Morgunblaðið - 07.06.2012, Qupperneq 48
FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 159. DAGUR ÁRSINS 2012
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Tekjulítill en skuldaði 145 millj.
2. Afþakkar alla aðstoð á heiðinni
3. Aspir valda miklum usla í Breið…
4. Nauðgari bitinn í liminn
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Nær 4,1 milljón manna hafði í gær
hlustað á lagið „Pretty Face“ af
breiðskífu Sóleyjar Stefánsdóttur,
We Sink, á myndbandavefnum You-
Tube. We Sink kom út í fyrra.
Milljónir hafa hlustað
á „Pretty Face“
Stórt viðtal við
söngkonuna og
tískubloggarann
Svölu Björgvins-
dóttur, sem kallar
sig Kali, má finna
í nýjasta eintaki
þýska veftímarits-
ins Kaltblut, á
kaltblut-maga-
zine.com. Er Svala þar kölluð „hin
nýja alþjóðlega drottning dansgólfs-
ins og tískunnar“. Er rætt við Svölu
um fatatísku og hljómsveit hennar,
Steed Lord.
Svala „Kali“ Björg-
vinsdóttir í Kaltblut
Lokaþáttur annarrar þáttaraðar
Game of Thrones var sýndur 3.
júní sl. í Bandaríkjunum og horfðu
um 4,2 milljónir manna á fyrstu
sýningu sem er
áhorfsmet hvað
þættina varðar.
3,9 milljónir
horfðu á
fyrsta þátt
raðarinnar.
Hluti hennar
var tekinn hér
á landi í fyrra.
Lokaþáttur Game of
Thrones sló met
Á föstudag A 5-13 m/s. Súld eða dálítil rigning um tíma A-lands
og við S-ströndina. Hiti 5 til 10 stig, en 10 til 16 V-til á landinu.
Um helgina A- og SA-átt, skýjað með köflum. Hiti 8 til 15 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG A 10-15 m/s með SA-ströndinni og rigning,
en A 5-10 og skýjað en úrkomulítið annars staðar, en þó dálítil úr-
koma með SV-ströndinni. Hiti 7-11 stig.
VEÐUR
„Ég vona að þessi tími dugi
til þess að fá keppnisrétt á
Ólympíuleikana en það er
ekki hægt að slá neinu
föstu ennþá,“ sagði sund-
konan Hrafnhildur Lúth-
ersdóttir sem stórbætti eig-
ið Íslandsmeti í 200 m
bringusundi í gær. „Þetta
var langþráð bæting, Ég er
mjög sáttur,“ sagði Árni Þór
Árnason sem bætti eigið
met í 50 m skriðsundi um
þriðjung úr sekúndu. »1
Sundfólkið á
mikilli siglingu
Arnar Grétarsson er í erfiðri baráttu
sem yfirmaður knattspyrnumála hjá
gríska félaginu AEK við að halda því á
floti. Mikil hætta er á að liðið verði
dæmt niður um deild
og leikmennirnir
hverfi á braut, þar
á meðal Eiður
Smári Guðjohn-
sen sem er
farinn að
þreifa fyrir
sér annars
staðar. »1
Óvissuástand hjá AEK
og Eiður líklega á förum
Körfuboltamaðurinn Hreggviður
Magnússon ætlar sér stóra hluti með
ÍR-ingum í körfuboltanum en hann er
kominn aftur í Breiðholtið eftir að
hafa spilað með KR-ingum undan-
farin tvö ár. „Ég er að vinna með fé-
laginu og þjálfaranum í því að sjóða
saman lið sem á að verða nokkuð
sterkt,“ segir Hreggviður um heim-
komuna. »2
Er að sjóða saman
sterkt lið í Breiðholti
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Óskar Magnússon
om@mbl.is
„Hestshausinn? Ég fékk hann í
svörtum plastpoka frá SS á Selfossi.
Fláði hann, sauð, hreinsaði og lakk-
aði svo yfir allt fíniríið,“ sagði Her-
mann Österby, rakari á Selfossi, og
lét brumma á mótorhjólinu á planinu
við bensínstöðina.
Hermann ekur um á óvenjulegu
mótorhjóli. Á stýrið hefur hann fest
hauskúpu af hrossi, nánar tiltekið
meri, og aftan á hjólinu er tagl. Sæt-
ið er ekki venjulegt mótorhjólasæti
heldur reiðhnakkur. „Þetta er gam-
all Pakistani,“ segir Hermann og
strýkur lófanum yfir hnakkinn.
„Taglið sútaði Þuríður á Oddgeirs-
hólum fyrir mig. Og sjáðu hér,“ seg-
ir Hermann og bendir inn í gapandi
augnatóftir hauskúpunnar. „Hérna
inni eru rauð díóðuljós. Hún er rauð-
eyg í myrkrinu.“
Ferguson 20
Mótorhjól Hermanns klippara er
af merarkyni og ber nafnið Viagra.
Hjólið er allt heimasmíðað og efnið
sótt í ýmis tæki og tól. ,,Afturhás-
ingin er úr Lödu Sport, líklega ’81-
módelinu,“ segir Hermann. „Bens-
íntankurinn er tveggja tommu
stretsaður Dyna Glide en framluktin
er úr Ferguson 20 og sömuleiðis
sætisfjaðrirnar undir hnakknum.“
Harley Davidson kemur óhjákvæmi-
lega við sögu þegar alvörumótorhjól
er smíðað. „Það eru Harley-gormar í
framgafflinum og stýrið sjálft er af
Heritage Softail en grindin er úr
Yamaha Virago 920, árgerð ’83, og
mótorinn líka.“
Varasöm gírskipting
Gírskipting á mótorhjóli Her-
manns Österby er ekki venjuleg fót-
skipting og skiptingin er ekki heldur
í stýrinu eins og algengt er. „Þetta
er Suicide Shift, sjálfsmorðs-
skipting,“ segir Hermann. Hann
bendir á stöng vinstra megin á hlið
Fláði, sauð, hreinsaði og lakkaði
Rakarinn tekur
merina Viagra til
kostanna í sumar
Morgunblaðið/Hrafnhildur Inga
Á fáki fráum Hermann Österby klippari á merinni Viagra: Skiptingin var sett til að ögra. „Þá detta nú flestir.“
Hestshausinn Rauð díóðuljósin eru gapandi í augnatóftunum.
hjólsins. Stöngin mun upphaflega
hafa verið hluti af reiðhjólastýri.
Nafnið er dregið af því að til þess að
skipta um gír þarf að sleppa hend-
inni af stýrinu. „Þá detta nú flestir,“
segir Hermann. „Ég setti þessa
skiptingu til að ögra sjálfum mér.“
Rottuhjól
Þegar rætt er um mótorhjól af
þessu tagi verður hreintungustefna
Morgunblaðsins að sýna tillitssemi:
„Svona hjól eru kölluð Rat Chopper,
rottuhjól,“ segir Hermann Österby.
Það tók hann eitt og hálft ár að setja
það saman og ómældar vinnustund-
ir. „Ég svekki mig ekki á því að telja
þær,“ segir Hermann. „Ég var í
Sniglunum á meðan það var gaman,
svo urðu þeir stórir og þá kom póli-
tík í málin eins og alltaf og ég hætti.
Nú er ég í klúbbnum á Selfossi, On
Tar Chopper. On Tar? Nú auðvitað
malbik, maður.“