Morgunblaðið - 07.06.2012, Side 22
22 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2012
AFP
Ísbjarnarhúnninn Anori stingur sér til sunds í laug í
dýragarði í Wuppertal í Þýskalandi. Anori fæddist 4.
janúar, býr við mikið eftirlæti í garðinum og er orðinn
þekktur víða um heim. Hann er samfeðra Knúti, hvíta-
birni sem drapst í fyrra. Knútur varð heimsfrægur eft-
ir að móðir hans í dýragarði í Berlín hafnaði honum.
Hálfbróðir Knúts baðar sig í frægðinni
Tugir óbreyttra borgara lágu í valn-
um í Afganistan í gær eftir sprengju-
tilræði talibana og loftárás Atlants-
hafsbandalagsins.
Tveir hermenn NATO biðu einnig
bana þegar þyrla hrapaði af
ókunnum ástæðum.
Mannfallið meðal óbreyttra borg-
ara í Afganistan hefur aukist á síð-
ustu fimm árum. Í fyrra biðu 3.020
óbreyttir borgarar bana, þar af
minnst 77% í árásum talibana og
annarra uppreisnarmanna og 14% í
hernaði afganska stjórnarhersins og
erlendra hersveita undir forystu
NATO, að sögn embættismanna
Sameinuðu þjóðanna.
Talibanar lýstu
á hendur sér
tveimur
sprengjutilræð-
um sem kostuðu
minnst 23 menn
lífið í gær. Árás-
irnar voru gerðar
á stæði bíla sem
hafa verið notaðir
til að flytja birgð-
ir í stærstu her-
stöð NATO í sunnanverðu landinu.
„Allir sem létu lífið voru óbreyttir
borgarar – ekki einn einasti þeirra
var hermaður,“ sagði lögreglustjóri
Kandahar-héraðs.
Nokkrum klukkustundum áður
biðu minnst fimmtán óbreyttir borg-
arar bana í loftárás NATO þegar
flugskeyti lenti á íbúðarhúsi. Frétta-
maður AFP kvaðst hafa séð a.m.k.
fimmtán lík sem flutt voru úr húsinu
í Logar-héraði, sunnan við Kabúl. Á
meðal þeirra voru fimm konur og sjö
börn, það yngsta eins árs.
Að sögn afganskra yfirvalda létu
15-18 óbreyttir borgarar lífið í loft-
árásinni. Hún var fyrirskipuð eftir
að uppreisnarmenn réðust á her-
menn sem reyndu að handtaka einn
af forystumönnum talibana, að sögn
alþjóðlega friðargæsluliðsins í
Afganistan, ISAF. bogi@mbl.is
Árásir kostuðu tugi
óbreyttra borgara lífið
Yfir 3.000 borgarar biðu bana í Afganistan í fyrra
Afganistan Banda-
rísk herkona.
Varsjá. AFP. | Það kom pólska hug-
búnaðarsérfræðingnum Tomek
Wawrzyczek þægilega á óvart þegar
hann fékk 50 sentimetra hátt tré í
pósti á dögunum. Hann var fljótur
að gróðursetja það í garðinum sínum
og hefur ekki enn hugmynd um hver
sendi honum það.
Wawrzyczek komst að því að
glaðningurinn kom til vegna gróður-
setningarframtaks sem fólst í því að
61.000 ung tré voru send í pósti án
endurgjalds til fólks úti um allt
Pólland.
Heiðurinn af framtakinu á 36 ára
markaðsstjóri, Jacek Powalka, sem
fékk þá hugmynd að senda hverjum
þeim sem vildi tvö ung tré. Annað
þeirra á viðtakandinn að gróðursetja
sjálfur en senda hitt til einhvers
vinar.
Powalka sagði í samtali við frétta-
mann AFP að markmiðið með fram-
takinu væri að hvetja fólk til að láta
gott af sér leiða, hvort sem það væri
til að bæta umhverfið eða í þágu
annarra þjóðþrifamála.
Bjuggu til almenningsgarð
Fræinu að hugmyndinni var sáð
„fallegan og sólríkan laugardags-
morgun“ árið 2007 þegar Powalka
fór í gróðrarstöð til að kaupa blóm
en kom heim til sín með nokkur af-
brigði af garðahlyni. Í stað þess að
kaupa blóm á svalirnar ákvað hann
að kaupa tré til að fegra hverfið sitt í
Varsjá. Hugmyndin vatt upp á sig og
svo fór að hann breytti ónotuðu
svæði í almenningsgarð. Framtakið
vakti mikla athygli í Póllandi. Íbúar
hverfisins tóku þátt í gróðursetning-
unni og hönnun garðsins sem varð
strax vinsæll samkomustaður.
„Mér fannst það synd að breiða
ekki þetta frábæra fyrirbæri út um
allt Pólland,“ segir Powalka. Hann
ákvað því að senda tré út um allt
land til að hvetja fólk til að taka þátt
í því að fegra umhverfi sitt, í stað
þess að láta aðeins opinberar stofn-
anir um það. Nokkur fyrirtæki
styrktu framtakið, sem kostar sem
svarar 21 milljón króna, þeirra á
meðal póstfyrirtæki sem Powalka
starfar hjá. Pólska ríkisútvarpið tók
þátt í skipulagningunni.
Margir Pólverjar tóku þátt í fram-
takinu, auk skóla, sjúkrahúsa og
sveitarfélaga. Gróðrarstöðvar og
pólskir þjóðgarðar buðust til að gefa
tré sem á að dreifa í næstu umferð
framtaksins. Og margir þátttakend-
anna ætla ekki að láta þar við sitja,
heldur kaupa tré og planta þeim upp
á eigin spýtur.
Fá tré send í
pósti ókeypis
Vel heppnað trjáplöntunarátak
AFP
Framtaksmaður Jacek Powalka í almenningsgarði sem hann bjó til í hverf-
inu sínu í Varsjá ásamt fleiri borgarbúum fyrir nokkrum árum.
Efri deild rússneska þingsins sam-
þykkti í gær umdeilt lagafrumvarp
um að stórhækka sektir fyrir mót-
mæli gegn stjórnvöldum án leyfis.
Nokkrum klukkustundum áður
samþykkti neðri deildin frumvarpið
með 241 atkvæði gegn 147. Vladím-
ír Pútín forseti þarf að undirrita
frumvarpið til að það verði að lög-
um. Skv. frumvarpinu nemur há-
markssektin fyrir að skipuleggja
mótmæli jafnvirði tæpra 4,2 millj-
óna króna og fyrir að taka þátt í
mótmælum andvirði 1,2 millj. kr.
RÚSSLAND
Háar sektir fyrir mótmæli samþykktar
AFP
Harka Mótmælandi handtekinn fyr-
ir utan þinghúsið í Moskvu.
Á síðustu tíu árum hefur dönskum
námsmönnum, sem stunda fram-
haldsnám annars staðar á Norður-
löndum, fækkað um 31%. Hins veg-
ar hefur námsmönnum frá öðrum
Norðurlandaþjóðum fjölgað um
65% í dönskum skólum á sama tíma.
Á skólaárinu 2010/2011 stunduðu
5.569 námsmenn frá öðrum nor-
rænum löndum framhaldsnám í
Danmörku, 2.195 fleiri en á skóla-
árinu 2001/2002. Þetta kom fram í
svari menntamálaráðherra Dan-
merkur við fyrirspurn þingmanns
sem vill að kostnaður Dana af fram-
haldsnámi námsmanna frá norrænu
bræðraþjóðunum verði kannaður.
DANMÖRK
Erlendum nemum
hefur stórfjölgað
Stjúpsonur
þekkts stjórn-
málamanns í
Verkamanna-
flokknum í Nor-
egi hefur verið
dæmdur í fjög-
urra vikna gæslu-
varðhald fyrir að
hóta stjúpföð-
urnum og Jens
Stoltenberg for-
sætisráðherra lífláti. Maðurinn hef-
ur búið í Kína í um ár. Norska ör-
yggislögreglan lýsti eftir honum í
haust vegna gruns um að hann væri
viðriðinn glæpastarfsemi.
NOREGUR
Hótaði forsætisráð-
herranum lífláti
Jens
Stoltenberg
Bæjarlind 16 I 201 Kópavogur I sími 553 7100 I www.linan.is
Supreme Deluxe svefnsófi
Opið mánudaga til föstudaga 12 - 18
Extra þykk og
góð springdýna
Svefnbreidd
140x200
Rúmfatageymsla
í sökkli
kr. 169.800