Morgunblaðið - 26.07.2012, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 26.07.2012, Blaðsíða 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 2012 Ástandið í heil- brigðismálum hér á landi er afar bágborið. Þrátt fyrir að um þriðjungur útgjalda ríkisins renni til heil- brigðiskerfisins eru laun starfsmanna spít- ala og læknastofnana lág, vinnutíminn lang- ur og þar af leiðandi fá starfsmenn ekki nægilega hvíld, biðlist- ar eru langir og hafa stjórnendur margra stofnana og deilda að auki þurft að skera allrækilega niður í rekstri sínum, sameina deildir og segja upp starfsfólki. Það er ljóst að núverandi ástand gengur ekki til lengdar. Það þarf að finna rót vandans, ráðast á hana og leita síð- an lausna. Að þessu sinni blasir lausnarorðið við. Ímyndum okkur að hér á landi væri aðeins ein matvöruverslun – matvöruverslun ríkisins. Ríkið hefði sem sagt einokun á mat- vörumarkaði og skuldbyndi sig til að tryggja öllum „ókeypis“ – eða í það minnsta ódýrt – fæði, þá með útdeilingu eins konar matarmiða eða þvíumlíku. Í stuttu máli sagt væri matarskortur, léleg þjónusta, lág laun starfsmanna og lítil fjöl- breytni í vöruúrvali. Ríkisvaldið hefði engan hvata til að bæta þjón- ustu, auka úrval matvara eða full- nægja þörfum viðskiptavina sinna að einhverju leyti. Sem betur fer sneru Íslendingar frá villu síns vegar á sínum tíma og leyfðu einkaaðilum að sjá um mat- vöruverslanir. Sum lönd ákváðu að halda fast við ríkiseinokunina á matvörumarkaði, sem og reyndar á fleiri sviðum, með afdrifaríkum af- leiðingum eins og við þekkjum svo vel. Þess er lítil þörf að rannsaka af- leiðingar samkeppninnar á mat- vörumarkaði ofan í kjölinn. Margar verslanir risu út um allt land, þjón- ustan jókst til muna, vöruúrval varð gríðarlegt – að margra mati meira en góðu hófi gegnir – og opnunartímar urðu sveigjanlegir. Sem dæmi má nefna er nú mögu- legt að skjótast út í næstu matvöruverslun klukkan þrjú um nótt og fá sér í svanginn. Nokkuð sem fólk gat ekki einu sinni látið sig dreyma um áður fyrr. En það mik- ilvægasta af öllu: Hinn frjálsi mat- vörumarkaður sá fleirum fyrir næringu en ríkið. Næring er nauðsyn- leg til þess að lifa af. Það fer ekki á milli mála. Engu að síður skiptir ríkið sér ekki af matvörumarkaðinum (nema þá til að leggja steina í götu verslana í formi skatta, tolla, eft- irlits o.fl.). Heilbrigðisþjónusta er að sama skapi lífsnauðsynleg en samt sem áður er hún í hel- greipum ríkisins og tálmanir settar á allt einkaframtak. Er því ekki kjörið að leysa heilbrigðiskerfið úr viðjum ríkisins og láta einkaaðila sjá um rekstur læknastofnana og spítala? Eins og áður kom fram er einka- rekstur bæði skilvirkari, betri og hagkvæmari en ríkisrekstur. Ein- staklingar í einkarekstri kappkosta að bjóða sem bestu þjónustuna á sem lægsta verðinu. Tökum þá einkarekinn spítala sem dæmi. Eigandi spítalans mun kostgæfa að skipuleggja reksturinn upp á nýtt, hagræða, ráða til sín nýja starfs- menn, kaupa betri tæki og svo framvegis. Samkeppnin við aðra spítala drífur hann áfram til að gera sem mest úr sem minnstu. Ríkið hefur ekki þennan hvata – drifkraft – til að gera betur í dag en í gær. Ríkisrekstur einkennist af stöðnun, fábreytni og óskilvirkni – um það er engum blöðum að fletta. Víða mun heyrast harmakvein. „Hvað með þá fátæku? Hvers eiga þeir að gjalda?“ Fyrir það fyrsta munu skattar lækka um þriðjung. Það þýðir einfaldlega að hver og einn einstaklingur – fátækur eða ríkur – mun eiga meira fé aflögu til að greiða fyrir læknisþjónustu eða heilbrigðistryggingu. Í öðru lagi mun bæði hagræðing og sam- keppni í heilbrigðisgeiranum skila sér í lægra verði á heilbrigðisþjón- ustu. Aftur komum við að „ósýni- legu hönd“ markaðarins. Það er hagur stjórnenda spítala og lækna- stofnana að bjóða sem bestu þjón- ustu á sem lægsta verði. Neytendur myndu aukinheldur hafa meira val. Rétt eins og sumir kaupa sér oft á tíðum fínasta kampavínið og kavíar með, myndu sumir vilja kaupa betri, og þá dýr- ari, læknisþjónustu en aðrir. Svip- að gildir um heilbrigðistryggingar. Tryggingafélög munu krefja drykkjumenn um hærri greiðslu í formi iðgjalda heldur en heilsu- hrausta menn. Það er að segja, tryggingafélög munu hygla þeim sem hugsa um heilsuna umfram þá sem gera það ekki. Ýmis góðgerðafélög sjá síðan til þess að þeir örfáu, sem ekki eiga efni á læknisþjónustu, hljóti hana. Þegar ríkið hættir afskiptum sín- um af heilbrigðiskerfinu hefur hver og einn einstaklingur meiri pening aflögu einmitt til að styðja og hjálpa þeim sem minna mega sín. Nú í dag er slíku ábótavant þar eð ríkið slær á allan áhuga almenn- ings til að láta gott af sér leiða. Skilaboðin sem skattgreiðendur fá frá ríkinu eru þau, að ríkið sjái al- veg um þessi mál – reddi þessu – enda tekur það um þriðjung af tekjum skattgreiðenda og færir þær í heilbrigðiskerfið. Það er bersýnilegt að ríkið er helsti þrándur í götu betra heil- brigðiskerfis. Lausnin á þessum mikla vanda, sem steðjar að kerf- inu í dag, er til og er raunsæ. Hins vegar vantar allan pólitískan vilja til að taka skrefið fram á við – rétt eins og gert var á matvörumark- aðinum á sínum tíma. Við sjáum hvað matvörumarkaðurinn stendur sterkur í dag. Viljum við ekki líka bæta heilbrigðiskerfið? Bætum heilbrigðiskerfið Eftir Kristin Inga Jónsson » Það er bersýnilegt að ríkið er helsti þrándur í götu betra heilbrigðiskerfis. Kristinn Ingi Jónsson Höfundur er menntaskólanemi. Bréf til blaðsins Sólskálar -sælureitur innan seilingar Hentar mjög vel íslenskri veðráttu Við höfum framleitt viðhaldsfría glugga og hurðir í 28 ár Nánari upplýsingar á www.solskalar.is Frábært skjól gegn vindi og regni Yfir 40 litir í boði! Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími: 554 4300 • Fax: 564 1187 Skráðu bílinn þinn frítt inn á diesel.is Kletthálsi 15 · 110 Reykjavík · Sími: 578 5252 þegar þú ætlar að selja bílinn Mig langar að tjá mig um það hvernig stjórn- völd hafa klofið þjóðina. Þið sem eruð í stjórn- málum og ekki síst núverandi stjórn, hafið of- gnótt af öllu, og aldrei fáið þið nóg, og séð er til þess að þeir er undan ykkur koma, fái notalegt og gott líf með góðum fyrirgreiðslum allsstaðar og bestu störfin, hvort sem þetta fólk er hæft eður ei. Þið sitjið öll á jötunni og heimtið endalaust og passað er að skerða nú ekkert hjá sjálfum sér. Sé það rétt að þú, Jóhanna Sig- urðardóttir hafir fengið 257.000 krónur í launahækkun, hvernig get- ur þú þá tekið við því á meðan stór hluti landsmanna þarf að lifa á launum undir 200.000 krónum. Það er ekki eins og þú hafir staðið þig og eigir skilið auka bónus. Þið hafið klofið þjóðina í ykkur og okkur, þar sem allir vinna hörðum höndum við að halda ykkur uppi. Því að það er alls staðar skorið niður, nema hjá ykkur. Þið hafið örugglega forgang í heilbrigðiskerfinu. Þvílíkar afæt- ur. Helmingur ykkar skilar ekki neinu til þjóðarinnar. Þið skulið hætta að tala um lýðræði, því það er eitthvað sem eingöngu er ykkar á milli og frelsið sem þið njótið er á okkar kostnað. Það er stór hópur þarna úti og fer stækkandi, sem þið viljið ekki vita af, svo ekki tala um frjálsræði við okkur. Þið hafið stimplað ykkur burt frá veru- leikanum. Firra ykkar er algjör. Það er ekki bara Útlendinga- stofnun sem ekki virkar, heldur er það allt íslenska kerfið. Að sjálf- sögðu virkar það fyrir ykkur, en ekki okkur hin. Sértu misrétti beittur þá er ómögulegt að fá leið- réttingu. Fólkið sem situr í þessum störfum, lífeyrissjóðir, sveitarfélög og ríkisstofnanir hafa fá svör og verða eins og heilabilaðar tölvur, þar til fólk gefst upp. Hver fjöl- skylda þyrfti að hafa einn löglærð- an meðlim, svo ekki sé sífellt verið að trampa á þeim frá hendi stjórn- valda. Sveitarfélögin eru orðin skemmtikraftur við að hafa ofanaf fyrir fólki frá vöggu til grafar og eru síðan flest á hausnum. Það þyrfti að athuga þau. Fyrir fé okk- ar sem þið hafið eytt í umsókn í ESB hefði örugglega dugað til að halda uppi heilbrigðiskerfinu í land- inu og að byggja fangelsi. Ég spyr mig oft hvað varð um allt það fé sem þjóðin hefur skapað í gegnum árin. Já það er orðið kvíðvænlegt að búa á Íslandi. STEFANÍA JÓNASDÓTTIR Sauðárkróki Þið og við Frá Stefaníu Jónasdóttur Stefanía Jónasdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.