
nágrennis ágóðann af Mottuboðinu
sem haldið var 29. mars í Hofi. Alls
söfnuðust tæpar 1,4 milljónir króna
og rann sú upphæð óskert til félags-
ins.
Afmælissýningin á Minjasafn-
inu er skemmtileg. Þar er hægt að
skoða fjölda ljósmynda frá gamalli
tíð og einnig nýlegar og gamlar
kvikmyndir. Andi liðanna tíma svíf-
ur yfir staðnum eins og venjulega
en nú eru húsgögn og fleiri munir í
sýningarsalnum frá þeim tíma sem
safnið var opnað fyrir fimmtíu ár-
um.
Í kvöld kl. 20 hefst afmælis-
ganga á Nonnaslóð á vegum Minja-
safnsins. Létt og þægileg ganga þar
sem farið verður yfir lífshlaup
Nonna, eins og Haraldur Þór Eg-
ilsson, sagnfræðingur og safnstjóri,
segir. Hann leiðir gönguna, sem
tekur rúma klukkustund. Lagt af
stað frá Nonnahúsinu.
Málþing um fjölmiðlun á Íslandi
og í Evrópu verður haldið í Háskól-
anum á Akureyri á morgun, 8. júní.
Þetta er einn margra viðburða í til-
efni 25 ár afmælis skólans. Það
hefst kl. 13 og lýkur laust fyrir
klukkan 17. Málþingið er öllum opið
en að því standa háskólinn, fimm
ára útskriftarstúdentar úr fjölmiðla-
fræði við HA og Evrópustofa.
Gylfi Ægisson treður upp á
Græna hattinum í kvöld. Annað
kvöld leika Dúndurfréttir sum stór-
virki rokksögunnar með Deep
Purple, Pink Floyd, Led Zeppelin,
Uriah Heep og fleirum og á laug-
ardag leika ungrokkararnir í Vin-
tage Caravan blúsrokk af gamla
skólanum, í anda Cream, Jimi
Hendrix og fleiri slíkra.
Framfleytir barni í ár fyrir afmælispeninginn
Ljósmynd/Heba Ásgrímsdóttir
Gæf Þessi rjúpa hefur látið fara vel um sig í Naustahverfi síðustu daga.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Skemmtileg sýning Fjöldi gamalla mynda er til sýnis í Minjasafninu í tilefni hálfrar aldar afmælisins. Hægt er að
setjast í sófa frá þeim tíma sem safnið var stofnað, og ýmsir aðrir munir í sýningarsalnum eru frá svipuðum tíma.
Hólmfríður
Sólveig
„Var kannski verið að geyma pening-
inn fyrir veiðigjöld til ríkisstjórn-
arinnar? Ég bara spyr,“ segir Arnar
Hjaltalín, formaður Drífanda stétt-
arfélags í Vestmannaeyjum. Hann
rifjaði upp í ræðu á fjölmennum fundi
landverkafólks og sjómanna í Eyjum
fyrr í vikunni óánægju fiskverkafólks
með kröfugerð ASÍ í síðustu kjara-
samningum. Þar hafi ekki mátt gera
kröfur um meiri launahækkanir til
starfsfólks fyrirtækja í útflutnings-
atvinnugreinum.
„Nokkur félög töldu að það væru
miklu meiri peningar í útflutnings-
greinunum en öðrum atvinnugrein-
um og vildu gera ríkari kröfur um
kjarabætur. Við vildum að hagdeild
ASÍ skoðaði afkomu greinanna en
það fékkst ekki. Við erum svo lítil að
það var valtað yfir okkur. Það var
eins og búið væri að gera sam-
komulag um að ekki mætti sækja
meira,“ segir Arnar í samtali við
Morgunblaðið. Hann bætir því við að
rök ASÍ-forystunnar hafi verið þau
að spyrja hvernig þeir ættu að rétt-
læta það gagnvart öðrum fé-
lagsmönnum að gera meiri launa-
kröfur fyrir fiskvinnslufólk.
Hann segir að mikil óánægja sé
með þessi vinnubrögð meðal fisk-
vinnslufólks um
allt land og bætir
því við að verð-
bólgan að und-
anförnu sé að
hluta til út af því
að farið var of
bratt í launa-
hækkanir í at-
vinnugreinum
sem ekki geta
borið þær og það
bitni á öllum. Arnar nefnir það til við-
bótar að þegar afkoma sjávarútvegs-
ins var sem verst hafi fiskvinnslufólk
sjálft orðið að borga hluta af launa-
hækkunum sínum. Það hafi verið
gert með því að setja hluta af bón-
usgreiðslum í föst laun.
Á fundinum í Eyjum var samþykkt
samhljóða ályktun þar sem sagt er að
auðlindagjald í sjávarútvegi muni
rýra kjör sjómanna og land-
verkafólks. Arnar tekur undir það að
erfiðara verði að sækja kjarabætur,
ef auðlindagjaldið verði lagt á.
„Ég vil að verkalýðshreyfingin átti
sig á því hvaða vitleysu við gerðum
og læri af mistökunum svo þau verði
ekki gerð aftur. Við eigum að sækja
það sem til er,“ segir Arnar.
helgi@mbl.is
Geymt fyrir
veiðigjaldi?
Arnar
Hjaltalín
Fiskvinnslufólk óánægt með ASÍ