Morgunblaðið - 03.07.2012, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2012
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Hafrannsóknarskipið Árni Friðriksson fer í fjögurra
vikna leiðangur í næstu viku og mun taka þátt í makríl-
rannsóknum í Norður-Atlantshafi ásamt 1-2 rannsókn-
arskipum frá Noregi og tveimur skipum frá Færeyjum.
Leiðangurinn er framhald rannsókna sem hófust 2009.
Þorsteinn Sigurðsson, sviðsstjóri nytjastofnasviðs Haf-
rannsóknastofnunarinnar, segir að m.a. verði mælt hve
mikill makríll sé í íslensku fiskveiðilögsögunni.
Víða hefur frést af makríl í vor og sumar. Veiðar
hófust við Vestmannaeyjar, Reykjanes og Suðaustur-
land en makríllinn virðist dreifðari nú en oft áður. Mæl-
ingar sem gerðar verða á næstu vikum geta skorið úr um
hve mikið er af makríl við landið. Rannsóknarleiðang-
urinn getur einnig leitt í ljós hvað veldur meiri dreifingu
makrílsins nú. Fyrstu niðurstaðna má vænta fljótlega að
loknum leiðangri í byrjun ágúst.
Þorsteinn sagði að af fréttum að dæma hafi makríll-
inn komið fyrr vestur fyrir land nú í vor en áður. Tölu-
vert var af makríl djúpt vestur af landinu þegar hafrann-
sóknarskipið Árni Friðriksson var þar að kortleggja
hafsbotninn undir lok maí sl., að sögn Þorsteins.
Makríllinn hrygnir hér við land
Gerð var rannsókn á hrygningu makríls hér við land
árið 2010 og var hún hluti af evrópskri rannsókn makríl-
veiðiþjóða á hrygningu. Rannsóknir sem þessar eru
gerðar þriðja hvert ár. „Það fundust vísbendingar um
hrygningu makríls í litlum mæli í íslensku lögsögunni ár-
ið 2010,“ sagði Þorsteinn. „Við sáum í togararöllum, bæði
haustralli 2010 og í mars 2011, að ungviði var að vaxa
upp í hlýjasta sjónum, frá suðausturmiðum að suðvest-
urmiðum. Makríllinn virðist vaxa álíka hratt hér og ann-
ars staðar og ná upp undir 20 sentimetra lengd á fyrsta
árinu. Við höfum séð þetta gerast síðan. Því er líklegt að
makríll hafi einnig hrygnt hér árið 2011.“
Þorsteinn segir ljóst að makríll sé orðinn íslenskur
hrygningarstofn en óvíst í hve miklum mæli. Hlutfallið
sem hrygndi í íslensku lögsögunni sé væntanlega lítið
miðað við aðalhrygningarsvæðin sunnar í Atlantshafi.
Fjögurra vikna makrílleið-
angur hefst í næstu viku
Getur varpað ljósi á magn og dreifingu makríls
Makríll Á næstu vikum munu Íslendingar, Norðmenn
og Færeyingar rannsaka makrílinn í N-Atlantshafinu.
Nú í vikulokin flytur LSR starfsemi sína á Engjateig 11.
Afgreiðsla sjóðsins verður lokuð frá hádegi
fimmtudaginn 5. júlí og fyrir hádegi föstudaginn 6. júlí.
Við opnum kl. 12 næstkomandi föstudag að Engjateigi 11.
Lífeyr iss jóður
starfsmanna rík is ins
Engjateigi 11
105 Reykjavík
Sími: 510 6100
lsr@lsr . is
www.lsr . is
VIÐ FLYTJUM
,,Mikið atvinnuleysi sem kemur verst við
ungt fólk og einstaklinga með litla formlega
menntun felur í sér augljós hættumerki,
sem mikilvægt er að bregðast við af festu,“
segir í samantekt um ástandið í atvinnu-
málum, sem unnin hefur verið á vettvangi
Alþýðusambands Íslands.
Um er að ræða samantekt og ábendingar
til aðildarfélaganna um aðgerðir sem laun-
þegahreyfingin beiti sér fyrir vegna und-
irbúnings fyrir 40. þing ASÍ sem haldið
verður í október.
Atvinnumálin verða eitt af stærstu mál-
um þingsins og þó rætt hafi verið um að
ástandið á vinnumarkaði fari batnandi fer
ekki á milli mála þegar umfjöllun ASÍ er
skoðuð að ástandið á vinnumarkaði er enn
afar slæmt. Ekki síst langtímaatvinnuleysið
en fjöldi þeirra sem hafa verið atvinnulausir
í meira en eitt ár var 4.329 í apríllok og
hafði þá fjölgað um 660 frá næsta mánuði á
undan.
Fylgja átaki eftir
næstu 3 árin
Umræðuskjalið sem unnið hefur verið á
vettvangi ASÍ verður til umfjöllunar í aðild-
arfélögunum í sumar og leggur grunn að
tillögum sem afgreiða á á þingi ASÍ. Þá
verða aðeins 2-3 mánuðir til stefnu þar til
forsendur kjarasamninga koma til endur-
skoðunar. ASÍ leggur mikla áherslu á virk-
ar vinnumarkaðsaðgerðir með sérstakri
áherslu á menntun.
Þó átaksverkefni á borð við Vinnandi veg
sem hleypt var af stokkunum í mars sl. hafi
skilað umtalsverðum árangri, en í júní
höfðu t.a.m. tæplega 1.400 starfstilboð skil-
að sér og ráðningar voru komnar í fullan
gang, þarf að mati ASÍ að gera miklu betur
til að ráða bót á ástandinu á vinnumark-
aðinum og fylgja þessu átaki eftir næstu
þrjú árin.
40. þing ASÍ verður haldið í Reykjavík
dagana 17.-19. október. omfr@mbl.is
Augljós hættumerki á lofti
Ástandið á vinnumarkaði er enn mjög slæmt og bregðast þarf við af festu að mati ASÍ
Aðildarfélög ASÍ undirbúa tillögur að aðgerðum í atvinnumálum fyrir þing ASÍ í haust
Mikill skortur í hugverkaiðnaði
» Fram kemur að takmarkaðar upplýs-
ingar sem liggja fyrir bendi ótvírætt til
þess að mikill skortur sé á starfsmönnum
í hugverkaiðnaði og í ýmsum tæknigrein-
um sem hamli vexti þessara greina.
» Þá bendir ASÍ á að mikill skortur er á
málmiðnaðarmönnum sem hefur gert að
verkum að íslensk fyrirtæki þurfa að flytja
inn málmiðnaðarmenn frá útlöndum.
Litríkt mannlíf er í höfuðborginni um þessar
mundir og ekki virðist koma að sök þótt ský
dragi fyrir sólu. Í Bankastrætinu voru tveir
ferðamenn á gangi með spennta regnhlíf
skreytta íslensku fánalitunum. Ekki er vitað
hvert för þeirra var heitið, en regnhlífin á ef-
laust eftir að koma þeim að góðum notum á
næstu dögum, því ekki er von á sól og blíðu á
höfuðborgarsvæðinu. pfe@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Íslensku fánalitirnir koma að góðum notum í rigningu
Fulltrúar Ís-
lands, ásamt Jap-
önum, Norð-
mönnum og fleiri
þjóðum, greiddu í
gær atkvæði
gegn tillögu um
griðasvæði fyrir
hvali í Suður-
Atlantshafi á
fundi Alþjóða-
hvalveiðiráðsins.
Tillagan hefði þurft 3/4 hluta at-
kvæða til þess að fara í gegn, en
hún hlaut 65% atkvæða og var því
hafnað.
Alls greiddu 38 lönd atkvæði með
tillögunni, en 21 land var á móti.
Að atkvæðagreiðslu lokinni þakk-
aði Brasilía meirihlutanum og lýsti
því yfir að áfram yrði unnið að
framgangi tillögunnar um griða-
svæði.
Japanar voru í forustu andstæð-
inga griðasvæðisins. Þeir veiða
mörg hundruð hvali á hverju ári ná-
lægt suðurpólnum.
Hafna
griðasvæði
fyrir hvali
Íslendingar felldu
Hvalveiðar Þær
eru afar umdeildar.