Morgunblaðið - 26.07.2012, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 2012
eftir
Þorstein Mar
„Manni leiddist aldrei á
meðan lestrinum stóð.“
JKG, Nörd Norðursins
„Hin fínasta lesning,
frjó hugmyndagleði
einkennir hana.“
BHÓ, Skorningar
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Danski veiðimaðurinn Lars Erik
Svendsen veiddi sannkallaðan stór-
lax í Laxá í Aðaldal í fyrradag, þeg-
ar hann var við veiðar í Höfðahyl
austanverðum í landi Núpa. Hæng-
urinn, sem er lengsti lax sumarsins
til þessa, var mældur 111 sm áður
en honum var sleppt aftur út í ána.
Samkvæmt viðmiðunarkvarða hef-
ur hann vegið 13,4 kíló, rétt tæp 30
ensk pund eða 27 pund íslensk.
Veiðimaðurinn og veiðivörður
sem með honum var höfðu fylgst
með laxinum og séð að hann glefs-
aði nokkrum sinnum í ýmsar flugur
sem reyndar voru í um klukkustund
áður en hann tók fluguna Snældu.
Viðureignin tók um hálftíma.
Það var í þessum sama hyl sem
Jakob Hafstein veiddi stærsta lax
sem veiðst hefur á flugu hér á landi
10. júlí sumarið 1942, en sá vó 36
pund. Ekki er langt síðan annar
mjög stór lax tók flugu neðar í
Laxá, á Spegilflúð, og mældist 110
sm. Það var hrygna og telur Orri
Vigfússon leigutaki líklegt að hann
hafi verið heldur þyngri en laxinn
sem veiddist í Höfðahyl í fyrradag.
Þá veiddist 109 sm lax í Selá í
Vopnafirði um liðna helgi.
Stærsti lax sumarsins tók Snældu
Tveir stórlaxar á land í Laxá í Aðaldal á stuttum tíma
Ánægja Lars Erik Svendsen reyndi ýmsar flugur áður en stórlaxinn tók í Höfðahyl í Laxá í Aðaldal.
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Náttúrufræðistofnun stóð fyrir hinum árlega
rannsóknarleiðangri í Surtsey dagana 16.-20. júlí
ásamt Landbúnaðarháskóla Íslands og Umhverf-
isstofnun. Eru þær ferðir að jafnaði einu skiptin
sem menn koma til eyjarinnar en hún var friðlýst
árið 1965, í miðju Surtseyjargosi. Eyjan er einnig
á heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna. Borgþór
Magnússon, leiðangursstjóri, segir að Surtsey
gefi mönnum einstakt tækifæri til þess að fylgjast
með því hvernig úthafseyjar myndast og rofna við
ágang sjávar, og hvernig lífríki þróast á slíkum
eyjum.
Borgþór segir að það sem hafi stungið mest í
augu hafi verið hvað gróður hafi litið illa út eftir
þurrkatíð sumarsins, sérstaklega þar sem jarð-
vegurinn er þunnur, einkum sunnan til á eyjunni.
„Við höfum ekki séð neitt þessu líkt, og það er
ekki ósennilegt að þetta hafi einhver áhrif næstu
árin á gróðurbreytingar og þróun í eynni.“
Borgþór bætir við að við athugun á háplöntum
hafi komið í ljós að fækkað hafi um eina tegund.
Þetta sé fimmta árið í röð sem tegundum hefur
fækkað og það bendi til þess að gróðursamfélagið
í Surtsey sé að leita jafnvægis. „Ef við berum
þetta til dæmis saman við úteyjarnar í Vest-
mannaeyjum þá eru mjög tegundafá samfélög í
þeim eyjum. Þar eru miklu færri tegundir en í
Surtsey og allt bendir til þess að gróðurinn í
Surtsey muni með tíð og tíma fara í sama horf og í
úteyjunum en það tekur fleiri áratugi ef ekki ald-
ir.“
Borgþór segir að fuglalíf í Surtsey hafi verið í
nokkuð svipuðu horfi, en undanfarin þrjú ár hafa
ellefu tegundir verpt í eyjunni og hefur leiðang-
urinn ekki fundið neina nýja landnema þar síðustu
árin. Svo virðist sem sjófuglum hafi vegnað vel í
varpinu í sumar, ekki síst mávunum, en leiðang-
urinn varð var við fleiri mávahreiður í sumar en
síðustu árin. Þá séu einnig nokkrar tegundir land-
fugla, til dæmis sólskríkja, maríuerla og þúfutitt-
lingur, með fast varp í Surtsey.
Surtsey sífellt að breytast
Borgþór segir að það séu alltaf miklar breyt-
ingar á hverju ári á strönd Surtseyjar, sem sé allt-
af að rofna meira og meira vegna ágangs sjávar.
Leiðangurinn hafi til dæmis tekið eftir verulegum
breytingum á svokölluðum Norðurtanga sem hef-
ur gengið mjög saman undanfarin ár. Þá sé sjór-
inn farinn að brjóta af hrauni sem rétt glitti í í
fyrra.
„Surtsey hefur sýnt okkur að hraunskjöldurinn
sunnan á eynni er mjög brotgjarn og rofnar hratt,
en askan harðnar og myndar hart móberg sem
stenst rofið betur. Það myndar þann kjarna sem
mun endast lengst í Surtsey og lifa í einhver þús-
und ára.“
Háplöntum fækkar milli ára
Ástand gróðurs í Surtsey mjög slæmt eftir þurrka sumarsins Varp sjófugla
meira í sumar en undanfarin ár Stöðugar breytingar á strönd Surtseyjar
Ljósmynd/Erling Ólafsson
Þurrt Veðrið að undanförnu hefur haft slæm
áhrif á gróðurinn í Surtsey.
Skógarbobbi sem fannst á vörubretti við verslun Byko í
Keflavík er sprelllifandi og til sýnis í Fræðasetrinu í
Sandgerði. Starfsmenn Byko fundu snigilinn og fóru
með hann til greiningar hjá Náttúrustofu Reykjaness í
Sandgerði.
Skógarbobbi slæðist sjaldan til landsins og þá með
varningi. Er kunnugt um sjö tilvik og er þetta í annað
sinn sem skógarbobbi finnst hjá Byko í Keflavík. Snig-
illinn fannst fyrst í Heiðmörk í október 1991 og hafði þá
borist ásamt fleiri kvikindum með stálvörum frá Ítalíu,
samkvæmt upplýsingum á vef Náttúrufræðistofnunar.
Kuðungur skógarbobba er afar breytilegur á lit,
stundum einlitur en oftast með spíralbeltum sem liggja
á mismunandi vegu. Hann nærist á plöntum en virðist
ekki valda skaða að ráði. helgi@mbl.is
Skógarbobbi fannst á
vörubretti í Keflavík
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
Litir Skógarbobbar nærast á plöntum en valda ekki
miklum skaða. Þeir slæðast til landsins með vörum.
Sprelllifandi til sýnis í
Fræðasetrinu í Sandgerði
Góð makrílveiði
er á miðunum
austan við land.
Frystiskipin eru
fljót að ná sér í
nægt hráefni og
skipin sem landa
í frystihús í landi
stoppa stutt á
miðunum. Mak-
ríllinn er að fitna
og stækka og er
hráefni í verðmætari vöru en fyrir
nokkrum dögum.
Nokkur skip voru í gær á mið-
unum í eða rétt utan við Litladýpi en
makríl er að finna allt í kringum
landið. „Það er nóg af honum og
þetta er íslenskur makríll,“ segir
Ómar Sigurðsson, skipstjóri á Að-
alsteini Jónssyni frá Eskifirði, þegar
borin er undir hann gagnrýni út-
gerða í nágrannalöndum um að
dregið hafi úr makrílgöngum til Ís-
lands.
Ómar segir að veiðin sé góð og
makríllinn fari batnandi. „Hann er
að fitna og stækka,“ segir skipstjór-
inn. Makríllinn er hausskorinn og
slógdreginn fyrir frystingu í vinnslu-
skipinu. Afskurðurinn fer í bræðslu í
landi.
Makrílkvóti ársins er rúm 145
þúsund tonn og dreifist hann á mörg
skip. Vel hefur gengið á kvótann hjá
sumum skipum. Góður kvóti er á Að-
alsteini og vonast Ómar til að geta
verið á makrílveiðum fram á haust.
helgi@mbl.is
Makríllinn
fitnar og
stækkar
Flakk Makríll allt í
kringum landið.
Góð veiði er hjá
skipunum á Litladýpi
Veðurhorfur fyrir næstu daga eru
taldar vera ágætar. Samkvæmt upp-
lýsingum frá Veðurstofu Íslands er
útlit fyrir að það verði hægir vindar
næstu daga, yfirleitt þurrt á landinu,
nokkuð bjart og fremur hlýtt. Á
föstudaginn verður skýjað og þurrt
að kalla norðanlands en dálítil rign-
ing á Austurlandi. Á laugardaginn
verður svo hæg vestlæg eða breyti-
leg átt og víða bjart veður. Líklega
verður hlýjast á Suðurlandi, og verð-
ur hitinn á bilinu 12-22 stig. Erfiðara
er að spá um sunnudaginn en líklega
verður hlýtt og bjart. Líkur eru þó á
einhverri úrkomu á Vesturlandi.
sgs@mbl.is
Spáð góðu
helgarveðri