Morgunblaðið - 26.07.2012, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 26.07.2012, Blaðsíða 40
FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 208. DAGUR ÁRSINS 2012 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550 1. Jennifer Connelly í Bankastræti 2. Ben Stiller skoðaði hús 3. Þorsteinn greiðir 185 milljónir 4. Íslensk ofurstjarna á Indlandi »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Friðrik Vignir Stefánsson, organisti og tónlistarstjóri í Seltjarnarnes- kirkju, spilar á tónleikum í Hallgríms- kirkju í dag kl. 12 á Alþjóðlegu orgel- sumri Hallgrímskirkju. Aðgangseyrir er 1.500 kr. Morgunblaðið/Eggert Orgeltónleikar Frið- riks í Hallgrímskirkju  Tónleikar Val- geirs Guðjóns- sonar og dóttur hans, Vigdísar Völu Valgeirs- dóttur, fara fram í Nema Forum í dag kl. 20 en fleiri tónleikar feðgin- anna eru á dag- skrá 31. júlí og 1. - 4. ágúst, einnig kl. 20. Tónleikarnir fara fram á ensku og skandinavísku og eru ætlaðir erlend- um jafnt sem innlendum gestum. Valgeir og Vigdís í Nema Forum  Kiriyama Family gaf út sína fyrstu plötu í vor, samnefnda hljómsveit- inni. Nú leggur rafpopp-kvartettinn í ferðalag um landið í tón- leikahald og spilar á Mærudögum á Húsavík á Gamla Bauk kl. 22, og á föstudaginn spila þau í Borgarfirði eystri í Bræðslunni kl. 23 ásamt Coney Island Babies og Tilbury. Kiriyama Family á ferð um landið Á föstudag Norðan 3-8 m/s. Skýjað og þurrt að kalla NA- og A- lands, en bjartviðri sunnan heiða. Hiti 8 til 17 stig. Á laugardag og sunnudag Hæg breytileg átt. Yfirleitt þurrt á landinu og bjart veður nokkuð víða. Hiti 12 til 22 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðan 3-8 m/s og áfram væta, en styttir upp V-lands. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast S-til á landinu. VEÐUR Fulltrúar Morgunblaðsins eru lentir í Lundúnum þar sem Ólympíuleikarnir verða settir annað kvöld. Kristján Jónsson blaðamaður hitti meðal annars aðdáanda Sigur Rósar og blaðamann LA Times, sem er síður en svo í mjúknum hjá NBA- stjörnunni Kobe Bryant, á fyrsta degi sínum í ólympíu- þorpinu. Bretar eru með sitt á hreinu og allt eins og best verður á kosið. » 1 Ólympíuævintýrið er að hefjast FH-ingar freista þess að komast í 3. umferð Evrópudeildarinnar í fótbolta þegar þeir taka á móti Helga Val Daníelssyni og félögum í sænska lið- inu AIK í Kaplakrika í kvöld. FH náði óvæntu jafntefli í fyrri leiknum í Stokkhólmi. Þórsarar eiga við rammari reip að draga en þeir fá Mladá Bole- slav frá Tékklandi í heimsókn í kvöld. »2 FH-ingar freista þess að komast í 3. umferðina Allir bestu kylfingar landsins koma saman á Strandarvelli við Hellu í dag og næstu daga þegar 70. Íslands- mótið í höggleik í golfi fer fram. Þetta er í fjórða sinn sem Íslands- mótið fer fram á þessum velli. Axel Bóasson og Ólafía Þórunn Kristins- dóttir hafa titil að verja og verða með líkt og fleiri Íslandsmeistarar síðustu ára. »3 Fyrsta flokks fjögurra daga golfveisla á Hellu ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Engin byggð er í Fjörðum en þar verður mikið um dýrðir á sunnudag, þegar árleg messa verður á Þöngla- bakka í Þorgeirsfirði. Búist er við fjölmenni en í fyrra mættu nær 200 sóknarbörn á hátíðina. Um klukkutíma tekur að aka jeppaveg frá Grýtubakka inn í botn Hvalvatnsfjarðar og þaðan er um klukkutíma ganga yfir hálsinn í Þorgeirsfjörð. Undanfarin sumur hafa bátar líka siglt með fólk frá Grenivík en núna siglir skemmti- báturinn Húni, sem tekur 70 manns, frá Akureyri kl. sjö að morgni og frá Grenivík kl. 10, en kemur í Þorgeirsfjörð klukkan eitt. Þar sjá björgunarsveitarmenn um að ferja fólkið í land, en messan hefst klukkan tvö. „Það er góð veðurspá og ég reikna með því að fjörðurinn verði spegilsléttur. Þá er þetta bara dýrðin ein,“ segir sr. Bolli Pétur Bollason í Laufásprestakalli og leggur áherslu á að ferðalagið sé upplifun rétt eins og hátíðin sjálf. Pílagrímsferðir Á meðal gangandi gesta verður 70 manna hópur 18-25 ára inn- lendra og erlendra ungmenna, sem taka þátt í sérstöku ungmenna- samskiptaverkefni Akureyr- arkirkju. Kussungsstaðaætt kemur saman á Lómatjörn og gerir Bolli ráð fyrir að flestir ef ekki allir Lómtirningar taki þátt í mess- unni. „Þetta eru pílagríms- ferðir fyrir marga,“ segir hann og vísar til þess að í kirkjugarðinum hvíli ætt- menni gesta og sumir hverjir hafi lagt leg- steina á leiði forfeðra sinna, en fólk komi víðs vegar að til þess að minnast þeirra. Arnhildur Valgarðsdóttir org- anisti stýrir sönghóp Lómtirninga og sagðar verða sögur en Ferða- félagið Fjörðungur selur lummu- kaffi í skála félagsins eftir messu. „Þetta er viðburður. Hátíð,“ segir Bolli og bætir við að sumarkirkjan sé nokkuð öflug í prestakallinu. „Ég hef gaman af óhefðbundnu helgi- haldi og ég sé að það að tengja saman útivist og göngu við helgi- haldið virkar mjög vel.“ Sr. Kristján Valur var upphafs- maður messunnar, en 2008 mættu 160 manns og nær 200 manns í fyrra. Prestarnir Kristján og Jón Helgi Þórarinsson messuðu 2008 en síðan hafa Kristján og Bolli annast prestsþjónustuna. „Þetta er ævin- týri, heilmikil upplifun,“ segir Bolli. Útivist og helgihald í Fjörðum  Ævintýri í sex tíma siglingu eða akstri og göngu Messa Búist er við fjölmenni í messu á Þönglabakka í Þorgeirsfirði á sunnudag en í fyrra voru þar nær 200 manns. Áhugahópur um messuhald á Þönglabakka í Þorgeirsfirði og varðveislu Fjörðungasögu hefur skipulagt helgihald á Þönglabakka síðan 2008. Þönglabakkakirkja var til forna helguð Ólafi helga. Ólafs- messa er 29. júlí og því er messað á Þönglabakka síðasta sunnudag í júlí ár hvert. Þönglabakkakirkja var tekin ofan 1944 enda þá engin byggð lengur í Fjörðum. Enn mót- ar fyrir grunni kirkjunnar í kirkju- garðinum og þar er messað. Séra Sigurður Jónsson sat Þöngla- bakka síðastur presta og fór það- an 1902 eftir níu ára dvöl. Séra Jón Reykjalín, forfaðir Lómtirn- inga, var prestur á Þönglabakka 1863-1888 en þjónaði Svalbarði 1873-1875 og þá var prestlaust í Fjörðum. Varðveita Fjörðungasögu ÞÖNGLABAKKAKIRKJA HELGUÐ ÓLAFI HELGA TIL FORNA Sr. Bolli Pétur Bollason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.