Morgunblaðið - 07.06.2012, Qupperneq 45
MENNING 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2012
Þessi útgáfa af Mjallhvíti erein sú skemmtilegasta semég hef séð. Handritið fylgiröllum reglum formúlunnar
og brýst ekki svo mikið sem einu
sinni úr þeim föstu skorðum sem
Hollywood hefur sett handritshöf-
undum, þannig að frumleikanum er
ekki fyrir að fara í handritsskrifum.
En það er einhver skemmtilegur
tónn í myndinni. Það er sérstakt að
sjá Mjallhvítarævintýrið aðeins
myrkvað, því það er nettur Tim Bur-
ton í þessari mynd.
Með myndinni er óneitanlega ver-
ið að færa ævintýrið aðeins nær upp-
runa sínum og smáhrolli leyft að
fylgja með. Enda flest þessi ævintýri
í upprunalegri mynd hálfskelfileg
fyrir börn. Einhver krafa í samfélagi
okkar gerði það að verkum að farið
var að útfæra þau á sykursætan hátt
strax á síðustu öld svo litlu krúttlegu
börnin okkar í bómull nútímasam-
félaga færu nú ekki að verða of
hrædd og gætu sleikt sleikjóana sína
og hámað í sig sykurflossið án þess
að svelgjast á.
En ævintýrinu er samt ekki fylgt
nákvæmar en það að þótt flest þekkt
atriði þess séu í myndinni eru þau
sett í allt aðra umgjörð og útfærð
með allt öðrum hætti þannig að
segja má að þetta sé frekar vísun í
ævintýrið og jafnvel oftar vísun í
kvikmyndaútgáfuna af Hringadrótt-
inssögu og Narníu.
Í myndinni er hver milljón dollara
senan á fætur annarri og hinu sjón-
ræna er þjónað af alkunnri vand-
virkni Hollywood-línunnar. Þar í
borg eru myndatökumenn oft orðnir
ein mikilvægasta ráðning framleið-
andans og hafa margir leikstjórar
orðið lítið yfir þeim að segja. Leik-
stjórinn í þessari mynd hefur samt
augljóslega stjórn á sínu liði. Þannig
er leikur flestra dempaður og ágæt-
lega valið í hlutverkin. Vonda
drottningin er ógnvekjandi fögur.
Varmennið sem sér um illvirkin í
hennar nafni er eins og lýsandi
albínói í myrkrinu, sérstakur á með-
al illmennanna, en umfram allt
grimmur og tryggur drottningunni.
Mjallhvít er hverrar fórnar virði,
hún er svo falleg að maður skilur vel
þá sem láta lífið fyrir hana, þótt leik-
ur hennar sé frekar flatur. Þessi út-
gáfa Mjallhvítar bíður ekki þögul
eftir að prinsinn bjargi henni, heldur
kann hún karate og berst glaðlega.
Hún stýrir djörfum árásum ridd-
aranna á kastalann og sama hvað
líkamlega sterkir fylgdarmenn
hennar; prinsinn, veiðimaðurinn og
riddararnir, berjast og hamast, þá
er það máttur hennar og megin sem
brýtur hið illa á bak aftur. Allt í sam-
ræmi við kröfur samtímans um jafn-
rétti og sterkar konur. Enda verður
hver samtími að fá að eiga sína
Mjallhvíti, hvað svo sem uppruna-
lega ævintýrið segir.
Veiðimaðurinn er eins og fulltrúi
hins venjulega manns; tækifæri okk-
ar almúgamanna til að lifa okkur inn
í ævintýrið, og það er svo sannarlega
hægt að gera og njóta þess.
Drottningin Charlize Theron leikur hina ægifögru vondu drottningu. Um ágætis útgáfu á ævintýrinu er að ræða.
Laugarásbíói og Sambíóin í
Álfabakka og Egilshöll
Snow White and the Huntsman
bbbnn
Leikstjóri: Rupert Sanders. Aðalleik-
arar: Charlize Theron, Kristen Stewart,
Chris Hemsworth og Sam Claflin.
BÖRKUR
GUNNARSSON
KVIKMYNDIR
Mjallhvít í myrkri útgáfu
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
IsNord tónlistarhátíðin fer fram á
morgun og laugardaginn, 8. og 9.
júní, hátíð þar sem lögð er áhersla á
íslenska og norræna tónlist. Einnig
verða haldnir tónleikar 21. júní kl.
21, á sumarsólstöðum, en þá syngur
karlakórinn Söngbræður í fagurri
náttúru Álftaness á Mýrum. Efnis-
skrá Söngbræðra er viðeigandi, lög
sem vegsama sumar og sól.
Hátíðin hefst á tónleikum Giss-
urar Páls Gissurarsonar tenórs og
Árna Heiðars Karlssonar píanóleik-
ara í Reykholtskirkju annað kvöld
kl. 20.30 en á þeim verða flutt ís-
lensk sönglög úr ýmsum áttum. Á
laugardaginn kl. 16 verða haldnir
tónleikar í Borgarneskirkju þar
sem píanóleikararnir Jónína Erna
Arnardóttir og Norðmaðurinn
Morten Fagerli leika í fyrsta sinn
saman fjórhent, flytja píanóperlur
frá Noregi og Íslandi og þá m.a.
fjórhenta útgáfu af „Brennið þið
vitar“ eftir Pál Ísólfsson. Jónína er
jafnframt listrænn stjórnandi hátíð-
arinnar og hefur verið frá upphafi
en meðstjórnandi hennar er
Margrét Guðjónsdóttir.
Jónína segist hafa lagt á það
áherslu á hátíðunum sem haldnar
hafa verið að einhverjir listamann-
anna sem fram koma séu úr Borg-
arfirði eða tengdir firðinum. Í ár
falla í þann flokk Söngbræður og
Jónína sjálf. „Síðan hef ég líka allt-
af reynt að vera með eina útitón-
leika sem ég tengi þá við einhverja
náttúruperlu í Borgarfirði,“ segir
Jónína. Klassísk tónlist hafi verið
mest áberandi á hátíðinni til þessa
en popp þó komið við sögu, m.a.
hljómsveitin Hjaltalín. Alltaf megi
þó finna tengingu við fjörðinn
fagra, með einum eða öðrum hætti.
Nánari upplýsingar um hátíðina má
finna á vef hennar, isnord.is.
Lög Gissur Páll tenór og píanóleikarinn Árni Heiðar koma fram á IsNord.
Borgfirskir tónar
Áttunda IsNord tónlistarhátíðin
verður haldin um helgina í Borgarfirði
EGILSHÖLL
16
16
VIP
12
12
12
12
12
12
L
10
10
ÁLFABAKKA
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á
12
L
10
AKUREYRI
16
16
16
16
16
YFIR 50 ÞÚS.
BÍÓGESTIR !
MÖGNUÐ SPENNUMYND
FRÁ LEIKSTJÓRA
V FOR VENDETTA
JOHN CUSACK ER EDGAR ALLAN POE
EMPIRE
EMPIRE
JOHNNY DEPP
FRÁ MEISTARA TIM BURTON
KEFLAVÍK
16
16PROMETHEUS KL. 8 - 10:40 3D
SAFE KL. 8 - 10 2D
THEAVENGERS KL. 5:10 3D
THE LUCKYONE KL. 8 2D
RAVEN KL. 10 2D
UNDRALANDIBBA ÍSLTAL KL. 6 2D
SAFE KL. 8 - 10 2D
SNOWWHITE KL. 5:20 - 8 - 10:40 2D
SNOWWHITE VIP KL. 5:20 - 8 - 10:40 2D
THERAVEN KL. 5:40 - 8 - 10:20 2D
THEDICTATOR KL. 6 - 8 - 10:10 2D
THE LUCKYONE KL. 8 2D
SAFE KL. 10:40 2D
DARKSHADOWS KL. 5:40 - 10 2D
THEAVENGERS KL. 8 3D
UNDRALAND IBBAM/ÍSL.TALIKL. 6 2D
16
16
KRINGLUNNI
12
12
10
THERAVEN KL. 8 - 10:20 2D
THE LUCKYONE KL. 5:50 - 8 2D
SAFE KL. 10:10 2D
DARKSHADOWS KL. 5:40 2D
THEAVENGERS KL. 6 - 9 3D
SPRENGHLÆGILEGMYND.
Total film Variety
PROMETHEUS KL. 5:30 - 8 - 10:30 3D
PROMETHEUS KL. 10 2D
THEDICTATOR KL. 6 - 8 2D
SNOWWHITE KL. 5:20 - 8 - 10:40 2D
THEAVENGERS KL. 5:20 3D
THERAVEN KL. 8 - 10:20 2D
„Scott ... tekst að skapa rafmagnaða
stemningu í Prometheus“
-V.J.V., Svarthofdi.is
til vinnu og frístunda
Fatnaður og skór
25180
Litir: Svartur/hvítur
Kr. 7.990
25170
Litir: Ljósblátt/dökkblátt
Kr. 6.990
25130
Litir: Svart/hvítt
Kr. 7.690
25220
Litir: Rautt/sand/blátt
Kr. 7.990
25090
Litir: Svart/hvítt/blátt
Kr. 10.900
00314
Litir: Svart/hvítt/
rautt/blátt
Kr. 11.900
Faxafen 10, 108 Reykjavík, sími 568 2878, praxis.is
Opið mán.-fös. kl. 11.00-17.00, lokað á laugard.
25200
Litir: Svart/hvítt
Kr. 8.600
Erum á sama stað
og Friendtex